Byggðaráð

1179. fundur 09. apríl 2026 kl. 13:15 - 15:10 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitartjóri, tók þátt í fundinum í gegnum TEAMS.

1.Frá 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs; Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar - Endurskoðun 2026

Málsnúmer 202501029Vakta málsnúmer

Á 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13.mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Farið yfir drög að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar þar sem búið er að taka inn í hana áherslur nýsamþykkts deiliskipulgs fyrir þjóðveginn í gegn um Dalvík.
Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð vísar framlögðum drögum að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun inn í önnur fagráð sveitarfélagsins til umsagnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ofangreind tillaga að Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar ásamt fylgigögnum.
Byggðaráð samþykkir eftirfarandi ábendingar með 3 atkvæðum:
Að þriggja manna teymi verði ábyrgt fyrir umsjón með áætluninni í stað þess að einn starfsmaður verði tilnefndur tengiliður.
Að aðgerðaráætlunin þurfi að vera með skírskotun í gildandi starfs- og fjárhagsáætlun hverju sinni.
Að Framkvæmdaráð taki til skoðunar að Umferðaröryggisáætlunin verði birt íbúum til umsagnar.

2.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Tenging við Jónsbók

Málsnúmer 202603047Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 5. mars sl., þar sem Stafræna teymið kannar áhuga sveitarfélaga á að taka þátt í verkefninu „Jónsbók - tenging við skjalakerfi“. Í verkefninu felst að greina leiðir, kostnað og fýsileika þess að þróa tengingu milli skjalakerfa og Jónsbókar. Jónsbók er gervigreindarlausn sem er sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga (https://jonsbok.ai/is). Í þessum hluta er sveitarfélögum boðið að taka þátt í að gera greiningu á verkefninu. Afurð þessa hluta verkefnisins eru lýsingar og áætlanir um útfærslu.

Verkefnið er unnið eftir verkferli þróunarverkefna sem samstarf sveitarfélaga í stafrænum málum hefur skilgreint. Frekari upplýsingar um verkferil er að finna í meðfylgjandi gögnum.
Óskað er eftir áhugasömum sveitarfélögum til að taka þátt í og fjármagna frekari greiningu á verkefninu. Skilafrestur er 10. apríl nk.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti að UT-teymi sveitarfélagsins fundaði um ofangreint erindi og leggur teymið til að taka ekki þátt, a.m.k. að svo stöddu.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð taki ekki þátt í þessu verkefni.

3.Frá UT-teymi; Verksamningur um Hillu; viðaukabeiðni vegna skráningu lausafjármuna.

Málsnúmer 202603145Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til að innleiða skráningakerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins samstarfi við Advania. Vísað er til minnisblaðs kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis Dalvíkurbyggðar þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við Advania um þessa lausn á grundvelli verksamnings.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þá tillögu UT-teymis að gengið verði til samninga við Advania um skráningarkerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 13, þannig að liður 21400-4391 lækki um kr. 1.100.000 og liður 21400-4331 hækki um sömu fjárhæð á móti.
c) Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða með 3 atkvæðum að áformum um útboð á tryggingapakka sveitarfélagsins 2026, samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun 2026, verði frestað um eitt ár.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Frá UT_teymi; Tilkynningar með íbúakorti

Málsnúmer 202603146Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 636.450 vegna innleiðingu á stafrænu íbúakorti í gegnum veskislausn í BC frá Wise. Vísað er í meðfylgjandi minnisblað kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis þar sem þessi lausn er lögð til sem tilkynningakerfi til íbúa þannig að hægt verði að koma nauðsynlegum tilkynningum til íbúa fljótt og vel.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu um innleiðingu á íbúakorti í gegnum veskislausn frá Wise.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 14 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 21400-4338 hækki um kr. 111.600 og liður 21400-4331 hækki um kr. 524.850. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Frá UT-teymi; OneSystems; hýsing og oneCore

Málsnúmer 202604016Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem vísað er til meðfylgjandi minnisblað kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis þar sem fram kemur að lagt er til að farið verði með Onesystems mála- og skjalakerfið í hýsingu hjá Onesystems og keyptar verði þær uppfærslur sem tilgreindar eru í minnisblaðinu. Um er að ræða uppfærslu á OneCore sem er "léttari" útgáfa af skjala- og málakerfinu og nýtist m.a. vel í störfum starfsmanna skóla. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.975.526 við fjárhagsáætlun 2026 vegna þessa.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við OneSystems um hýsingu á mála- og skjalakerfi sveitarfélagsins sem og um þær uppfærslur sem hér að ofan greinir og samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 15, þannig að liður 21400-4338 hækki um kr 608.666 og liður 21400-4331 hækki um kr. 1.366.860. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa; Íþróttamiðstöð - gufuklefi

Málsnúmer 202411089Vakta málsnúmer

Frestað um viku.

7.Frá íþróttafulltrúa; Ósk um kaup á hljóðkerfi í íþróttamannvirki - viðaukabeiðni.

Málsnúmer 202603102Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 30. mars sl. og 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna kaupa á hljóðkerfi í Íþróttamiðstöð. Beiðnin kom fram við gerð fjárhagsáætlun 2026 en var hafnað. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 2.675.000. Fram kemur að ekki er metið svigrúm til lækkunar á öðrum liðum á móti.
Afgreiðslu frestað til næstu viku.

8.Samningur um bókhald- og launavinnslu- endurskoðun

Málsnúmer 202411012Vakta málsnúmer

Á 1173. fundi byggðaráðs þann 29. janúar sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráð fylgdi rafpóstur frá hjúkrunarframkvæmdastjóra Dalbæjar, dagsettur þann 20. janúar sl., þar sem fram kemur að stjórn Dalbæjar fór yfir og fjallaði um samninginn um bókhalds- og launavinnslu á fundi
sínum í gær.
Samningurinn var samþykktur með einni viðbót: Að h) liður bætist við þá liði skv 3. grein sem hægt er að semja um sérstaklega.
Sem sagt að Dalbær eigi þess kost að geta samið um þjónustu sérfræðings í mannauðs- og kjaramálum.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu einnig uppfærð samningsdrög þar sem tekið er tillit til ofangreindrar beiðni um þann möguleika að geta keypt þjónustu sérfræðings í mannauðs- og kjaramálum.
Til umræðu ofangreint.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samningsdrög með áorðnum breytingum fyrir og vísar þeim til stjórnar Dalbæjar til umsagnar og staðfestingar."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá hjúkrunarframkvæmastjóra Dalbæjar, dagsettur þann 7. apríl sl., þar sem fram kemur að stjórn Dalbæjar samþykkti á fundi sínum þann 25. mars sl. fyrirliggjandi samningi um bókhalds- og launavinnslu.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi verktakasamning um bókhalds- og launavinnslu og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar, með breytingu á lið 3.gr í samræmi við samþykkt stjórnar Dalbæjar er varðar aðgang að nýju mannauðs- og launakerfi og greiðslu á kostnaði vegna þess.

9.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Stefna um opinbera þjónustu

Málsnúmer 202603185Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 27. mars sl., þar sem fram kemur að um þó nokkurt skeið hefur verið í vinnslu að gefa út stefnu um opinbera þjónustu. Stefnan er unnin af fjármála- og
efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og eru drög að henni meðfylgjandi. Stöðumat og valkostir stefnunnar fóru í samráðsgátt fyrir jól og má sjá þá afurð, ásamt umsögnum, hér:Samráðsgátt
| Mál: S-216/2025.
Þjónustustefnan tekur til þjónustu bæði ríkis og sveitarfélaga.
Næsta skref er að vinna aðgerðaáætlun sem á að fylgja stefnunni. Sambandið hvetur sveitarfélög til að senda Sambandinu ábendingar um stefnuna og ábendingar um mögulegar aðgerðir.
Lagt fram til kynningar.

10.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202603201Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

Eyrún Ingibjörg vék af fundi undir þessum lið kl. 14:31 til annarra verkefna.

11.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202603187Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

12.Styrktarsjóður EBÍ 2026 - afgreiðsla umsóknar.

Málsnúmer 202601124Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Eignahaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 27. janúar sl., þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki úr styrktarsjóði EBÍ. Umsóknarfrestur er til febrúarloka. https://ebi.is/styrktarsjodur_reglur.html
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela stjórnendum og starfsmönnum þeirra málaflokka sveitarfélagsins sem úthlutunarreglurnar ná yfir að sameinast um eitt verkefni og að senda inn umsókn fyrir hönd
sveitarfélagsins. Umsóknin þarf að falla undir gildandi starfs- og fjárhagsáætlun."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi upplýsingar og gögn þar sem fram kemur að Dalvíkurbyggð fékk úthlutað styrk úr sjóðnum að upphæð kr. 400.000 vegna umsóknar sinnar um "Upplýsingaskilti við Bögg", sbr. svarbréf Styrktarsjóðs EBÍ frá 31.03.2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis; Til umsagnar 529. mál og 530. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202603180Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpostur frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dagsettur þann 24. mars 2026, þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir tvö mál til umsagnar:

* 529. mál; Lagareldi
* 530. mál; Lax- og silungsveiði o.fl. (bætt lagaumgjörð)

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 10. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.

14.Frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis; Til umsagnar 565. mál frá nefna- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202603179Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dagsettur þann 26. mars sl., þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 565.mál, verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 14. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.

15.Frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis;Til umsagnar 568. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202603186Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dagsettur þann 27. mars sl., þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 568. mál; Stofnun atvinnuveganna.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 15. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.

16.Frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis;Til umsagnar 582. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202603188Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dagsettur þann 30. mars sl., þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 16. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:10.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs