Umsókn um byggingarleyfi fyrir nýtt fjós að Búrfelli, Svarfaðardal.

Málsnúmer 201705103

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 290. fundur - 15.05.2017

Með innsendu erindi dags.11. maí 2017 óskar Guðrún Marinósdóttir eftir byggingarleyfi fyrir fjós að Búrfelli, Svarfaðardal.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.

Samþykkt með fimm atkvæðum.