Hauganes - grjótflutningar í flæðarmáli

Málsnúmer 202603048

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 45. fundur - 11.03.2026

Framkvæmdasviði Dalvíkurbyggðar hefur borist ábending um að grjótflutningar hafi átt sér stað í fjöru neðan Fjörubaðanna á Hauganesi án leyfis frá sveitarfélaginu.
Ljóst er að umrædd framkvæmd er án framkvæmdaleyfis og jafnframt að ekki hefur verið gefið leyfi fyrir notkun á landi sveitarfélagsins í þessu tilviki. Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að setja málið í ferli með lögfræðingi sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Framkvæmdaráð - 1. fundur - 15.04.2026

Skipulagsfulltrúi upplýsti um stöðu mála varðandi grjót sem sett var niður án heimildar í flæðarmálið neðan við Fjöruböðin.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 11.mars sl.
Lagt fram til kynnningar.