Veitu- og hafnaráð

153. fundur 04. febrúar 2026 kl. 08:15 - 10:15 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Benedikt Snær Magnússon formaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson varaformaður
  • Gunnlaugur Svansson aðalmaður
  • Silja Pálsdóttir aðalmaður
  • Sigvaldi Gunnlaugsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
  • Óðinn Steinsson
  • Björgvin Páll Hauksson
Fundargerð ritaði: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Fundinn situr Stefán H. Steindórsson frá Norðurorku.

1.Aukinn umhverfislegur ávinningur af hreinsun skólps

Málsnúmer 202601009Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fréttatilkynning frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem fram kemur að ráðherra hefur staðfest reglugerð um fráveitur og skólphreinsun sem ætlað er að auka umhverfislegan ávinning af hreinsun skólps.

https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&newsid=33abf427-ea2f-11f0-b898-005056bcde1f

Óskað hefur verið eftir því við Eflu ehf. að útbúa minnisblað um áhrif nýrrar reglugerðar á fráveitu Dalvíkurbyggðar.

Lagt fram til kynningar.

2.Útrás hreinsistövar á Hauganesi

Málsnúmer 202411005Vakta málsnúmer

Það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að framlengja þarf útrás fráveitu á Hauganesi, það stóð til að framkvæmdinni myndi ljúka í haust en af því varð ekki. Skipta þarf út eldra stálröri sem endar í flæðamálinu og leggja nýja lögn sem tengist innan við sjóvarnargarðinn. Garðinn þarf að rjúfa til þess að koma lögninni út.
Á fundinum var lagt fram minnisblað sem þeir Stefán H. Steindórsson og Óðinn Steinsson unnu. Framkvæmdir við útrásina eru áætlaðar í lok apríl, byrjun maí, fer eftir veðri.
Lagt fram til kynningar.

3.Umsókn um styrk til fráveituframkvæmda

Málsnúmer 202511158Vakta málsnúmer

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir. Einnig framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts en rannsóknir hafa sýnt að megnið af örplastmengun berst til sjávar með ofanvatni. Meðal skilyrða fyrir að fráveituframkvæmd teljist styrkhæf er að kostnaður hafi fallið til eftir 1. janúar 2020. Kostnaður við útboð, fjármagns- og lántökukostnaður og kaup á löndum og lóðum vegna framkvæmda í fráveitumálum teljast ekki styrkhæf. Sama gildir um hefðbundið viðhald og endurbætur á eldri fráveitukerfum. Þó eru endurbætur á eldri kerfum styrkhæfar ef tilgangurinn með endurbótunum er að kerfin standist gildandi kröfur laga og reglugerða.

Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til og með 9. febrúar 2026.
Dalvíkurbyggð mun sækja um styrk vegna framkvæmda við útrás á Hauganesi og ástandsmat fráveitulagna í Dalvíkurbyggð. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.

Óðinn vék af fundi kl. 8:48

4.Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal

Málsnúmer 202501060Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur skýrsla, dagsett 6.janúar sl., Hitastigulsholur í Þorvaldsdal - Niðurstöður hitamælinga.
Stefán H. Steindórsson fór yfir helstu niðurstöður.
Veitu- og hafnaráð minnir á að mikilvægt er að ganga frá samningi við Norðurorku vegna þessa verkefnis sem allra fyrst og minnir á bókun ráðsins frá 144.fundi þess þann 5.febrúar 2025.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fá Auði Öglu og Sigurveigu inn á næsta fund ráðsins.

5.ESB-styrkir til að efla áfallaþol í boði fyrir íslensk orku- og veitufyrirtæki

Málsnúmer 202601082Vakta málsnúmer

Evrópusambandið hefur opnað fyrir umsóknir um styrki, samtals allt að 15 milljónum evra úr Internal Security Fund (ISF) til að styðja við innleiðingu CER-tilskipunarinnar (Critical Entities Resilience). Markmiðið er að auka áfallaþol mikilvægra innviða, gegn ýmiskonar fjölþáttaógnum og kerfislægum truflunum .
Ísland er fullgilt þátttökuland í þessu ferli, og bæði opinberir aðilar og einkarekin orku- og veitufyrirtæki hér á landi geta sótt um þessa styrki og tekið þátt í verkefnum.
Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 31. mars 2026, kl. 17:00 CET. Mat umsókna fer fram í apríl og maí og tilkynnt um niðurstöður í júní 2026.

Fram kemur í auglýsingu að mikilvægt sé talið og raunar nánast skilyrði að umsækjendur séu ekki einir á báti. Mælt er með því að þeir séu í alþjóðlegu samstarfi (consortium) með:

minnst 3 - 4 aðilum,

frá að minnsta kosti tveimur EES/EU-ríkjum,

þar sem a.m.k. einn aðili er í ESB-ríki .
Stofnanir ESB geta ekki verið meðal umsækjenda.

ISF - CER styrkjakerfið er raunhæfur og öflugur fjármögnunarfarvegur fyrir íslensk orku- og veitufyrirtæki til að:

auka öryggi og áfallaþol ómissandi innviða,

undirbúa sig fyrir strangari EES-kröfur,

byggja upp samevrópskt samstarf um vernd orkukerfa.

Lagt fram til kynningar.

6.Framboð til stjórnar Samorku

Málsnúmer 202601086Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur tölvupóstur þar sem kallað er eftir tilnefningum í stjórn.

Að beiðni stjórnar Samorku óskar tilnefningarnefnd eftir því að aðildarfélagar sem hyggjast tilnefna aðila í stjórn tilnefni fleiri en einn aðila og af ólíkum kynjum til að gefa tilnefningarnefnd kost á að stilla upp sem fjölbreyttustum hópi til stjórnar.

Óskað er eftir tilnefningum eigi síðar en 10. febrúar n.k.
Lagt fram til kynningar.


Björgvin Páll Hauksson kom til fundar kl. 9:15

7.Mánaðarlegar skýrslur 2025

Málsnúmer 202502075Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir stöðu á rekstri veitna og hafna frá janúar til desember 2025.
Lagt fram til kynningar.

8.Fjárfestingar, framkvæmdir, viðhald og skipulagsmál 2025 skv. fjárhagsáætlun

Málsnúmer 202501021Vakta málsnúmer

Lagt fram og farið yfir á fundinum fjárfestingar, framkvæmdir og viðhald á árinu 2025 á höfnum og veitum.
Lagt fram til kynningar.

Stefán H. Steindórsson vék af fundi kl. 9:39

9.Viðræður um inngöngu í Hafnasamlag Norðurlands

Málsnúmer 202506144Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgir skýrsla Vegagerðarinnar um ástandskoðun hafnamannvirkja í Eyjafirði og drög að greiningu HLH ráðgjafar vegna viðræðna um sameiningu Hafna Dalvíkurbyggðar og Hafnasamlags Norðurlands.

Viðræðuhópur á vegum Dalvíkurbyggðar mun funda um skýrslurnar fimmtudaginn 5.febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.

10.Framtíðin og íslenskar hafnir

Málsnúmer 202601065Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur skýrsla "Framtíðin og íslenskar hafnir" en samantektin byggir á niðurstöðum vinnustofu Hafnasambands Íslands sem haldin var í Ólafsvík haustið 2025.
Lagt fram til kynningar.

11.Niðurrif á vigtarskúr

Málsnúmer 202504090Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu málsins.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fela Björgvini Pál að koma með tillögur að búnaði til þess að hægt sé að nota vogir áfram þegar hafnarskúr verður rifinn.

12.Hafnasambandsþing 2026

Málsnúmer 202601074Vakta málsnúmer

Hafnasambandsþing Hafnasambands Íslands verður haldið haldið í Stapa í Reykjanesbæ 22.-23. október 2026.
Aðildarhafnir eru hvattar til þess að ganga tímanlega frá bókun í hótelgistingu.
Veitu- og hafnaráð felur sveitarstjóra að bóka gistingu fyrir tvo vegna þingsins. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.

13.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025

Málsnúmer 202502012Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands, af 476.fundi þann 22.október 2025, af 477.fundi 18.nóvember 2025 og af 478.fundi 3.desember 2025.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Nefndarmenn
  • Benedikt Snær Magnússon formaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson varaformaður
  • Gunnlaugur Svansson aðalmaður
  • Silja Pálsdóttir aðalmaður
  • Sigvaldi Gunnlaugsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
  • Óðinn Steinsson
  • Björgvin Páll Hauksson
Fundargerð ritaði: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri