Umhverfisráð

296. fundur 13. október 2017 kl. 08:15 - 11:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Heiða Hilmarsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Karl Ingi Atlason boðaði forföll og í hans stað mætti Heiða Hilmarsdóttir

1.Fjárhagsáætlun 2018; aukið fjárframlag

Málsnúmer 201709012Vakta málsnúmer

Á 295. fundi umhverfisráðs var eftirfarandi bókað
'Umhverfisráð leggur til að forsvarsmenn golfklúbbsins verði boðaðir á fund umhverfisráðs þar sem farið verði yfir innsent erindi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.'

Á fund ráðsins mættu kl. 08:15 undir þessum lið fyrir hönd golfklúbbsins þau Bjarni Valdimarsson og Indíana Ólafsdóttir.
Bjarni og Indíana véku af fundi kl 08:52.
Umhverfisráð sér ekki fyrir sér að breyta núverandi Aðalskipulagi til að koma fyrir nýjum golvelli né að nýta Fólkvanginn sem þegar hefur verið hafnað í íbúakönnun. Þau svæði sem voru til umræðu eru 405-íb og 407-Ó sem ætluð eru til framtíðarnota fyrir þéttbýli. Þar er ekki heimilt að ráðstafa landi á þann hátt að hindri nýtingu landsins undir byggð síðar.
Á fundinum kom einnig fram að stjórn golfklúbbsins Hamars hafi á síðasta stjórnarfundi tekið ákvörðun um að fara í uppbyggingu og endurbætur á Arnarholtsvelli.

2.Fjárhagsáætlun 2018: endurnýjun og/eða viðhald á stoðvegg á lóðarmörkum við Hafnarbraut 16 og 18

Málsnúmer 201708036Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Herberti Hjálmarssyni, Guðrúnu F. Skarphéðinsdóttur, Hólmfríði A. Gísladóttur og Júlíusi Baldurssyni, dagsett þann 4. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir að stoðveggur á lóðamörkum við Hafnarbraut verði endurnýjaður og/eða honum viðhaldið.

Á 295. fundi umhverfisráðs var erindinu frestað þar til fullnægjandi gögn lágu fyrir.
Eftir umræður á fundinum var tekin ákvörðun um að óska eftir lögfræðiáliti á því hver ábyrgð sveitarfélagsins er í málinu.

3.Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð

Málsnúmer 201604102Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar mánaðarleg stöðuskýrsla.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn.

4.Umsókn um aðgang og afnot af Stórhólstjörn

Málsnúmer 201710010Vakta málsnúmer

Til umræðu innsent erindi frá 27. september 2017 þar sem Júlíus Magnússon óskar eftir aðgangi og afnotum af Stórhólstjörn. Einnig til kynningar afstaða og ábendingar UST vegna málsins.
Samkvæmt 6. gr. friðlýsingarskilmála svæðisins er óheimilt að trufla dýralíf í fólkvanginum. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið getur þó veitt undanþágu frá reglunum, sbr. 9. gr. skilmálanna, að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og umhverfisráðs Dalvíkur, gangi það ekki gegn markmiðum friðlýsingarinnar.
Umhverfisráð beinir því til umsækjanda að afla ofangreindrar undanþágu ásamt umsögnum áður en ráðið tekur umsóknina til afgreiðslu.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

5.Punktar frá íbúafundi á Árskógssandi þann 11. september 2017.

Málsnúmer 201710013Vakta málsnúmer

Til kynningar minnispunktar umhverfisstjóra frá íbúafundi á Árskógssandi 11. september síðastliðinn.
Ráðið þakkar innsent erindi sem haft verður til hliðsjónar við starfsáætlanir næstu ára.

6.Fundargerðir 2017

Málsnúmer 201703070Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð HNE frá 7. september 2017.
Lagt fram til kynningar

7.Fundargerðir 2017

Málsnúmer 201703070Vakta málsnúmer

Til kynningar fundargerð HNE frá 2. október síðastliðnum.
Lagt fram til kynningar

8.Deiliskipulag Hóla og Túnahverfis, Dalvík

Málsnúmer 201710029Vakta málsnúmer

Deiliskipulag íbúðarbyggðar í Hóla- og Túnahverfi, Dalvík.

Lögð fram drög að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Hóla- og Túnahverfi á Dalvík ásamt greinagerð.

Guðrún Anna Óskarsdóttir vék af fundi undir þessum lið kl. 10:20



Umhverfisráð felur sviðsstjóra að koma með nýja tillögu samkvæmt umræðum á fundinum.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

9.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201709023Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags 11. október 2017 óska Guðmundur A Sigurðsson og Þórey Tulinius eftir byggingarleyfi við Böggvisbraut 20, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð óskar eftir að umbeðin byggingaráform verði grenndarkynnt eftirfarandi nágrönnum:
Skógarhólar 29A, 30 og 32.
Í framhaldi af því er sviðsstjóra falið að veita umbeðið leyfi ef athugasemdir gefa ekki tilefni til breytinga.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

10.Varðandi Baldurshagareitinn

Málsnúmer 201709172Vakta málsnúmer

Guðrún Anna Óskarsdóttir kom aftur inn á fundinn kl. 10:42.

Til kynningar bréf frá fyrrverandi garðyrkustjóra dags.26. september 2017 vegna Baldushagsreits.
Umhverfisráð þakkar fyrrverandi garðyrkjustjóra fyrir innsent erindi.

11.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201710027Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 10.10.2017 óskar Sigurður Jónsson eftir byggingarleyfi að Ölduhæð í landi Skáldalækjar-ytri samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu og felur sviðsstjóra að boða slökkvilisstjóra á næsta fund ráðsins til að fara yfir málið.

12.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201710028Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 10.10.2017 óskar Filippía S Jónsdóttir eftir byggingarleyfi að Sæbakka í landi Skáldalækjar-ytri samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu og felur sviðsstjóra að boða slökkvilisstjóra á næsta fund ráðsins til að fara yfir málið.

13.Umsókn um lóð

Málsnúmer 201709046Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 6. september 2017 óskar Guðmundur Valur Stefánsson fyrir hönd Laxós ehf eftir lóðinni Öldugata 31, Árskógssandi.
Umhverisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

14.Umsókn um lóðirnar Sjávarbraut 3 og 5 við Dalvíkurhöfn.

Málsnúmer 201710033Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 6. október 2017 óskar Guðmundur Nikulásson fyrir hönd Eimskipafélags Íslands Hf eftir lóðunum Sjávarbraut 3 og 5 við Dalvíkurhöfn í skiptum fyrir Sjávarbraut 2 sem þegar hefur verið úthlutað öðrum aðila.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur svisstjóra að gera lóðarleigusamninga við umsækjanda.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

15.Sandskeið 31, umsókn um stækkun lóðar.

Málsnúmer 201708034Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 18. ágúst 2017 óskar Hallgrímur Hreinsson fyrir hönd Dalverks eignarhaldsfélags ehf eftir stækkun á lóðinni við Sandskeið 31 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Á 293. fundi umhverfisráðs var umsókn um stækkun á lóðinni Sanskeið 31 frestað.
Umhverfisráð getur ekki fallist á umbeðna stækkun á lóð þar sem stækkun lóðarinnar til austur fer inn í Friðland Svarfdæla og stækkun til norðurs inn á fyrirhugað vegstæði/göngustíg.
Ráðið felur sviðsstjóra að ræða við umsækjanda um nánari útfærslu á fyrirhuguðum afnotum og leggja fram tillögu að samkomulagi um afnot af svæði til norðurs um 13 metra.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 11:45.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Heiða Hilmarsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs