Evrópusambandið hefur opnað fyrir umsóknir um styrki, samtals allt að 15 milljónum evra úr Internal Security Fund (ISF) til að styðja við innleiðingu CER-tilskipunarinnar (Critical Entities Resilience). Markmiðið er að auka áfallaþol mikilvægra innviða, gegn ýmiskonar fjölþáttaógnum og kerfislægum truflunum .
Ísland er fullgilt þátttökuland í þessu ferli, og bæði opinberir aðilar og einkarekin orku- og veitufyrirtæki hér á landi geta sótt um þessa styrki og tekið þátt í verkefnum.
Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 31. mars 2026, kl. 17:00 CET. Mat umsókna fer fram í apríl og maí og tilkynnt um niðurstöður í júní 2026.
Fram kemur í auglýsingu að mikilvægt sé talið og raunar nánast skilyrði að umsækjendur séu ekki einir á báti. Mælt er með því að þeir séu í alþjóðlegu samstarfi (consortium) með:
minnst 3 - 4 aðilum,
frá að minnsta kosti tveimur EES/EU-ríkjum,
þar sem a.m.k. einn aðili er í ESB-ríki .
Stofnanir ESB geta ekki verið meðal umsækjenda.
ISF - CER styrkjakerfið er raunhæfur og öflugur fjármögnunarfarvegur fyrir íslensk orku- og veitufyrirtæki til að:
auka öryggi og áfallaþol ómissandi innviða,
undirbúa sig fyrir strangari EES-kröfur,
byggja upp samevrópskt samstarf um vernd orkukerfa.