Framkvæmdaráð

1. fundur 15. apríl 2026 kl. 14:00 - 15:21 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Júlíus Magnússon aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Kambhóll - umsókn um stækkun húss

Málsnúmer 202603117Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18.mars 2026 þar sem Eyrún Anna Finnsdóttir f.h. Bergmanna ehf. sækir um stækkun hússins Kambhóls við Karlsrauðatorg á Dalvík.
Fyrirhugað er að byggja viðbyggingu við íbúðar- og gistihús.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu. Í gildandi aðalskipulagi er lóðin á svæði fyrir íbúðarbyggð.
Rekstur íbúðar- og gistihúss samræmist ekki gildandi Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem umrædd lóð er á svæði sem skilgreint er sem íbúðarsvæði. Framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem lóðinni Kambhól verði breytt úr íbúðarsvæði í blandaða notkun íbúðarsvæðis / miðsvæðis.
Að mati framkvæmdaráðs er um óverulega breytingu að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin hefur hvorki í för með sér verulegar breytingar á landnotkun né er hún líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða stór svæði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.

2.Árskógssandur; fyrirspurn um notkun strandar fyrir kajakferðir

Málsnúmer 202603107Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13.mars 2026 þar sem Filip Polách sækir um leyfi til afnota af strandsvæði á Árskógssandi fyrir kajakferðir.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið.
Afgreiðslu stöðuleyfis fyrir kajaka er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Hauganes - grjótflutningar í flæðarmáli

Málsnúmer 202603048Vakta málsnúmer

Skipulagsfulltrúi upplýsti um stöðu mála varðandi grjót sem sett var niður án heimildar í flæðarmálið neðan við Fjöruböðin.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 11.mars sl.
Lagt fram til kynnningar.

4.Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 - umsagnarbeiðni

Málsnúmer 202603114Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18.mars 2026 þar sem Hörgársveit óskar umsagnar Dalvíkurbyggðar um nýtt Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044.
Umsagnarfrestur er veittur til 30.apríl 2026.
Framkvæmdaráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar - staða og framtíð

Málsnúmer 202401136Vakta málsnúmer

Á 388. fundi sveitarstjórnar þann 17. mars sl. var samþykkt samhljóða að vísa tillögu Kristins Boga Antonssonar um að auglýst verði nokkur almenn sumarstörf fyrir 18 ára og eldri hjá Eigna- og framkvæmdadeild í sumar til umræðu í framkvæmdaráði.
Fyrir fundinum lá minnisblað frá starfsmönnum Dalvíkurbyggðar þar sem lagt er til að störf fyrir 18 ára ungmenni verði auglýst laus til umsóknar sumarið 2026.
Framkvæmdaráð samþykkir tillögu um að störf fyrir 18 ára ungmenni verði auglýst laus til umsóknar skv. minnisblaði starfsmanna.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar - Endurskoðun 2026

Málsnúmer 202501029Vakta málsnúmer

Lögð fram til umsagnar drög að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar. Á 41.fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13. mars sl. var drögunum vísað til umsagnar í öðrum fagráðum sveitarfélagsins.
Framkvæmdaráð tekur undir bókun byggðaráðs frá 9.apríl sl. þar sem lagt er til að myndað verði þriggja manna teymi sem sjái um utanumhald með uppfærslu á umferðaröryggisáætlun hverju sinni.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

7.Ályktun tekin á fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands

Málsnúmer 202603200Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands dagsett 28.mars 2026.
Í ályktuninni mótmælir Skógræktarfélag Íslands fyrirhugaðri breytingu á viðmiðum um tilkynningarskyldu skógræktar úr 200 ha í 100 ha.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

8.Mánaðarlegar skýrslur 2026

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Lagðar fram skýrslur fyrir þá málaflokka sem heyra undir framkvæmdaráð varðandi stöðu bókhalds í samanburði við heimildir.

Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir byggingarfulltrúa 2026

Málsnúmer 202602035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 12.fundar dags. 27.mars 2026, með fullnaðarafgreiðslum erinda.
Lagt fram til kynningar.

10.Fundargerðir HNE 2026

Málsnúmer 202603070Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 246.fundar dags. 4.mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Fjárfestingar og framkvæmdir 2026

Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu helstu framkvæmdaverkefna ársins 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:21.

Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Júlíus Magnússon aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi