Skipulagsráð

45. fundur 11. mars 2026 kl. 14:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Freyr Antonsson, aðalmaður boðaði forföll og Júlíus Magnússon varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045

Málsnúmer 202302116Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045, unnin af Yrki arkitektum ehf.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að framlögð tillaga verði auglýst skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

2.Hinriksmýri Árskógssandi - umsókn um skipulagsbreytingar

Málsnúmer 202603054Vakta málsnúmer

Á fundi sveitarstjórnar þann 15.apríl 2025 var samþykkt að gerð yrði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um uppbygginu í tengslum við Bjórböðin (Ægisgötu 31) á Árskógssandi. Þá var jafnframt samþykkt að lóðum nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu yrði úthlutað til lóðarhafa Ægisgötu 31 án undangenginnar auglýsingar að loknum skipulagsbreytingum.
Nú er lögð fram skipulagslýsing fyrir deiliskipulag svæðisins, unnin af Snæ arkitektum og ASK arkitektum. í lýsingunni er gerð grein fyrir fyrirhugaðri uppbyggingu á svæðinu, sem felur m.a. í sér að framkvæmdasvæði kemur til með að ná yfir hluta af lóð nr. 37 við Öldugötu og óbyggt land Dalvíkurbyggðar, til viðbótar við lóðir nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulagsráð til við sveitarstjórn að hún samþykki að lóð nr. 37 við Öldugötu verði úthlutað til umsækjanda án undangenginnar auglýsingar, ásamt óútvísuðu landi Dalvíkurbyggðar skv. framlögðum gögnum, að loknum skipulagsbreytingum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Árskógssandur - breyting á aðalskipulagi vegna nýrrar íbúðabyggðar

Málsnúmer 202402088Vakta málsnúmer

Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna nýrrar íbúðarbyggðar á Árskógssandi lauk þann 2.mars sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá veitum Dalvíkurbyggðar, Rarik, Minjastofnun Íslands, Náttúrurverndarstofnun, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu eftir auglýsingu að gerð verði grein fyrir áhrifum á vistgerðir innan skipulagssvæðisins í greinargerð skipulagstillögunnar til samræmis við umsögn Náttúruverndarstofnunar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

4.Árskógssandur - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202303040Vakta málsnúmer

Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi nýrrar íbúðarbyggðar á Árskógssandi lauk þann 2.mars sl.
Ein athugasemd barst. Umsagnir bárust frá veitum Dalvíkurbyggðar, Rarik, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis á Árskógssandi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með breytingum eftir auglýsingu til samræmis við umsagnir Vegagerðarinnar, Rarik, Minjastofnunar Íslands og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
Skipulagsráð samþykkir að gata sem merkt er A-gata á skipulagsuppdrætti fái heitið Sólvallagata og gata sem merkt er B-gata fái heitið Árgata.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Árskógsvirkjun Þorvaldsdal - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 202501016Vakta málsnúmer

Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um vatnsaflsvirkjun í Þorvaldsdal lauk þann 24.febrúar sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá veitum Dalvíkurbyggðar, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirltii Norðurlands eystra, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun Íslands, Landsneti og Fiskistofu.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Árskógsvirkjun Þorvaldsdal - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202501017Vakta málsnúmer

Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi fyrir Árskógsvirkjun í Þorvaldsdal lauk þann 24.febrúar sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Veðurstofunni, Laxós ehf., veitum Dalvíkurbyggðar, Ferðafélagi Svarfdæla, Fiskistofu, Landsneti, Minjastofnun Íslands, landeigendum á Brattavöllum, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni og Náttúruverndarstofnun.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

7.Athafnasvæði í landi Ytri Haga - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202511032Vakta málsnúmer

Kynningu tillögu á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri Haga lauk þann 10.febrúar sl.
Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Landsneti, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Rarik, Náttúruverndarstofnun, veitum Dalvíkurbyggðar og Mílu.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að framlögð tillaga að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í landi Ytri Haga verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með lagfæringum til samræmis við umsögn Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

8.Skáldalækur ytri - umsókn um deiliskipulag fyrir frístundalóðir

Málsnúmer 202401038Vakta málsnúmer

Auglýsingu tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar i landi Skáldalækjar ytri lauk þann 23.nóvember sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, slökkviliði Dalvíkur, Rarik, Mílu og Vegagerðinni.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Skáldalækjar ytri skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með eftirfarandi breytingum eftir auglýsingu:
- götuheitinu Skáldalækjartröð og lóðanúmerum verði bætt inn á skipulagsuppdrátt.
- útlitsteikningar í stað byggingarnefndarteikninga skulu lagðar fyrir skipulagsráð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

9.Sjávarstígur 2 - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir sjólögn

Málsnúmer 202603058Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6.mars 2026 þar sem Ocean EcoFarm ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu bráðabirgðalagnar fyrir sjótöku út frá lóð nr. 2 við Sjávarstíg á Hauganesi.
Meðfylgjandi er framkvæmdalýsing.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

10.Sánavagn við Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 202602073Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6.mars 2026 þar sem Húni Húnfjörð sækir um stöðuleyfi fyrir sánavagni við Sandskeið.
Erindið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 3.mars sl. og var samþykkt af hálfu skipulagsráðs að umbeðið stöðuleyfi yrði veitt. Nú leggur umsækjandi fram tillögu að breyttri staðsetningu vagnsins.
Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við erindið og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

11.Snocrossbraut í Böggvisstaðafjalli

Málsnúmer 202603055Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5.mars 2026 þar sem Freyr Antonsson f.h. Miðgarðs akstursíþróttafélags sækir um leyfi til nýtingar æfingabrautar fyrir snjósleða neðan við Brekkusel.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

12.Hauganes - grjótflutningar í flæðarmáli

Málsnúmer 202603048Vakta málsnúmer

Framkvæmdasviði Dalvíkurbyggðar hefur borist ábending um að grjótflutningar hafi átt sér stað í fjöru neðan Fjörubaðanna á Hauganesi án leyfis frá sveitarfélaginu.
Ljóst er að umrædd framkvæmd er án framkvæmdaleyfis og jafnframt að ekki hefur verið gefið leyfi fyrir notkun á landi sveitarfélagsins í þessu tilviki. Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að setja málið í ferli með lögfræðingi sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

13.Frístundalóðir í landi Hamars

Málsnúmer 202503101Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa um lóðamál í landi Hamars, þar sem fram kemur m.a. listi yfir þær lóðir sem þegar hefur verið úthlutað og hvaða lóðir á eftir að stofna skv. gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið.
Lagt fram til kynningar.

14.Staða skipulagsmála

Málsnúmer 202603053Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa yfir stöðu skipulagsmála.
Lagt fram til kynningar.

15.Mánaðarlegar skýrslur 2026

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla fyrir málaflokk 09 fyrir janúar - febrúar 2026 varðandi stöðu bókhalds í samanburði við heimildir.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.

Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Freyr Antonsson, aðalmaður boðaði forföll og Júlíus Magnússon varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi