Umhverfis- og dreifbýlisráð

41. fundur 13. mars 2026 kl. 08:15 - 09:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
  • Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
  • Júlíus Magnússon aðalmaður
  • Eiður Smári Árnason aðalmaður
  • Emil Júlíus Einarsson varamaður
Starfsmenn
  • Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Helga Íris Ingólfsdóttir Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dagskrá

1.Mánaðarlegar skýrslur 2026

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu þeirra málaflokka sem heyra undir ráðið.

2.Fjárfestingar og framkvæmdir 2026

Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu á helstu fjárfestingum og framkvæmdum ársins 2026.

3.Meðhöndlun, geymsla og flutningur raftækjaúrgangs

Málsnúmer 202602058Vakta málsnúmer

Með rafpósti, dagsettum 11. febrúar 2026, vill Úrvinnslusjóður koma því á framfæri til þeirra sem meðhöndla úrgang að meðhöndlun raftækja er vandasöm og að um hana gilda reglur sem settar eru fram í reglugerð um raf- og rafeindatækjaúrgang nr. 1061 frá 2018. Þeir aðilar sem taka á móti þessum úrgangi eru beðnir um að kynna sér reglurnar vel.
Lagt fram til kynningar.

4.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029

Málsnúmer 202602141Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum lá minnisblað Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem farið var yfir stöðu á útboði snjómoksturs og hálkuvarna 2026-2029. Búið er að semja við ráðgjafa vegna vinnu við útboðið og stefnt á auglýsingu í apríl.
Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir framlagða tillögu deildarstjóra um að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes hins vegar. Þetta fyrirkomulag hefur verið á þjónustunni undanfarin ár og gefist vel.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar - Endurskoðun

Málsnúmer 202501029Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar þar sem búið er að taka inn í hana áherslur nýsamþykkts deiliskipulgs fyrir þjóðveginn í gegn um Dalvík.
Umhverfis- og dreifbýlisráð vísar framlögðum drögum að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun inn í önnur fagráð sveitarfélagsins til umsagnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Efnistaka í landi Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202403123Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

7.Fjallgirðing Upsir (Svæði) og Upsir (Hóll)

Málsnúmer 202408030Vakta málsnúmer

Árið 2024 var gerður verksamningur við GÞ verktaka vegna endurnýjunar og færslu á fjallgirðingunni við Upsir og Hól/Svæði. Í ljós hefur komið að tilfærsla á girðingunni er ekki fýsileg í ljósi krafna um fornleifaskráningu á fyrirhuguðu girðingarstæði.
Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til að samningi við GÞ verktaka verði rift á grundvelli breyttra forsenda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 09:45.

Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
  • Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
  • Júlíus Magnússon aðalmaður
  • Eiður Smári Árnason aðalmaður
  • Emil Júlíus Einarsson varamaður
Starfsmenn
  • Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Helga Íris Ingólfsdóttir Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar