Byggðaráð

1180. fundur 16. apríl 2026 kl. 13:15 - 16:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2025 og endurskoðun

Málsnúmer 202512011Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs, Þorsteinn G. Þorsteinsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og eftirtaldir aðalmenn í sveitarstjórn; Gunnar Kristinn Guðmundsson og Kristinn Bogi Antonsson, kl. 13:15.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025.

Þorsteinn G. Þorsteinsson, endurskoðandi, fór yfir reikninginn og kynnti helstu niðurstöður.

Þorsteinn, Eyrún, Gunnar Kristinn og Kristinn Bogi viku af fundi kl. 14:07.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

2.Framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð; skýrsla vinnuhóps

Málsnúmer 202508043Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsvið, sat fundinn undir þessum lið.

Á 383. fundi sveitarstjórnar þann 4. nóvember 2025 var eftirfarandi bókað:
"Á 1160. fundi byggðaráðs þann 9. október sl. var eftirfarandi bókað:
Á 310. fundi fræðsluráðs þann 8. október sl. var eftirfarandi bókað:
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, leggur fram drög að erindisbréfi vinnuhóps um framtíðarsýn á skólahúsnæði í Dalvíkurbyggð og einnig er fundagerð fyrsta fundar lögð fram til kynningar.
Niðurstaða : Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum erindisbréf vinnuhóps um framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð."
Í meðfylgjandi erindisbréfi kemur fram að ákvörðun um fundarþóknun vinnuhópsins sé byggðaráðs.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum erindisbréfið eins og það liggur, með smá lagfæringu á orðalagi í punkti #2 undir tilgangi/hlutverki, og samþykkir að vinnuhópurinn verði ekki launaður, sbr. það sem almennt gildi með vinnuhópa sveitarfélagsins."
Niðurstaða :
Til máls tók:
Helgi Einarsson.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að erindisbéfi vinnuhóps um framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi skýrsla ofangreinds vinnuhóps sem sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti.


Fram kom að nokkrir valkostir voru skoðaðir en á síðasta fundi hjá hópnum komst hann að þeirri niðurstöðu að ekki væri tímabært að fara í framkvæmdir eins og er, helgast það fyrst og fremst á því að grunnskóladeildin sem var í Árskógarskóla fer í Dalvíkurskóla næsta haust og skapast þá möguleiki á að nýta húsnæði Árskógarskóla betur ef þörf verður á og bjóða þar uppá leikskóladvöl fyrir börn. Taka svo upp þráðinn aftur ef íbúum/nemendum fer að fjölga verulega.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa skýrslu vinnuhópsins til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að vinnuhópurinn hafi lokið störfum hér með og verði lagður niður.

3.Árskógarskóli; staða mála

Málsnúmer 202405081Vakta málsnúmer

Á 383. fundi sveitarstjórnar þann 4. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu fræðsluráðs um að frá og með haustinu
2026 verði grunnskólastig Árskógarskóla fært til Dalvíkurskóla. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að ekki
verði ráðið í stöðu deildarstjóra Árskógarskóla í ljósi þessara breyting."

Á 314. fundi fræðsluráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir stöðu mála á verkefninu. Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kynnti í hvaða farvegi þessar breytingar eru.

Lagt fram til kynningar.

4.Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa; Íþróttamiðstöð - breytingar á gufuklefa

Málsnúmer 202411089Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, og Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, kl. 14:34.
Gísli Bjarnason sat fundinn áfram.

Á 387. fundi sveitarstjórnar þann 17. febrúar sl. var samþykkt sú breytingatillaga Freys Antonssonar að samþykkja stærri viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna gufuklefa á lóð Íþróttamiðstöðvar að upphæð kr. 26.300.000 þar sem að hans mati væri tillaga gufuklefa með áætlun upp á kr. 4.000.000 of lítil, engin forstofa, engin sturta. Í tillögu Freys kom jafnframt fram að hans mat er að sveitarfélagið eigi að fara í stærra hús með forstofu, sturtu og stærri gufuklefa.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað Helgu Írisar Ingólfsdóttur, deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, og Jón Stefáns Jónssonar, íþróttafulltrúa, dagsett þann 14. apríl 2026.
Fram kemur að leitað hefur verið nýrra tilboða í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar og skoðað og borið saman valkosti, í samráði við starfsmenn Íþróttamiðstöðvar, sem uppfylla það að vera með stærra gufurými, forstofu og innisturtu. Fimm mismunandi kostir voru skoðaðir. Niðurstaðan var að óska eftir tilboði í sérsmíði frá sauna.is þar sem saunarýmið yrði aðeins stærra, þak einhalla og klefinn speglaður frá upphaflegu tilboði. Beðið er eftir tilboði frá þeim í þessa sérsmíði.

Til umræðu ofangreint.

Helga Íris vék af fundi kl. 14:46.
Lagt fram til kynningar og deildarstjóra og íþróttafulltrúa falið að vinna áfram að málinu.
Byggðaráð felur deildarstjóra og íþróttafulltrúa að kanna möguleika á fleiri staðsetningum en fram kemur í minnisblaðinu.

5.Frá íþróttafulltrúa; Ósk um kaup á hljóðkerfi í íþróttamannvirki, viðaukabeiðni

Málsnúmer 202603102Vakta málsnúmer

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 30. mars sl. og 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna kaupa á hljóðkerfi í Íþróttamiðstöð. Beiðnin kom fram við gerð fjárhagsáætlun 2026 en var hafnað. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 2.675.000. Fram kemur að ekki er metið svigrúm til lækkunar á öðrum liðum á móti.
Niðurstaða : Afgreiðslu frestað til næstu viku."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar frá íþróttafulltrúa um að ekki er metið svigrúm innan fjárhagsramma Íþróttamiðstöðvar til að mæta þessari viðaukabeiðni.

Gísli og Jón Stefán viku af fundi kl. 14:54.
Byggðaráð samþykkir samhjóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 16 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 2.675.000 á lið 06500-2810.
Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Frá sveitarstjóra; Tengiráðgjafar - minnisblað

Málsnúmer 202512037Vakta málsnúmer

Á 387. fundi sveitarstjórnar þann 17. febrúar sl. var eftirfarandi m.a. bókað:
"Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka undir bókun félagsmálaráðs og lýsir sveitarstjórn yfir mikilli óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Sveitarstjórn skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni. Gott að eldast verkefnið hefur gengið mjög vel en er á mjög viðkvæmum stað og mikilvægt að sú vinna sem er í gangi fái að halda áfram óáreitt. Sveitarstjórn jafnframt fer fram á fund um málið með ráðherra/ráðuneytinu sem fyrst."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi sveitarstjóra til Verkefnastjórnar verkefnisins Gott að eldast, dagsett þann 13. apríl sl.
Fram kemur m.a. að í ljósi þess árangurs sem náðst hefur hér í Dalvíkurbyggð þá er óskað eftir því að halda því fjármagni sem verkefnið hefur fengið vegna tengiráðgjafa sem og að aukið verði við greiðslur til HSN
vegna verkefnisins.


Lagt fram til kynningar.

7.Frá sveitarstjóra; Þjónustusamningur vegna starfs byggingafulltrúa; viðvera

Málsnúmer 202409170Vakta málsnúmer

Á 1178. fundi byggðaráðs þann 24. mars sl. voru samþykkt fyrirliggjandi samningsdrög vegna framlengingu á verktakasamningi vegna embættis byggingarfulltrúa á milli Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbæjar um 6 mánuði eða til og með 30. september.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærð samningsdrög þar sem fram kemur breytingartillaga frá Akureyrarbæ varðandi skoðun á áframhaldandi samstarfi og því að gerður verði nýr heildarsamningur um verkefnið með gildistöku 1. október 2026.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu einnig upplýsingar um þau áform að byggingarfulltrúi muni hafa ákveðna fasta viðveru í Dalvíkurbyggð.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda og meðfylgjandi tillögu að breytingu á samningsdrögunum og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

8.Fjárfestingar og framkvæmdir 2026; viðaukabeiðni

Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Óðinn Steinsson, verkefnastjóri þvert á svið kl.15:06.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá Framkvæmdasviði vegna veitna:
Vatnsveita liður 44200-11606 hækki nettó um kr. 9.500.000 með eftirfarandi sundurliðun:
Nýtt verkefni; Ljóstæki vatnstankur Upsa, kr. 4.000.000.
Hækkun á verkefni; Hönnun og nýlagnir Hamar, kr. 2.000.000.
Tekið út verkefni; Brattavellir - ljóstæki, kr. -3.000.000.
Nýtt verkefni; Bakkavarnir í landi Bakka, kr. 3.500.000.
Nýtt verkefni; Vatnsöflun Árskógsströnd, kr. 7.000.000.
Tekið út verkefni; Tenging við Engihlíð, Sólvelli og Vallholt, kr. -4.000.000.

Hitaveita liður 48200-11607, nettó breyting lækkun um kr. -29.289.000.
Tekið út verkefni; Djúpdæla HA 11 niðursetning, kr. -16.000.000.
Lækkun á verkefni; Endurnýjun dæli í ÁRS32, kr -4.200.000.
Hækkun á verkefni; Þorvaldsdalur uppgjör v. 2025, kr. 12.411.000.
Hækkun á verkefni; Þorvaldsdalur áætlun 2026, kr. 9.000.000.
Nýtt verkefni; Endurnýjun á dælu í ÁRS29, kr. 15.000.000.
Tekið út verkefni; Sameining borholuskúra; kr. -15.000.000.
Tekið út verkefni; Þak á hitaveitutanki Hamri; kr. -13.900.000.
Tekið út verkefni; Loftræsting á dælustöðvar; kr. - 8.000.000.
Lækkun á verkefni; Kaup á mælum; kr. - 8.000.000.

Búnaðarbeiðni á lið 47310-2810, kaup á Leica GPS staf kr. 3.950.000.
Alls breyting til lækkunar kr. -25.339.000.


Fráveita, liður 74200-11503; nettó breyting hækkun um kr. 19.500.000.
Lækkun á verkefni; Nýlagnir og endurnýjun lagana, kr. -1.000.000.
Nýtt verkefni; Framlenging útrásar á Hauganesi, kr. 18.000.000.
Nýtt verkefni; Endurnýjun stjórnbúnaðar, kr. 2.500.000.

Óðinn gerði grein fyrir ofangreindum viðaukabeiðnum veitna.

Óðinn vék af fundi kl. 15:57.

a)Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauki nr. 17 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Vatnsveitu hækki um kr. 9.500.000 nettó skv. ofangreindri sundurliðun, liður 44200-11606. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauka nr. 18 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Hitaveitu lækki um kr. 29.289.000 skv. ofangreindri sundurliðun, liður 48200-11607. Einnig samþykkir byggðaráð viðaukabeiðni að upphæð kr. 3.950.000 á lið 47310-2810 vegna búnaðarkaupa. Heildarviðaukinn nettó er því lækkun um kr. 25.339.000. Byggðráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauki nr. 18 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Fráveitu hækki um kr. 19.500.000 nettó skv. ofangreindri sundurliðun, liður 74200-11503. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.Frá framkvæmdasviði; Beiðni um viðauka vegna frístundalóða á Hamri

Málsnúmer 202604027Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 13. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna innviðauppbyggingar fyrir frístundalóðir á Hamri.Fram kemur að ekki var gert ráð fyrir innviðauppbyggingu á Hamri í fjarhagsáætlun 2026, en mikill vilji er til þess að ná að auglýsa lausar fleiri lóðir á svæðinu sem fyrst. Gert er ráð fyrir að hægt verði að auglýsa og úthluta 10 lóðum til viðbótar vestast á svæðinu auk þess að bæta aðkomu að tveimur lóðum sem nú þegar er búið að úthluta ef fjárheimild fæst.


Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4.500.000 á lið 32200-11900 vegna gatnagerðar á svæðinu og kr. 9.000.000 á lið 48200-11607 vegna lagningu á nýrri stofnæð hitaveitu frá borholunum að Hamri niður í nýja hverfið.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 32200-11900 hækki um kr. 4.500.000 og liður 48200-11607 hækki um kr. 9.000.000. Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umföllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

10.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Könnun vegna rammasamnings um Microsoft leyfi - minnsblað UT_teymis

Málsnúmer 202601038Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 10. mars sl., er varðar boð um þátttöku í rammasamningi vegna kaupa á hugbúnaðarleyfum frá Microsoft.Stafræna teymið kannar áhuga sveitarfélaga á að taka þátt í rammasamningi vegna Microsoft hugbúnaðarleyfa. Forsaga málsins er að rammasamningur ríkisins rennur út síðar í mánuðinum og sveitarfélögunum er boðið að taka þátt í nýjum samningi. Sveitarfélögum stendur til boða að fá rammasamning sem á að tryggja hagstæðari kjör til næstu 3-5 ára. Mörg sveitarfélög þurfi þessar vikurnar að taka ákvörðun um endurnýjun leyfa.

Þau sveitarfélög sem hafa áhuga á að taka þátt voru beðin að senda upplýsingar þess efnis eigi síðar en 17. mars sl.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað innanhúss frá kerfisstjóra Dalvíkurbyggðar fyrir hönd UT-teymis þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir því að UT-teymi samþykkti ekki að taka þátt.
Lagt fram til kynningar.

11.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202603151Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni nr. 21 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að deild 04210 hækki um kr. 1.098.805, deild 04240 hækki um kr. 291.626 og deild 05620 hækki um kr. 1454.805. Alls viðauki að upphæð kr. 1.536.236. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

12.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202105085Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

13.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202509123Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

14.Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um tækifærisleyfi

Málsnúmer 202604052Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn um tækifærileyfi frá Jóni S. Hreinssyni vegna dansleikjar þar sem dansaður verður Svarfdælskur Mars. Staðsetning: Rimar í Svarfaðardal, þann 18. apríl nk.
Fyrir liggur jákvæð umsögn frá slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 7. apríl sl.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreint leyfi verði veitt.

15.Frá Umboðsmanni barna; Sveitarstjórnarkosningar 2026

Málsnúmer 202604054Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Umboðsmanni barna, dagsett þann 13. apríl sl., þar sem fram kemur að Umboðsmaður hvetur sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga til þess að standa fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins. Umboðsmaður barna óskar eftir að fá upplýsingar um það hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið muni bregðast við þessari hvatningu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til Fræðslu- og menningarsviðs og Ungmennaráðs.

Fundi slitið - kl. 16:45.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs