Byggðaráð

931. fundur 17. janúar 2020 kl. 10:00 - 13:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Guðmundur St. Jónsson formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
  • Felix Rafn Felixson varamaður
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Þórhalla Karlsdóttir, aðalmaður, boðaði forföll.
Felix Rafn Felixson, varamaður, sat fundinn í hennar stað.

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202001046Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

2.Vinnuhópur um húsnæðismál

Málsnúmer 202001027Vakta málsnúmer

Til kynningar fundargerð vinnuhóps um húsnæðismál frá 5. janúar 2020.
Tveimur liðum var vísað til frekari umfjöllun í byggðaráði:
a) Íbúðir í eigu sveitarfélagsins, staða.
b) Endurskoðun húsnæðisáætlunar.

a) Undir þessum lið mættu á fundinn Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri félagsmálasviðs og Íris Daníelsdóttir innheimtufulltrúi kl. 10:30.

Rætt um íbúðir í eigu sveitarfélagsins og stöðu á útleigu.

Eyrún og Íris viku af fundi kl. 11:00.
a) Byggðaráð samþykkir að tvær eignir verði auglýstar til sölu: Kirkjuvegur 12 og Brimnesbraut 35 þegar leigutími íbúðanna rennur út. Leitað verði til fasteignasölu um verðmat. Innheimtufulltrúa falið að fylgja málinu eftir.

b) Endurskoðun húsnæðisáætlunar verði tekin fyrir á næsta fundi byggðaráðs.

3.Umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020

Málsnúmer 201910144Vakta málsnúmer

Guðmundur St. Jónsson vék af fundi vegna vanhæfis kl. 11:15.

Undir þessum lið mætti Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi á fundinn kl. 11:15.

Til umræðu drög að sérreglum Dalvíkurbyggðar um byggðakvóta sem Atvinnumála- og kynningarráð samþykkti á fundi sínum 15. janúar sl. og vísaði til kynningar og umræðu í byggðaráði. Reglurnar eru unnar upp eftir samráð við hagsmunaaðila í sjávarútvegi í Dalvíkurbyggð í desember.

Íris vék af fundi kl. 11:30.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við drögin að sérreglum Dalvíkurbyggðar og vísar þeim með 2 atkvæðum til afgreiðslu í sveitarstjórn.

4.Fjölmenningarstefna Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201802053Vakta málsnúmer

Guðmundur St. Jónsson kom aftur inn á fundinn kl. 11:31.

Á 907. fundi byggðaráðs þann 16. maí 2019 var eftirfarandi samþykkt:
"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vinnu við Fjölmenningarstefnu Dalvíkurbyggðar verði haldið áfram og að vinnuhópurinn verði áfram skipaður Gunnþóri Eyfjörð Gunnþórssyni, forstöðumanni safna og þjónustu-og upplýsingafulltrúa."

Vinnuhópurinn hefur lokið störfum og með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að Fjölmenningarstefnu Dalvíkurbyggðar til kynningar.
Byggðaráð lýsir ánægju sinni með framkomna fjölmenningarstefnu og samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.

5.Afsláttur fasteignaskatts 2020 til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega

Málsnúmer 201912059Vakta málsnúmer

Á 929. fundi byggðaráðs þann 16. desember 2019 var til umfjöllunar drög að reglum um afslátt fasteignaskatts til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2020.
Sveitarstjóra var falið að vinna málið áfram og leggja aftur fyrir byggðaráð.

Með fundarboði fylgdu ný drög að reglunum og útreikningar þeim meðfylgjandi.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fram lagðar reglur um afslátt fasteignaskatts til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2020 og vísar þeim til afgreiðslu í sveitarstjórn.

6.Reglur um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka.

Málsnúmer 202001045Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að reglum um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka fyrir árið 2020. Um er að ræða óbreyttar reglur frá fyrra ári.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir reglurnar samhljóða með 3 atkvæðum, með breytingum sem gerðar voru á fundinum, og vísar þeim til afgreiðslu í sveitarstjórn.

7.Umsókn um tækifærisleyfi vegna þorrablóts í Árskógi

Málsnúmer 202001034Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 9. janúar 2020 þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um tækifærisleyfi fyrir þorrablót í Árskógi 8. febrúar 2020.

Fyrir liggur að byggingarfulltrúi og slökkviliðsstjóri gera ekki athugasemdir við umsóknina.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

8.Ósk um bílakaup fyrir fræðslu - og félagsmálasvið

Málsnúmer 201910010Vakta málsnúmer

Samkvæmt fjárhagsáætlun 2020 var áætlað að endurnýja bíl á félagsmála- og fræðslusviði.

Búið er að ganga frá kaupum á nýrri bifreið innan fjárhagsramma. Þá óska sviðsstjórar eftir því að fá að selja gömlu bifreiðina að undangenginni auglýsingu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila sölu á gömlu bifreiðinni að undangenginni auglýsingu. Söluandvirðið komi inn í viðauka til hækkunar á handbæru fé þegar salan er um garð gengin.

9.Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs. Ósk um viðauka vegna viðhalds á dráttarvél.

Málsnúmer 202001044Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs dags. 13. janúar 2020, þar sem hann óskar eftir viðauka vegna viðgerðar á dráttarvél eigna- og framkvæmdadeildar.
Byggðaráð samþykkir samljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 1/2020 við fjárhagsáætlun 2020 vegnar deildar 09510 lykill 4640 Eigna- og framkvæmdadeild, samtals kr. 500.000. Á móti komi til lækkunar á handbæru fé. Vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

10.Frá skólastjóra TÁT. Ósk um launaviðauka vegna veikinda starfsmanns.

Málsnúmer 202001053Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá skólastjóra Tónlistarskólans á Tröllaskaga dagsett 16. janúar 2019, ósk um launaviðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna veikinda starfsmanns.
Byggðaráð samþykkir samljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 2/2020 við fjárhagsáætlun 2020 vegna launa hjá deild 4540, Tónlistarskólinn á Tröllaskaga. Viðaukinn er kr. 655.689 í heild og er hlutur Dalvíkurbyggðar í þeirri hækkun um 52% á móti hlutdeild Fjallabyggðar. Á móti komi til lækkunar á handbæru fé. Vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

11.Kortlagning - Ný persónuverndarlögggjöf

Málsnúmer 201801129Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Bjarni Jóhann Valdimarsson, kerfisstjóri/tölvuumsjónarmaður, komu inn á fund byggðaráðs kl. 12:25.

Ofangreindir starfsmenn eru fulltrúar í vinnuhópi um persónuverndarstefnu Dalvíkurbyggðar og komu á fund byggðaráðs og kynna stöðu á vinnu hópsins.

Bjarni Jóhann vék af fundi kl. 12:50.

12.Þróunarvinna fyrir Menningarhúsið Berg

Málsnúmer 201911072Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kom á fund byggðaráðs og kynnti stöðu á vinnu þróunarhópsins fyrir Menningarhúsið Berg. Áætlað er að vinnuhópurinn ljúki störfum í lok janúar.

Gísli vék af fundi kl. 13:15.
Lagt fram til kynningar.

13.Beiðni um styrk til að efla neyðarvarnir í Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 202001003Vakta málsnúmer

Á 929. fundi byggðaráðs þann 9. janúar sl. var tekið fyrir erindi frá Eyjafjarðardeild Rauða krossins dagsett 19. desember 2019, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 2.000.000 króna til að efla neyðarvarnir í Dalvíkurbyggð.

Styrkurinn er ætlaður til búnaðarkaupa fyrir neyðarvarnakerru, þannig að á Dalvík verði fullnægjandi búnaður til að opna fjöldahjálparstöð. Búnaðarlisti kerrunnar fylgdi með erindinu.

Byggðaráð fól sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið og fyrirkomulag í nágrannasveitarfélögunum og lagði hann fram frekari upplýsingar um málið á fundinum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna erindinu. Ennþá er verið að vinna úr gögnum vegna óveðursins í desember og þar voru aðstæður mjög óvenjulegar fyrir Dalvíkurbyggð þar sem 50 manns voru á köldu svæði sem er ekki öllu jafna, í vinnubúðum við Dalvíkurhöfn. Því telur byggðaráð ekki tímabært að ráðast í kaup á slíkum búnaði að svo stöddu. Byggðaráð telur að kortleggja þurfi stærra svæði með tilliti til fjölda kerra og aðgengi að þeim t.d. Eyþings svæðið.

14.Fjárhagslegt stöðumat 2020

Málsnúmer 202001043Vakta málsnúmer

Til kynningar fjárhagslegt stöðumat málaflokka 2019 eftir að búið er að færa launakeyrslur desembermánaðar. Enn eru síðustu reikningar ársins að berast inn og unnið er að afstemmingum. Stefnt er að endurskoðunarvinnu fyrir ársreikning 2019 í febrúar.
Frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 13:30.

Nefndarmenn
  • Guðmundur St. Jónsson formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
  • Felix Rafn Felixson varamaður
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri