Byggðaráð

1171. fundur 08. janúar 2026 kl. 13:15 - 15:10 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit

Málsnúmer 202512014Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Ingólfur Jóhannsson og Bergsveinn Þórsson frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga og kynntu skógræktaráætlun fyrir Bögg og Brúárhvammsreit. Þeir héldu tvo kynningarfundi fyrir íbúa vegna framtíðaráætlana fyrir skógarreitina, annan í Menningarhúsinu Bergi og hinn í Félagsheimilinu Árskógi, laugardaginn 8.nóvember 2025. Í lok funda var boðið upp á gönguferð um skógarreitina.

Ingólfur og Bergsveinn viku af fundi kl. 14:14.
Byggðaráð þakkar þeim Ingólfi og Bergsveini fyrir góða kynningu.
Lagt fram til kynningar.

2.Skíðafélagið óskar eftir styrk til kaupa á töfrateppi

Málsnúmer 202512066Vakta málsnúmer

Skíðafélag Dalvíkur óskar eftir styrk um 10.000.000 kr til kaupa og uppsetningar á töfrateppi í aðstöðu félagsins í Böggvistaðafjalli. Fram kemur í erindinu að styrktaraðili að verkefninu sé fundinn og með umræddum styrk frá Dalvíkurbyggð er framkvæmdin að fullu fjármögnuð. Umræddur styrkur Dalvíkurbyggðar var samþykktur á árinu 2023, en á 1077.fundi byggðaráðs þann 24.ágúst 2023 var eftirfarandi bókað:
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð er tilbúið að koma með krónu á móti hverri þeirri krónu sem Skíðafélagið safnar í styrki fyrir Töfrateppið en þó að hámarki kr. 10.000.000.
Skíðafélag Dalvíkur endurvekur hér með beiðni sína frá árinu 2023.

Þá hefur verið send inn umsókn fyrir framkvæmdaleyfi og á 40.fundi skipulagsráðs þann 12.nóvember 2025 var eftirfarandi bókað:
Erindi dagsett 10.nóvember 2025 þar sem Hörður Elís Finnbogason f.h. Skíðafélags Dalvíkur sækir um framkvæmdaleyfi fyrir landmótun og uppsetningu færibands á skíðasvæðinu á Dalvík. Meðfylgjandi eru framkvæmdalýsing og leyfi Náttúruverndarstofnunar.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að styrkja Skíðafélag Dalvíkur um allt að kr. 10.000.000 til kaupa á töfrateppi á árinu 2026. Íþróttafulltrúa er falið að útbúa viðaukabeiðni og leggja fyrir næsta fund byggðaráðs.

3.Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 20252026 - Árskógssandur - Dalvík - Hauganes - Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 202512087Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi erindi frá Innviðaráðuneytinu, dagsett þann 18.desember 2025 þar sem gert er grein fyrir úthlutun byggðakvóta innan Dalvíkurbyggðar. Samtals er eftirfarandi til ráðstöfunar fiskveiðiárið 2025/2026: Árskógssandur 37,358 þorskígildistonn, Dalvík 26,757 þorskígildistonn. Hauganes 15 þorskígildistonn. Þess er óskað að sveitarstjórnir sem ekki hafa fyrirhugað að senda ráðuneytinu tillögur að sérreglum sendi ráðuneytinu staðfestingu um slíkt. Í þeim tilvikum þar sem þess er óskað að leggja fram tillögur að sérreglum er sveitarstjórn gefinn kostur á að senda ráðuneytinu tillögur til 19.janúar nk.

Jafnframt fylgdu með fundarboði byggðaráðs upplýsingar um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga innan Dalvíkurbyggðar fyrir síðustu 5 fiskveiðiár.

Sveitarstjóri hefur óskað eftir fresti til þess að skila inn tillögum að sérreglum til 21.janúar nk.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þá tillögu að sérreglur Dalvíkurbyggðar fyrir úthlutun byggðakvóta verði óbreyttar á milli ára. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.

4.Tilboð í rekstur tjaldsvæðis

Málsnúmer 202503086Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur uppsögn á samningi vegna rekstar tjaldsvæðis á Dalvík frá Draumablá ehf. á grundvelli 12.gr. samningsins, án fyrirvara og meintra vanefnda Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð staðfestir móttöku á uppsögn samningsins og leggur til að auglýst verði eftir nýjum rekstraraðila. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.

5.Ósk um auka stöðugildi á Kötlukoti í Árskógarskóla

Málsnúmer 202601005Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra þar sem óskað er eftir heimild til þess að auglýsa í 100% starf við Kötlukot.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila leikskólastjóra að auglýsa starfið laust til umsóknar og óskar eftir því að fá viðaukabeiðni inn á næsta fund ráðsins.

6.Vatnstankur Upsa - Nýr tankur

Málsnúmer 202501059Vakta málsnúmer

Á 382.fundi sveitarstjórnar þann 16.september 2025 var eftirfarandi bókað:
Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir þá tillögu að þeim tveimur tilboðum sem bárust vegna útboðs á vatnstanki Upsa verði hafnað þar sem tilboðin eru langt yfir kostnaðaráætlun. Einnig samþykkir sveitarstjórn samhljóða að verkefnið verði boðið út að nýju og að vinnuhópurinn yfirfari útboðslýsinguna.

Vinnuhópur um nýjan vatnstank við Upsa tók málið fyrir á fundi sínum þann 18.desember 2025 og leggur áherslu á að verkið verði boðið út í byrjun janúar.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærð útboðsgögn sem segja að verkið "Vatnstankur við Upsa" verði boðin út föstudaginn 9.janúar nk.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi útboðsgögn og að útboð verði auglýst á morgun 9.janúar. Frestur til þess að skila tilboðum verði til kl. 11:00 þann 3.febrúar nk.

7.Leiðbeiningar um skil fjárhagsáætlana og útkomuspá sveitarfélaga

Málsnúmer 202512063Vakta málsnúmer

Ákveðið hefur verið að Samband íslenskra sveitarfélaga mun taka að sér söfnun fjárhagsáætlana og útkomuspá sveitarfélaga en þetta hlutverk var áður í höndum Hagstofu Íslands. Er hér um að ræða fyrsta skrefið í þeirri breytingu sem er að eiga sér stað á rekstri Upplýsingaveitu sveitarfélaga sem er sameiginlegur gagnagrunnur Sambandsins, Hagstofu Íslands, Innviðaráðuneytis og Fjármála- og efnahagsráðuneytis.
Lagt fram til kynningar.

8.Til allra sveitarfélaga Breyting á 4. gr. fylgiskjals I við reglugerð nr. 1212-2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga

Málsnúmer 202512091Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi bréf frá Innviðaráðuneytinu til framkvæmdastjóra og fjármálastjóra allra sveitarfélaga vegna reglugerðar um breytingu á 4. gr. fylgiskjals I við reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, ásamt afriti af reglugerðinni sem send verður til birtingar í Stjórnartíðindum á næstu dögum.

Reglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Erindi til sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar um þátttöku í Farsældarráði Norðurlands eystra

Málsnúmer 202509084Vakta málsnúmer

Á 383.fundi sveitarstjórnar þann 4.nóvember 2025 var samþykktur samhljóða með 7 atkvæðum samstarfssamningur um svæðisbundið Farsældarráð.

Með fundarboði fylgdu stofnskjöl ráðsins til að tryggja að öll aðildarsveitarfélög og þjónustuveitendur ríkisins sem aðild eiga að ráðinu hafi sömu gögn aðgengileg í sínu skjalakerfi.
Lagt fram til kynningar.

10.Umsagnarbeiðni tækifærisleyfi - Umf. Þorsteinn Svörfuður vþorrablóts að Húsabakka

Málsnúmer 202601004Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 5.janúar sl., þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um þorrablót að félagsheimilinu Rimum 31.janúar nk. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi jákvæð umsögn slökkviliðsstjóra.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreind leyfi sé veitt með fyrirvara um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.

11.Endurskoðun húsnæðisáætlana 2026

Málsnúmer 202510025Vakta málsnúmer

Á 1170.fundi byggðaráðs þann 11.desember 2025 var frekari umfjöllun og afgreiðslu á húsnæðisáætlun Dalvíkurbyggðar frestað til þessa fundar.

Með fundarboði fylgdu drög að húsnæðisáætlun og eiga sveitarstjórnir að vera búnir að staðfesta endurskoðun á þeim fyrir 20.janúar nk., áður þarf það senda hana til yfirferðar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi húsnæðisáætlun og vísar henni til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.

12.Haustfundur ALNEY 4.desember 2025

Málsnúmer 202512050Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi fundargerð haustfundar Almannavarnarnefndar Norðulands eystra (ALNEY) frá 4.desember 2025. Í lið 7 er rekstaráætlun 2026, þar er lagt til að framlag sveitarfélaga verði kr. 230 á hvern íbúa 2026.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlag Dalvíkurbyggðar til ALNEY fyrir árið 2026, gert er ráð fyrir þessu þessu framlagi í fjárhagsáætlun 2026.

13.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

Málsnúmer 202502019Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 990 frá 5.desember 2025 og nr. 991 frá 12.desember 2025.
Lagt fram til kynningar.

14.Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegsfyrirtækja 2025

Málsnúmer 202502067Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 92 frá 21.nóvember 2025 og nr. 93 frá 10.desember 2025.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:10.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri