Umhverfisráð

327. fundur 27. september 2019 kl. 13:15 - 17:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson formaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
  • Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Júlíus Magnússon varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Eva Björg Guðmundsdóttir boðaði forföll og Júlíus Magnússon mætti í hennar stað.

1.Frá íbúum Túnahverfis - vegna fjárhagsáætlunar 2020

Málsnúmer 201909020Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá íbúum Túnahverfis með undirskriftarlista, dagsett þann 30. ágúst 2019. Þar er ítrekuð beiðni um að hafinn verði undirbúningur og vinna við frágang opna svæðisins/leiksvæðisins í hverfinu. Einnig að lokið verði við frágang og að umhirða hverfisins verði bætt. Íbúarnir árétta það sem komið hefur fram í fyrri bréfum að þeir vilja gjarnan leggja fram vinnu við standsetningu svæðisins í samstarfi við sveitarfélagið.
Umhverfisráð þakkar íbúum Túnahverfis fyrir greinargóða samantekt.

Opið svæði:
Ráðið leggur til að framkvæmdir við opið svæði verði á áætlun 2020 samkvæmt framkvæmdaáætlun ráðsins, og verði unnið í samstarfi við íbúa hverfisins.

Annar frágangur á hverfinu:
Göngustígur milli Miðtúns 1 og 3 er á framkvæmdaáælun 2019 og verður áfram malarstígur.
Göngustígur milli Hringtúns 3 og 5 er á framkvæmdaáætlun 2019 og verður áfram malarstígur.

Framlenging og malbikun á stíg upp úr Steintúni að Brekkuselsvegi:
Vísað til fjárhagsáætlunar 2021-2023.

Göngustígur milli Hringtúns 19 og 21:
Er á framkvæmdaáælun 2019 og verður áfram malarstígur.

Gangstétt framan við Hringtún 15 til 25:
Venjan er að endanlegur frágangur gangstétta fari ekki fram fyrr en búið er að byggja á viðkomandi lóðum, en Hrintún 23 er óbyggð lóð sem gert er ráð fyrir að byggt verði á árinu 2020, komi til þess verður gangstétt kláruð.

Malbikun fyrir framan Hringtún 3 og 5:
Verður framkvæmt á þessu ári.

Göngustígur milli Hringtúns 30 og 32:
vísað til fjárhagsáætlunar 2021-2023.

Lagfæring á malbiki á horni Hringtúns og Samtúns.
Verður framkvæmt á þessu ári.

Umhirða í hverfinu:
Umhverfisráð gerir ráð fyrir að þegar frágangi á opna svæðinu og framkvæmdum við göngustíga verður lokið muni umhirða svæðisins verða betri.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum












2.Fjárhagsáætlun 2020; Breyting á götu í Hamarslandi

Málsnúmer 201908034Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sigurði H. Pálssyni og Svanfríði Jónsdóttur, dagsett 28. júlí 2019, þar sem þau óska eftir að Dalvíkurbyggð taki inn á fjárhagsáætlun sína fyrir árið 2020 að gera lagfæringar á götu í frístundabyggðinni í landi Hamars, nánar tiltekið fyrir framan hús þeirra á lóð B5.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar

3.Fjárhagsáætlun 2020; beiðni um framlag vegna fjárfestinga og framkvæmda

Málsnúmer 201909006Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur, dagsett þann 1. september 2019, ósk um að fimm atriði komist á fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2020-2023:
1) Geymsluhúsnæði fyrir snjótroðara. 2) Lýsing Brekkuselsvegar að fólkvanginum. 3) Viðgerð á bílastæðum í fólkvanginum. 4) Töfrateppi (færiband) fyrir byrjendur og yngstu börnin. 5) Endurnýjun á snjótroðaranum. Fylgiskjöl með erindinu eru ítarleg greinargerð um málið með ítarlegri kostnaðar- og framkvæmdaáætlun.
Lið 2 og 3 var vísað til afgreiðslu umhverfisráðs.
Umhverfisráð þakkar skíðafélaginu innsend erindi.

Liður 2. Lýsing Brekkuselsvegar að fólkvanginum:
Í gildandi umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar er gert ráð fyrir götulýsingu á Brekkuselsvegi, en vegurinn er í umsjá Vegagerðarinnar. Ráðið hefur þegar komið þessari ábendinu á framfæri við Vegagerðina.

Liður 3. Viðgerð á bílastæðum í fólkvanginum:
Umhverisráð telur ekki þörf á að fara í þessa framkvæmd að sinni.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.


4.Beiðni um breytingu á gangstétt

Málsnúmer 201909030Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Lilju Guðnadóttur, dagsett 29. júlí 2019, ósk um breytingu á gangstétt við Skógarhóla 22.
Umhverfisráð leggur til að umbeðin breyting komi til framkvæmda 2020 og felur sviðsstjóra að fjármagna verkið af lið 10300-4396.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Gerðar verði viðunandi lagfæringar á gamla veginum út í Múla.

Málsnúmer 201909031Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Ferðafélagi Svarfdæla, dagsett 30. júní 2019, ósk um að Dalvíkurbyggð gangi í það mál að gerðar verði viðunandi lagfæringar á gamla veginum út í Múla.
Umhverfisráð þakkar ferðafélagi Svarfdæla innsent erindi og felur sviðsstjóra að sækja um styrk í styrkvegasjóð Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Umsjónarnefnd fyrir friðland í Svarfaðardal - Nýr fulltrúi

Málsnúmer 201909029Vakta málsnúmer

Til afgreiðslu tilnefning fulltrúa Dalvíkurbyggðar í umsjónarnefnd fyrir friðland Svarfdæla
Afgreiðslu frestað til næsta fundar

7.Ósk um umsögn vegna tillögu að samræmdri gjaldkrá byggingafulltrúaembætta

Málsnúmer 201909057Vakta málsnúmer

Til kynningar og umræðu drög að leiðbeiningum fyrir gjaldskrá byggingafulltrúaembætta
Umhverfisráði lýst vel á að samræma eigi gjaldskrár byggingafulltúa sveitarfélaga og gerir ekki athugasemdir við framlögð drög.

8.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201909089Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 17. september 2019 óska þau Berglind Björk Stefánsdóttir og Magnús Jónsson eftir byggingarleyfi vegna niðurrifs á íbúðarhúsi og geymslu að Hrafnsstöðum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

9.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201909090Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 12. september 2019 óskar Þór Gunnarsson fyrir hönd Skeljungs hf eftir byggingarleyfi við Öldugötu 18 á Árskógssandi vegna endurnýjunar á búnaði og endurbóta samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

10.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201807009Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 16. september 2019 óskar Guðmar Ragnar Stefánsson fyrir hönd Brúarsmiða ehf eftir framlengingu á byggingarleyfi við Gunnarsbraut 8, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðna framlengingu á byggingarleyfi í allt að sex mánuði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

11.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201909091Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 10. september 2019 óska þau Óskar Snæberg Gunnarsson og Jóhanna Kristín Arnþórsdóttir eftir byggingarleyfi fyrir smáhýsi á lóðinni Dælisskógur 1, Skíðadal.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

12.Umsókn um byggingarleyfi vegna stækkunar á golfskála ofl

Málsnúmer 201909093Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 18 september 2019 óskar Kristján E. Hjartarsson fyrir hönd golfklúbbsins Hamars eftir byggingarleyfi vegna stækkunar á golfskála samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

13.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201909094Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 11. september 2019 óskar Kristján E. Hjartarsson eftir byggingarleyfi fyrir hönd Steypustöðvarinnar Dalvík ehf. eftir byggingarleyfi fyrir steypustöð samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

14.Umsókn um breytingar á áður útgefnu byggingarleyfi við Hringtún 11

Málsnúmer 201810076Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 18. september 2019 óskar Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Tréverks ehf eftir samþykki á breytingum á Hringtúni 11 samkvæmt meðfylgjandi gögnum ásamt graftrarleyfi.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

15.Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna Hóla- og Túnhverfis

Málsnúmer 201905163Vakta málsnúmer

Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar var tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem gert er ráð fyrir að íbúðarsvæði 312-Íb stækki til norðurs yfir óbyggt svæði. Stækkunin nemur einni parhúsalóð. Skipulagsstofnun gerði athugasemd við fyrirhugaða málsmeðferð og er tillagan því tekin til afgreiðslu að nýju.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda uppfærða tillögu til Skipulagsstofnunar til athugunar.
Ráðið leggur til að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að fengnu áliti stofnunarinnar.

Samþykkt samhjóða með fimm atkvæðum

16.Breytingar á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis

Málsnúmer 201905162Vakta málsnúmer

Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar var tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfisins á Dalvík, Dalvíkurbyggð. Skipulagsstofnun benti á nokkur atriði sem taka þyrfti til skoðunar áður en fyrirhuguð deiliskipulagstillaga yrði auglýst og var uppfærð tillaga lögð fram.
Umhverfisráð leggur til að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa uppfærða deiliskipulagstillögu vegna Hóla- og Túnahverfisins skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhjóða með fimm atkvæðum

17.Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis og tæknisviðs 2020

Málsnúmer 201909135Vakta málsnúmer

Til umræðu starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs 2020
Sviðsstjóri fór yfir starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs.

18.Framkvæmdir umhverfis- og tæknisviðs 2020

Málsnúmer 201909134Vakta málsnúmer

Til umræðu framkvæmdir umhverfis- og tæknisviðs 2020
Farið var yfir tillögur að framkvæmdum ársins 2020.

Fundi slitið - kl. 17:45.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson formaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
  • Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Júlíus Magnússon varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs