Aukinn umhverfislegur ávinningur af hreinsun skólps

Málsnúmer 202601009

Vakta málsnúmer

Veitu- og hafnaráð - 153. fundur - 04.02.2026

Tekin fyrir fréttatilkynning frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem fram kemur að ráðherra hefur staðfest reglugerð um fráveitur og skólphreinsun sem ætlað er að auka umhverfislegan ávinning af hreinsun skólps.

https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&newsid=33abf427-ea2f-11f0-b898-005056bcde1f

Óskað hefur verið eftir því við Eflu ehf. að útbúa minnisblað um áhrif nýrrar reglugerðar á fráveitu Dalvíkurbyggðar.

Lagt fram til kynningar.

Veitu- og hafnaráð - 155. fundur - 15.04.2026

Á 154.fundi veitu- og hafnaráðs var lagt fram til kynningar að óskað hefði verið eftir því við Eflu ehf. að útbúa minnisblað um áhrif nýrrar reglugerðar á fráveitu Dalvíkurbyggðar.

Nú liggur minnisblað Eflu fyrir og er til umræðu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að óska eftir að fulltrúi heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra mæti á næsta fund ráðsins til að ræða niðurstöður í minnisblaði Eflu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að vísa úrbótum á útrás og skólphreinsun á Árskógssandi til næstu fjárhagsáætlunargerðar.