Sánavagn við Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 202602073

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 44. fundur - 03.03.2026

Erindi dagsett 12.febrúar 2026 þar sem Húni Húnfjörð sækir um stöðuleyfi til eins árs fyrir saunavagn við Sandskeið.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við erindið og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.


Skipulagsráð - 45. fundur - 11.03.2026

Erindi dagsett 6.mars 2026 þar sem Húni Húnfjörð sækir um stöðuleyfi fyrir sánavagni við Sandskeið.
Erindið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 3.mars sl. og var samþykkt af hálfu skipulagsráðs að umbeðið stöðuleyfi yrði veitt. Nú leggur umsækjandi fram tillögu að breyttri staðsetningu vagnsins.
Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við erindið og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.