Veitu- og hafnaráð

154. fundur 04. mars 2026 kl. 08:15 - 11:20 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Benedikt Snær Magnússon formaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson varaformaður
  • Silja Pálsdóttir aðalmaður
  • Sigvaldi Gunnlaugsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Óðinn Steinsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Óðinn Steinsson Verkefnastjóri þvert á svið
Dagskrá
Fundinn situr Stefán H. Steindórsson frá Norðurorku.


Í upphafi fundar óskaði formaður eftir því að bæta máli á dagskrá, mál nr. 202504090, niðurrif á vigtarskúr.

Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.

Gunnlaugur Svansson mætti ekki á fundinn og boðaði ekki forföll. Enginn mætti í hans stað.

1.Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal

Málsnúmer 202501060Vakta málsnúmer

Auður Agla Óladóttir og Sigurður Kristinsson frá ÍSOR sátu fundinn undir þessum lið.

Farið yfir stöðu rannsókna í Þorvaldsdal.
Samþykkt með fjórum atkvæðum að ÍSOR sé falið að taka saman gögn um þróun notkunar vatns í borholunum á Hamri og reikna til framtíðar. Einnig er Auði Öglu falið að koma því inn í vinnu við rannsóknir í Þorvaldsdal að kanna hvort tenging sé á milli kerfa í Birnunesborgum og í Þorvaldsdal.
Verkefnastjóra þvert á svið er falið að uppfæra þá samninga sem eru í gildi á milli Dalvíkurbyggðar og ÍSOR og leggja fyrir næsta fund ráðsins.

2.Djúpdælur HA-11 og ÁRS-32

Málsnúmer 202510062Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi minnisblað varðandi vinnslusvæði hitaveitu að Birnunesborgum.
Samþykkt með fjórum atkvæðum að fela Stefáni H. Steindórssyni að leita tilboða í að nýtt dæludýpi í ÁRS-29 verði um 100 metrar og nýjan dælustreng (rör) og rennslismæli sem mælir leiðni vatns.

Auður Agla og Sigurður frá ÍSOR yfirgáfu fundinn kl. 9:30

3.Framlenging á útrás fráveitu við Hauganes - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 202509024Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi nýtt minnisblað varðandi framkvæmdina við framlengingu á útrás fráveitu á Hauganesi.
Komið hefur í ljós að ekki hafa verið keyptur nægilegur fjöldi af sökkum og því þarf að kaupa fleiri, 4-6 stk. Samþykkt með fjórum atkvæðum að fela starfsmönnum framkvæmdasviðs að ganga frá pöntun. Leitað verði til verktaka um að hefja framkvæmdir fyrir sumarbyrjun.

4.Staða vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi

Málsnúmer 202602151Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum lágu annars vegar minnisblað um stöðu vatnsveitunnar á Árskógsströnd og hins vegar skýrsla frá ÍSOR um vatnsból í Krossafjalli og vatnsöflunarkosti á Árskógsströnd.
Samþykkt með fjórum atkvæðum að fela Stefáni H. Steindórssyni að vinna að áframhaldandi könnun á vatnsöflun á svæðinu og fá aðstoð sérfræðinga eftir þörfum. Staðan tekin að nýju á næsta fundi ráðsins.

5.Bakkavörn - vatnslögn í á - Bakki

Málsnúmer 202503019Vakta málsnúmer

Stefán H. Steindórsson frá Norðurorku og Óðinn Steinsson verkefnastjóri þvert á svið hjá Dalvíkurbyggð kynna stuttlega þær viðræður sem átt hafa sér stað nýlega við landeiganda um mögulegar varnir til tryggingar á kaldavatnslögn veitna Dalvíkurbyggðar er þverar Svarfaðardalsá.
Samþykkt með fjórum atkvæðum að fela starfsmönnum framkvæmdasviðs og Stefáni að vinna málið áfram.

6.Vatnstankur Upsa - Nýr tankur

Málsnúmer 202501059Vakta málsnúmer

Yfirferð tilboða er lokið af hálfu Faglausna og vinnuhóps um vatnstankinn. Niðurstaða kynnt á fundinum.
Lagt fram til kynningar.

7.Aðalfundur Samorku 2026

Málsnúmer 202602149Vakta málsnúmer

Fundarboð á aðalfund Samorku þann 25.mars nk.
Samþykkt með fjórum atkvæðum að Gunnar Kristinn sitji fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar.

8.Mánaðarlegar skýrslur 2026

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Björgvin Páll mætir á fundinn kl. 10:40 undir þessum lið.

Farið yfir skýrslu um rekstur hafna og veitna fyrir janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 202601120Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands af 479. fundi þann 19.janúar sl. og af 480. fundi þann 16.febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

10.Niðurrif á vigtarskúr

Málsnúmer 202504090Vakta málsnúmer

Björgvin Páll Hauksson fór yfir tilboð sem liggur fyrir í fjarvigtarbúnað fyrir Hafnir Dalvíkurbyggðar.
Björgvini Páli falið að hafa samband aftur við Vogir (tilboðsgjafa) til að óska eftir uppfærðu tilboði þar sem þjónustan er veitt í viðhaldsferð en ekki sér ferð.

Björgvin vék af fundi kl. 11:15.

Fundi slitið - kl. 11:20.

Nefndarmenn
  • Benedikt Snær Magnússon formaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson varaformaður
  • Silja Pálsdóttir aðalmaður
  • Sigvaldi Gunnlaugsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Óðinn Steinsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Óðinn Steinsson Verkefnastjóri þvert á svið