Umhverfisráð

290. fundur 15. maí 2017 kl. 16:00 - 19:15 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá

1.Kynning á fyrirhuguðu hátæknifrystihúsi á Dalvík

Málsnúmer 201705105Vakta málsnúmer

Til kynningar fyrirhuguð bygging Samherja á hátæknifrystihúsi við Dalvíkurhöfn.

Á fundinn komu kl. 16:00 þau Birkir Baldvinsson, Gestur Geirsson, Atli Dagsson og Fanney Hauksdóttir.
Ráðið þakkar kynninguna.

Birkir Baldvinsson, Gestur Geirsson, Atli Dagsson og Fanney Hauksdóttir véku af fundi kl. 16:30.

2.Umhirða við Sandskeið og aðliggjandi svæði

Málsnúmer 201606020Vakta málsnúmer

Til umræðu umhirða á lóðum við Sandskeið og nærliggjandi svæði.

Undir þessum kom á fundinn Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri kl. 16:32.
Umhverfisráð felur umhverfisstjóra að hrinda í framkvæmd hreinsunarátaki við Sandskeið í samráði við Heilbrigðiseftirlitið.

Fjarlægð verði númerslaus ökutæki og aðrir lausamunir sem ekki eru í almennri notkun.

Einnig óskar ráðið eftir að lausamunir á lóð sveitarfélagsins milli Sandskeiðs 21 og 27 verði fjarlægðir.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

3.Kvörtun vegna umgengni á lóðum

Málsnúmer 201704049Vakta málsnúmer

Með innsendum rafpósti dags 5. apríl 2017 óskar Gunnar Aðalbjörnsson fyrir hönd eigenda að Sognstúni 2 og Hafnarbraut 4 eftir aðkomu sveitarfélagsins vegna umgengni á nærliggjandi lóðum.
Umhverfisstjóri upplýsti ráðið að lóðarhafa að Hafnarbraut 2a hafi þegar verið sent bréf þar sem honum er veittur 15 daga frestur til aðgerða. Verði ekkert að gert mun umhverfisstjóri framkvæma hreinsun á kostnað eiganda. Einnig hefur verið rætt við lóðarhafa nærliggjandi lóða sem þegar hafa gripið til aðgerða.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

4.Umferðarmerkingar_2017

Málsnúmer 201705116Vakta málsnúmer

Umhverfis- og tæknideild leggur til eftirfarandi breytingar á umferð á Dalvík til að auka umferðaröryggi í bænum.



Skíðabraut: sett verði þrenging í Skíðabraut til móts við Mímisveg. Markmiðið er að draga úr hraða ökutækja sem koma inn í bæinn og jafnframt til að auka öryggi íbúa við hús sem næst standa götu. Meðfylgjandi eru tillögur Vegagerðar um þrengingu.



Mýrargata: afnuminn verði hægri réttur úr Mýrargötu inn á Grundargötu og sett biðskylda inn á Grundargötu.



Flæðarvegur: afnuminn verði hægri réttur af Flæðavegi inn á Grundargötu og sett biðskylda inn á Grundargötu.



Stórhólsvegur: afnuminn verði hægri réttur úr Stórhólsvegi inn á Svarfaðarbraut og sett biðskylda á Stórhólsveg inn á Svarfaðarbraut.
Ráðið leggur til að við Skíðabraut verði sett þrenging til móts við Mímisveg. Við Mýrargötu afnuminn verði hægri réttur úr Mýrargötu inn á Grundargötu og sett biðskylda inn á Grundargötu.

Við Flæðarveg verði afnuminn hægri réttur af Flæðavegi inn á Grundargötu og sett biðskylda inn á Grundargötu.

Sviðsstjóra falið að auglýsa breytingarnar lögformlega.

Einnig óskar ráðið eftir því að lögreglan verði boðuð á næsta fund ráðsins til frekari yfirferðar um umferðarmerkingar í sveitarfélaginu.

Samþykkt með fimm atkvæðum.



5.Nature reserve kayak adventure

Málsnúmer 201611101Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 15. nóvember 2016 óskar Freyr Antonsson fyrir hönd Artic Sea Tours eftir leyfi til starfrækja kayak ferði á Svarfaðardalsá samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Á 285. fundi ráðsins þann 2. desember 2016 var eftirfarandi bókað.

Umhverfisráði líst vel á hugmyndina en áður en leyfi er gefið út óskar ráðið eftir að umsækjandi afli umsagna frá friðlandsnefnd Friðlands Svarfdæla og Veiðifélagi Svarfaðardalsár.

Einnig óskar ráðið eftir upplýsingum um hvort fyrirhugað sé að vera með aðstöðu á svæðinu og ef svo er, hvar verður hún þá staðsett?

Lög fram umsögn veiðifélags Svarfaðardalsár dags. 27. febrúar 2017 og friðlandsnefndar dags. 21. apríl 2017 vegna umsóknar Artic Sea Tours.
Umhverfisráð leggur til að umrætt leyfi verði ekki veitt þar sem umsagnir voru samhjóða um að hafna umsókninni.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

6.Framkvæmdir U&T 2017

Málsnúmer 201705135Vakta málsnúmer

Til umræðu framkvæmdir sumarsins 2017
Til umræðu og frekari útfærslu breytingar á framkvæmdaráætlun 2017.

Samþykkt með fimm atkvæðum



Valur Þór vék af fundi kl. 18:16

7.Fundargerðir 2017

Málsnúmer 201703070Vakta málsnúmer

Til kynningar fundargerð HNE frá 1. febrúar og 8. mars ásamt ársreikningi.
Lagt fram til kynningar.

8.Ljóti andarunginn - leyfi til sýningarhalds og styrkbeiðni

Málsnúmer 201705096Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 09.maí 2017 óskar leikhópurinn Lotta eftir leyfi til sýningarhalds þann 1. ágúst 2017 og eins er sótt um styrk samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi, en vísar styrkumsókn til byggðarráðs.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

9.Umsókn um byggingarleyfi fyrir nýtt fjós að Búrfelli, Svarfaðardal.

Málsnúmer 201705103Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags.11. maí 2017 óskar Guðrún Marinósdóttir eftir byggingarleyfi fyrir fjós að Búrfelli, Svarfaðardal.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

10.Skipulag í landi Snerru, Svarfaðardal

Málsnúmer 201701034Vakta málsnúmer

Deiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 29. mars 2017 með athugasemdafresti til 10. maí 2017. Engin athugasemd barst á auglýsingatíma.
Umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

11.Umsókn um lóð við Aðalbraut 14, Árskógssandi.

Málsnúmer 201705104Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 24. apríl 2017 óskar Jón Geir Árnason eftir lóðinni Aðalbraut 14, Árskógssandi.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur svisstjóra að veita umbeðið leyfi.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

12.Umsókn um lóð að Hringtúni 25, Dalvík.

Málsnúmer 201704085Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 20. apríl 2017 óska þau Kjartan Hjaltason og Nanna Hinriksdóttir eftir lóðinni Hringtún 25, Dalvík.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur svisstjóra að veita umbeðið leyfi.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

13.Umsókn um lóð að Hrigntúni 32

Málsnúmer 201705132Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 15. maí 2017 sækir Óskar Þór Óskarsson eftir lóðinni Hringtún 32, Dalvík.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

14.Umsókn um lóð við Böggvisbraut 20

Málsnúmer 201705083Vakta málsnúmer

Með innsendur erindi dags. 8. maí 2017 óskar Guðmundur A Sigurðsson eftir lóðinni Böggvisbraut 20, Dalvík.
Þar sem tvær umsóknir bárust um lóðina Böggvisbraut 20 var dregið úr spilastökk samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins. Báðir umsækjendur voru boðaðir á fundinn, en Guðmundur A Sigurðsson mætti ekki og dró nefndarmaður í hans stað. Einar Ísfeld Steinarsson dró hærra spil og hlýtur því lóðina.

Haukur A Gunnarsson og Guðrún Anna Óskarsdóttir véku af fundi kl. 18:50.

Samþykkt með þremur atkvæðum.

15.Umsókn um lóð við Böggvisbraut 20

Málsnúmer 201705106Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 11. maí 2017 óskar Einar Ísfeld Steinarsson eftir lóðinni Böggvisbraut 20, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Þar sem tvær umsóknir bárust um lóðina Böggvisbraut 20 var dregið úr spilastökk samkvæmt úthlutunarreglum sveitarfélagsins.Báðir umsækjendur voru boðaðir, en Guðmundur A Sigurðsson mætti ekki og dró nefndarmaður í hans stað. Einar Ísfeld Steinarsson dró hærra spil og hlýtur því lóðina.

Samþykkt með þremur atkvæðum.



Haukur A Gunnarsson og Guðrún Anna Óskarsdóttir komu aftur inn á fundinn kl. 19:15.

Fundi slitið - kl. 19:15.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs