Veitu- og hafnaráð

155. fundur 15. apríl 2026 kl. 08:15 - 11:40 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Benedikt Snær Magnússon formaður
  • Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson varaformaður
  • Gunnlaugur Svansson aðalmaður
  • Silja Pálsdóttir aðalmaður
  • Sigvaldi Gunnlaugsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Óðinn Steinsson
Fundargerð ritaði: Óðinn Steinsson Verkefnastjóri þvert á svið
Dagskrá
Fundinn situr Stefán H. Steindórsson frá Norðurorku.

1.Staða vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi

Málsnúmer 202602151Vakta málsnúmer

Á fundinn undir þessum lið mætir, á Teams, Árni Hjartarson frá ÍSOR og fer yfir stöðu vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi.

Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela Árna Hjartarsyni að kanna lindir í Upsa með vorinu. Verkefnastjóra þvert á svið er falið að finna gögn er varðar vatnsöflun í Þorvaldsdal sem til eru hjá vatnsveitu Dalvíkurbyggðar og Ísor.

Árni Hjartarson víkur af fundi kl. 8:45.

2.Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal

Málsnúmer 202501060Vakta málsnúmer

Á 154.fundi veitu- og hafnarráðs var eftirfarandi bókað:
Verkefnastjóra þvert á svið er falið að uppfæra þá samninga sem eru í gildi á milli Dalvíkurbyggðar og ÍSOR og leggja fyrir næsta fund ráðsins.

Fyrir fundinum liggja drög að endurnýjuðum samningum við Ísor ásamt yfirliti yfir þá samninga sem hafa verið gerðir undanfarin ár.

Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að Ísor ljúki sinni vinnu skv. þeim samningi um efnaeftirlit sem rann út í lok febrúar.
Verkefnastjóra þvert á svið falið að leggja fyrir næsta fund drög að heildarsamningi við Ísor þar sem tekið er á vinnslueftirliti og almennri þjónustu og ráðgjöf.

3.Aukinn umhverfislegur ávinningur af hreinsun skólps

Málsnúmer 202601009Vakta málsnúmer

Á 154.fundi veitu- og hafnaráðs var lagt fram til kynningar að óskað hefði verið eftir því við Eflu ehf. að útbúa minnisblað um áhrif nýrrar reglugerðar á fráveitu Dalvíkurbyggðar.

Nú liggur minnisblað Eflu fyrir og er til umræðu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að óska eftir að fulltrúi heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra mæti á næsta fund ráðsins til að ræða niðurstöður í minnisblaði Eflu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að vísa úrbótum á útrás og skólphreinsun á Árskógssandi til næstu fjárhagsáætlunargerðar.

4.Fjárfestingar og framkvæmdir 2026

Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer

Stefán H. Steindórsson og Óðinn Steinsson leggja fram viðauka vegna fjárfestinga ársins 2026, viðaukinn mun fara fyrir byggðaráð á nk. fimmtudag til afgreiðslu.
Stefán fór yfir viðauka vegna fjárfestinga.

5.Mánaðarlegar skýrslur 2026

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Farið yfir skýrslu um rekstur hafna og veitna fyrir janúar - mars 2026.
Lagt fram til kynningar

6.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202603201Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

7.Niðurrif á vigtarskúr

Málsnúmer 202504090Vakta málsnúmer

Á 154.fundi veitu- og hafnaráðs var Björgvini Páli að hafa samband við Vogir sem tilboðsgjafa til þess að óska eftir uppfærðu tilboði þar sem þjónustan er veitt í viðhaldsferð, en ekki sér ferð.

Björgvin Páll Hauksson og Leifur Harðarson starfsmenn hafnarinnar mættu til fundar kl. 10:15 og sátu undir lið 7 og 8.

Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að Vogir og lagnir komi í næstu þjónustuferð til að aftengja vigtunarbúnað og setja upp í stakstæðum skáp við vigtina.

8.Hafnarskúr, könnun á húsnæði

Málsnúmer 202406129Vakta málsnúmer

Til umræðu staðsetning á hafnarskúr, að leigja gám frá Stólpa stóð til í eitt til tvö ár.

a) á að kaupa gám/einingahús á grunn vigtarskúrs sem á að rífa og allar lagnir eru til staðar sem og bílavogin.
b) ný staðsetning þá hvar?

Björgvin Páll Hauksson og Leifur Harðarson véku af fundi kl. 11:30
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela starfsmönnum hafnarinnar að kanna hver kostnaður væri við kaup á þeim gámaeiningum sem eru nú þegar á leigu og koma með inn á næsta fund ráðsins.

9.Leiðbeiningar um afmörkun hafnasvæða

Málsnúmer 202603106Vakta málsnúmer

Leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela starfsmönnum hafnarinnar að koma með fyrir næsta fund ráðsins tillögur að afmörkun hafnarsvæða í Dalvíkurbyggð.

10.Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar - Endurskoðun 2026

Málsnúmer 202501029Vakta málsnúmer

Til umsagnar drög að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar. Á 41. fundi Umhverfis- og dreifbýlisráðs, þann 13. mars sl., var drögunum vísað til umsagnar í öðrum fagráðum sveitarfélagsins.

Áður tekið fyrir í byggðaráði þann 9. apríl sl. og í umhverfis- og dreifbýlisráði þann 13. mars sl.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að við vinnu við umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar verði sérstaklega hugað að öryggismálum við ferjubryggjur m.t.t. gangandi og akandi vegfarenda.

Fundi slitið - kl. 11:40.

Nefndarmenn
  • Benedikt Snær Magnússon formaður
  • Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson varaformaður
  • Gunnlaugur Svansson aðalmaður
  • Silja Pálsdóttir aðalmaður
  • Sigvaldi Gunnlaugsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Óðinn Steinsson
Fundargerð ritaði: Óðinn Steinsson Verkefnastjóri þvert á svið