Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um tækifærisleyfi

Málsnúmer 202604052

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1180. fundur - 16.04.2026

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn um tækifærileyfi frá Jóni S. Hreinssyni vegna dansleikjar þar sem dansaður verður Svarfdælskur Mars. Staðsetning: Rimar í Svarfaðardal, þann 18. apríl nk.
Fyrir liggur jákvæð umsögn frá slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 7. apríl sl.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreint leyfi verði veitt.