Staða vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi

Málsnúmer 202602151

Vakta málsnúmer

Veitu- og hafnaráð - 154. fundur - 04.03.2026

Fyrir fundinum lágu annars vegar minnisblað um stöðu vatnsveitunnar á Árskógsströnd og hins vegar skýrsla frá ÍSOR um vatnsból í Krossafjalli og vatnsöflunarkosti á Árskógsströnd.
Samþykkt með fjórum atkvæðum að fela Stefáni H. Steindórssyni að vinna að áframhaldandi könnun á vatnsöflun á svæðinu og fá aðstoð sérfræðinga eftir þörfum. Staðan tekin að nýju á næsta fundi ráðsins.

Veitu- og hafnaráð - 155. fundur - 15.04.2026

Á fundinn undir þessum lið mætir, á Teams, Árni Hjartarson frá ÍSOR og fer yfir stöðu vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi.

Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela Árna Hjartarsyni að kanna lindir í Upsa með vorinu. Verkefnastjóra þvert á svið er falið að finna gögn er varðar vatnsöflun í Þorvaldsdal sem til eru hjá vatnsveitu Dalvíkurbyggðar og Ísor.

Árni Hjartarson víkur af fundi kl. 8:45.