Umhverfisráð

305. fundur 11. maí 2018 kl. 08:15 - 10:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Marinó Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Guðrún Anna Óskarsdóttir boðaði forföll og engin varmaður kom í hennar stað.

1.Innsent erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur dags. 9.apríl 2018.

Málsnúmer 201804038Vakta málsnúmer

Undir þessum lið koma á fund ráðsins fyrir hönd Skíðafélagsins Óskar Óskarsson kl. 08:16.

Á 304. fundi umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar þann 12. apríl var eftirfarandi bókað
"Ráðið fresta afgreiðslu og óskar eftir fulltrúa frá skíðafélaginu á næsta fund ráðsins.
Ráðið felur þó sviðsstjóra að afgreiða lið 2 samkvæmt umræðum á fundinum".
Óskar Óskarsson vék af fundi kl. 09:02
Umhverfisráð þakkar Óskari fyrir upplýsingarnar og hvetur skíðafélagið til að senda erindi til Umhverfisstofnunar þar sem gerð er grein fyrir þeim áformum í landmótun sem farið var yfir og tilfærslu á efra húsi.

Samþykkt með fjórum atkvæðum.

2.Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð

Málsnúmer 201604102Vakta málsnúmer

Til kynningar stöðuskýrsla U&T jan-apríl 2018.
Lagt fram til kynningar.

3.Fyrirspurn um húsgrunn við Tréverk

Málsnúmer 201804006Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Níels Kristni Benjamínssyni og Ívari Breka Benjamínssyni, rafpóstur dagsettur þann 30. mars 2018, þar sem fram kemur fyrirspurn um hvort hægt sé að fá keyptan grunninn sem stendur við Tréverk og er í eigu Dalvíkurbyggðar. Grunnurinn var keyptur af Björgunarsveitinni á Dalvík árið 2009.
En á 304. fundi umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar þann 12. apríl var eftirfarandi bókað:
"Umhverfisráð óskar frekari upplýsinga um áætlanir fyrirspyrjenda fyrir næsta fund ráðsins.

En samkvæmt greinargerð með Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 kemur eftirfandi fram.
" Stefnt er að því að á reitnum verði byggð hús sem taki mið af stærð, formi og hlutföllum gömlu húsanna á svæðinu. Svæðið kemur einnig til greina fyrir aðflutt, gömul hús."
Ekki hefur verið unnið deiliskipulag á svæðinu".
Umhverfisráð getur að svo stöddu ekki úthlutað umræddri lóð þar sem fyrirhuguð bygging á iðnaðarhúsnæði er ekki í takt við gildandi skipulag. Umhverfisráð felur sviðsstjóra að ræða við umsækjanda um aðra möguleika fyrir iðnaðarhúsnæði.


Samþykkt með fjórum atkvæðum.

4.Ársreikningur HNE 2017

Málsnúmer 201804112Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, dagsettur þann 26. apríl 2018, þar sem meðfylgjandi er ársreikningur HNE vegna ársins 2017.
Lagt fram til kynningar.

5.Umsókn um uppsetningu á skilti við Samherja

Málsnúmer 201804054Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 11. apríl 2018 óskar Hanna Kristín Gunnarsdóttir, fyrir hönd Samherja Ísland ehf, eftir leyfi til að setja upp safnskilti.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.

Samþykkt með fjórum atkvæðum.

6.Umsókn um lóð við Sjávarbraut 7, Dalvík.

Málsnúmer 201805027Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 7. maí 2018 óskar Óskar Óskarsson, fyrir hönd Valeska ehf, eftir lóðinni Sjávabraut 7, Dalvík.
Umhverfisráð samþykkir að veita Valeska ehf. umbeðna lóð við Sjávarbraut 7, með vísan til gr. 3.4 í úthlutunarreglum Dalvíkurbyggðar.
Hér er um sérstakt tilvik að ræða sem veitir umhverfisráði heimild til úthlutunar án undangenginnar auglýsingar.

Samþykkt með fjórum atkvæðum.

7.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201805034Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 7. maí 2018 óskar Anton Örn Brynjarsson ( AVH), fyrir hönd Samherja Ísland ehf, eftir byggingarleyfi fyrir vinnubúðir samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð veitir umbeðið leyfi með fyrirvara um að öll gögn berist byggingarfulltrúa.

Samþykkt með fjórum atkvæðum.

8.Umsókn um byggingarleyfi fyrir vélaskemmu

Málsnúmer 201805036Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 3. maí 2018 óskar Sylvía Ósk Ómarsdóttir eftir byggingarleyfi fyrir vélageymslu samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.


Samþykkt með fjórum atkvæðum.

9.Minnkum förgunarkostnað

Málsnúmer 201804120Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Bjarka Jónssyni, fyrir hönd Skógarafurða ehf, vegna minnkunar á fögunarkostnaði.
Lagt fram til kynningar.

10.20 ára afmæli Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201801076Vakta málsnúmer

Umhverfisráð leggur áherslu á að sveitarfélagið sé vel snyrt og felur umhverfisstjóra að vinna að málinu í samráði við upplýsingafulltrúa.

11.Framkvæmdir og viðhald 2018 skv. starfs- og fjárhagsáætlun.

Málsnúmer 201801115Vakta málsnúmer

Til umræðu framkvæmdir sumarsins.
Undir þessum lið koma á fund ráðsins Valur Þór Hilmarsson kl. 10:40.
Valur Þór vék af fundi kl. 11:38.
Umhverfisráði líst vel á framlagðar hugmyndir umhverfisstjóra til að draga úr snjósöfnun við Hringtún. Ráðið felur umhverfsisstjóra að kynna þessar hugmyndir fyrir hagsmunaaðilum.
Ráðið leggur til að þeir fjármunir sem áætlaðir eru í viðgerðir á kantsteinum og gangstéttum verði að hluta nýttir til frágangs við Kirkjuveg 1-8, Dalvík.
Ráðið leggur til að vinna við deiliskipulag Laugahlíðarhverfis verði hafin sem fyrst.
Ráðið leggur til að skipulagsráðgjafi verði fenginn á næsta fund ráðsins vegna skipulagslýsingar Fólkvangsins. Í framhaldinu verði síðan haldinn íbúafundur vegna deiliskipulags Fólkvangsins.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

12.Breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028

Málsnúmer 201804095Vakta málsnúmer

Með rafpósti dags. 23.apríl 2018 óskar Íris Stefánsdóttir, fyrir hönd Fjallabyggðar, eftir umsögn vegna breytinga á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

13.Breyting á Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna íþróttasvæðis á Dalvík.

Málsnúmer 201801050Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 var auglýst 28. febrúar 2018. Athugasemdafrestur var frá 1. mars til 12. apríl. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfisráð leggur til að tillagan verði samþykkt og send til Skipulagsstofnunar, ásamt athugasemdum og umsögnum um þær, til staðfestingar.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

14.Deiliskipulag íþróttasvæðis

Málsnúmer 201708069Vakta málsnúmer

Tillaga að deiliskipulagi íþróttasvæðis Dalvíkur var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 28. febrúar 2018. Athugasemdafrestur var frá 1. mars til 12. apríl. Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir frá umsagnaraðilum voru án athugasemda.
Umhverfisráð samþykkir deiliskipulagsgögnin sem eru í formi greinagerðar og skipulagsuppdráttar og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 10:45.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Marinó Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs