Umhverfisráð

285. fundur 02. desember 2016 kl. 08:15 - 09:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Kristín Dögg Jónsdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Marinó Þorsteinsson

1.Beiðni um umsögn, undanþága frá ákvæðum friðlýsingar

Málsnúmer 201610055Vakta málsnúmer

Til kynningar umsögn vegna undanþágu frá ákvæðum friðlýsingar vegna fyrirhugaðrar brúargerðar við Hánefsstaðarreit.
Lagt fram til kynningar.

2.Nature reserve kayak adventure

Málsnúmer 201611101Vakta málsnúmer

Með innsendi erindi dags. 15. nóvember 2016 óskar Freyr Antonsson fyrir hönd Artic Sea Tours eftir leyfi til starfrækja kayak ferði á Svarfaðardalsá samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráði líst vel á hugmyndina en áður en leyfi er gefið út óskar ráðið eftir að umsækjandi afli umsagna frá friðlandsnefnd Friðlands Svarfdæla og Veiðifélagi Svarfaðardalsár.

Einnig óskar ráðið eftir upplýsingum um hvort fyrirhugað sé að vera með aðstöðu á svæðinu og ef svo er, hvar verður hún þá staðsett?

3.Friðland Svarfdæla Verndar- og stjórnunaráætlun 2017-2026

Málsnúmer 201611002Vakta málsnúmer

Til kynningar drög að verndar- og stjórnunaráætlun fyrir Friðland Svarfdæla frá Umhverfisstofnun dags. 03. nóvember 2016.
Umhverfisráði Dalvíkurbyggðar líst vel á drögin og gerir ekki athugasemdir.

4.Deiliskipulag fyrir jörðina Skáldalæk ytri, Svarfaðardal.

Málsnúmer 201606032Vakta málsnúmer

Deiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 12. nóvember 2016 með athugasemdafresti til 25. nóvember 2016. Engin athugasemd barst á auglýsingatíma.
Umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum

5.Losun og geymsla á hænsnaskít við Ytra-Holt.

Málsnúmer 201612001Vakta málsnúmer

Til umræðu losun og geymsla á hænsnaskít í námu við Ytra-Holt.
Þar sem náman við Ytra-Holt er ekki viðurkenndur urðunarstaður getur umhverfisráð ekki sætt sig við að náman sé notuð sem slík. Matfugli ber að finna varanlega lausn á losun hænsnaskíts frá sínum rekstri.

Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar leggur áherslu á að við endurnýjun á starfsleyfi frá HNE verði gerðar skýrar kröfur um meðhöndlun á úrgangi frá starfseminni.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 09:45.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs