Umhverfis- og dreifbýlisráð

40. fundur 06. febrúar 2026 kl. 08:15 - 10:50 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
  • Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
  • Júlíus Magnússon aðalmaður
  • Eiður Smári Árnason aðalmaður
Starfsmenn
  • Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Helga Íris Ingólfsdóttir Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dagskrá
Óðinn Steinsson verkefnastjóri þvert á svið mætti á fundinn undir fyrstu tveimur málum á dagskrá.

1.Ósk um upplýsingar varðandi fjallgirðingasjóð

Málsnúmer 202601117Vakta málsnúmer

Á fundinn mættu þau Snorri Snorrason, Gitta Unn Ármannsdóttir og Jónas Þór Leifsson úr Fjallskilanefnd Árskógsstrandar til að fylgja eftir erindi sínu varðandi Fjallgirðingasjóð Árskógsstrandar. Nefndin hefur óskað eftir upplýsingum um sjóðinn og stöðu hans fyrir árin 2022-2025.
Umhverfis- og dreifbýlisráð felur starfsmönnum Framkvæmdasviðs að koma á formlegu samkomulagi við landeigendur á Árskógsströnd um Fjallgirðingasjóð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Snorri, Gitta og Jónas viku af fundi kl 08:50.

2.Drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra

Málsnúmer 202601085Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá SSNE, rafpóstur dagsettur þann 20. janúar sl., þar sem meðfylgjandi er erindi til sveitarfélaga ásamt lokadrögum að loftlagsstefnu Norðurlands eystra.

Fram kemur að á 79. stjórnarfundi SSNE, sem haldinn var 8. janúar s.l., voru meðfylgjandi drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra lögð fram, en starfshópur SSNE um sameiginlega loftslagsstefnu landshlutans hefur nú lokið störfum. Stjórn samþykkti að drögin yrðu send til umfjöllunar í sveitarstjórnum innan SSNE. Drögin eru því hér með send til umfjöllunar í sveitarstjórnum sveitarfélaga innan SSNE og er óskað eftir því að athugasemdir eða ábendingar berist SSNE í síðasta lagi þann 4. mars næstkomandi. Stefnt er að því að loftslagsstefnan verði staðfest á ársþingi SSNE sem haldið verður þann 26. mars næstkomandi.
Umhverfis- og dreifbýlisráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að Loftslagsstefnu á starfssvæði SSNE og leggur áherslu á að hún verði höfð til hliðsjónar við vinnslu fjárhagsáætlana næstu ára.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Óðinn vék af fundi kl 9:20

3.Mánaðarlegar skýrslur 2025

Málsnúmer 202502075Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstur þeirra málaflokka sem heyra undir ráðið fyrir allt árið 2025.

4.Framkvæmdir 2025

Málsnúmer 202501021Vakta málsnúmer

Farið yfir lokastöðu verkefna og framkvæmda ársins 2025.

5.Fjárfestingar og framkvæmdir 2026

Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer

Til umræðu fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun ársins 2026. Fyrirhugað er að halda opinn verktakafund í Bergi miðvikudaginn 11. febrúar þar sem helstu verkefni ársins verða kynnt.

6.Fyrirkomulag vegna greiðslna fyrir sérstaka söfnun sveitarfélaga árið 2026

Málsnúmer 202601123Vakta málsnúmer

Með rafpósti, dagsettum 27. janúar 2026, tilkynnir Úrvinnslusjóður að árið 2026 verði greitt mánaðarlega fyrir sérstaka söfnun sveitarfélaga á umbúðum úr pappa, plasti, gleri og málmi. Búið er að koma upp gagnagátt þar sem þjónustuaðilar skila inn söfnunargögnum frá sveitarfélaögum og mikilvægt að fylgst sé með því að þau berist.
Lagt fram til kynningar.

7.Efnistaka í landi Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202403123Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu á eftirliti með efnisnámum í landi Dalvíkurbyggðar og innheimtu gjalda fyrir efnisnám. Búið er að mæla upp námurnar og áætla magn þess efnis sem tekið hefur verið á árunum 2022-2024. Mælingarnar voru gerðar af COWI með drónamyndatöku.
Umhverfis- og dreifbýlisráð telur nauðsynlegt að efla enn frekar eftirlit með efnistökusvæðum í landi sveitarfélagsins. Innheimta gjalda fyrir efnistöku er í greinilegu ósamræmi við magnmælingar á efni í námunum. Ráðið felur deildarstjóra að kanna leiðir og kostnað við uppsetningu á myndavélakerfi á efnistöku- og efnislosunarsvæðunum.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.

8.Skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit

Málsnúmer 202512014Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum lágu skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit unnar af Skógræktarfélagi Eyfirðinga. Búið er að halda tvo kynningarfundi fyrir íbúa vegna framtíðaráætlana fyrir skógarreitina í nóvember sl.
Umhverfis- og dreifbýlisráð gerir ekki athugasemdir við framlagðar skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit og leggur áherslu á að þær verði hafðar til hliðsjónar við vinnslu fjárhagsáætlana næstu ára.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

9.Fundargerðir HNE 2025

Málsnúmer 202502085Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 245. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 17. desember 2025.

Fundi slitið - kl. 10:50.

Nefndarmenn
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
  • Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
  • Júlíus Magnússon aðalmaður
  • Eiður Smári Árnason aðalmaður
Starfsmenn
  • Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Helga Íris Ingólfsdóttir Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar