Sveitarstjórn

391. fundur 05. júní 2026 kl. 13:00 - 14:31 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Magni Þór Óskarsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
  • Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
  • Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Helgi Einarsson, starfsaldursforseti, boðaði fundinn og fór með fundarstjórn þar til forseti sveitarstjórnar var kjörinn skv. 7. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar.

Engar athugasemdir við fundarboð eða fundarboðun.

Starfsaldursforseti óskaði heimildar til að bæta við máli á dagskrá, mál nr. 202605164, liður 31, og var það samþykkt samhljóða.

1.Úrslit sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí 2026

Málsnúmer 202605176Vakta málsnúmer

Helgi Einarsson gerði grein fyrir úrslitum sveitarstjórnarkosninganna í Dalvíkurbyggð samkvæmt greinargerð frá kjörstjórn Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 19.05.2026, um úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Dalvíkurbyggð þann 16. maí 2026.

A-listi Byggðarlistinn hlaut 134 atkvæði, 12,5% hlutfall atkvæða og 1 fulltrúa kjörinn.
B-listi Framsóknar og óháðra hlaut 165 atkvæði, 15,4% hlutfall atkvæða og 1 fulltrúa kjörinn.
D-listi Sjálfstæðisflokks hlaut 257 atkvæði, 24,1% hlutfall atkvæða og 2 fulltrúa kjörna.
K-listi Dalvíkurbyggðar hlaut 512 atkvæði, 47,9% hlutfall atkvæða og 3 fulltrúa kjörna.

Á kjörskrá voru 1.475, greidd atkvæði voru 1.103 og kosningaþátttaka því 74,8%.
Gildir atkvæðaseðlar voru 1.068 eða 96,8%. Auðir seðlar voru 27 eða 2,4% af greiddum atkvæðum. Ógildir seðlar (en ekki auðir) voru 8 eða 0,7% af greiddum atkvæðum.

Kjörstjórn hefur sent út tilkynningu til aðal- og varamanna sem kjörnir hafa verið í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 17. maí 2026.

Eftirtaldir frambjóðendur náðu kjöri sem aðalfulltrúar:
Helgi Einarsson, Dalbraut 8. 620 Dalvík (K).
Katrín Sif Ingvarsdóttir, Öldugötu 6, 620. Dalvík (K).
Magni Þór Óskarsson, Mímisvegi 8, 620. Dalvík (K).
Monika Margrét Stefánsdóttir, Ægisgötu 5, 621. Dalvík (B).
Benedikt Snær Magnússon, Öldugötu 2, 620. Dalvík (D).
Bessi Ragúels Víðisson, Öldugötu 11, 620. Dalvík (D).
Börkur Þór Ottósson, Mímisvegi 26, 620. Dalvík (A).


Eftirtaldir frambjóðendur náðu kjöri sem varamenn í sveitarstjórn:
Dominique Sigrúnardóttir, Klapparstíg 13, 621. Dalvík (K).
Hörður Snævar Jónsson, Svarfaðarbraut 20, 620. Dalvík (K).
Emil Júlíus Einarsson, Hafnarbraut 8, 620. Dalvík (K).
María Björk Stefánsdóttir, Hólavegi 5, 620. Dalvík (B).
Auður Olga Arnarsdóttir, Göngustaðakoti, 621. Dalvík (D).
Sindri Ólafsson, Ægigötu 1, 621. Dalvík (D).
Erla Björk Jónsdóttir, Hringtúni 40, 620. Dalvík (A).






Enginn tók til máls.

Lagt fram til kynningar.

2.Kjör forseta og varaforseta sveitarstjórnar samkvæmt 7. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202605177Vakta málsnúmer

a) Helgi Einarsson bar upp fyrirliggjandi tillögu um Moniku Margréti Stefánsdóttur (B), sem forseta sveitarstjórnar.
b) Helgi Einarsson bar upp fyrirliggjandi tillögu um kjör 1. og 2. varaforseta sveitarstjórnar:
1. varaforseti Benedikt Snær Magnússon.
2. varaforseti Magni Þór Óskarsson.
Enginn tók til máls.

a) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Monika Margrét Stefánsdóttir rétt kjörin sem forseti sveitarstjórnar.
b) Ekki komu fram aðar tillögur og eru því Benedikt Snær og Magni Þór réttkjörnir sem 1. og 2. varaforsetar sveitarstjórnar.

3.Málefna- og samstarfssamningur á milli K-lista og B-lista Framsóknar og óháðra

Málsnúmer 202605178Vakta málsnúmer

Með fundarboði sveitarstjórnar var meðfylgjandi málefna- og samstarfssamningur á milli K-lista og B-lista Framsóknar og óháðra, dagsettur þann um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 2026-2030.

Samkomulag er um á milli flokkanna um að varamenn séu kallaðir til þvert á samstarfslistana ef til þess kemur að það vanti fulltrúa frá öðrum listanum til að manna fundi.

Til máls tóku:
Monika Margrét Stefánsdóttir, sem kynnti helstu áherslur samningsins.

Benedikt Snær Magnússon.
Bessi Ragúels Víðisson.
Börkur Þór Ottósson.
Helgi Einarsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Málefnasamningurinn er lagður fram til kynningar.

4.Kosningar skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 2022026

Málsnúmer 202605179Vakta málsnúmer

Fyrir lá listi með tillögum meirihluta og minnihluta um fulltrúa í ráð og nefndir. Forseti lagði fram listann og er hann eftirfarandi:

Til eins árs:
Byggðaráð, skv. 27. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar:
Aðalmenn:
Helgi Einarsson (K), formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir (B), varaformaður
Benedikt Snær Magnússon (D)
Varamenn:
Katrín Sif Ingvarsdóttir (K)
María Björk Stefánsdóttir (B)
Bessi Ragúels Víðisson (D)
Áheyrnafulltrúi:
A-listinn óskar eftir að nýta rétt til setu áheyrnafulltrúa í byggðaráði með málfrelsi og tillögurétt skv. 31. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar.
Aðalmaður:
Börkur Þór Ottósson (A)
Varamaður:
Erla Björk Jónsdóttir (A)

Til fjögurra ára:

Kjörstjórn:
Aðalmenn:
Bjarni Valdimarsson, formaður
Ingibjörg María Ingvadóttir, varaformaður
Einar Hafliðason
Varamenn:
Björgvin Teodór Arnarsson
Júlíana Kristjánsdóttir
Óðinn Steinsson

Fjölskylduráð:
Aðalmenn:
María Björk Stefánsdóttir (B), Formaður
Dominique Sigrúnardóttir (K), varaformaður
Hörður Snævar Jónsson (K)
Birta Dís Jónsdóttir (D)
Erla Björk Jónsdóttir (A
Varamenn:
Hrefna Katrín Björgvinsdóttir (K)
Íris Björk Magnúsdóttir (K)
Árný Ósk Hauksdóttir (B)
Auður Olga Arnarsdóttir (D)
Haukur Dór Kjartansson (A)

Framkvæmdaráð:
Aðalmenn:
Katrín Sif Ingvarsdóttir (K), formaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir (B), varaformaður
Emil Júlíus Einarsson (K)
Sindri Ólafsson (D)
Garðar Hrafn Sigurjónsson (A)
Varamenn:
Guðrún Anna Óskarsdóttir (K)
Haukur Arnar Gunnarsson (K)
María Björk Stefánsdóttir (B)
Birta Dís Jónsdóttir (D)
Elín Björk Unnarsdóttir (A)

Veitu- og hafnaráð:
Aðalmenn:
Helgi Einarsson (K), formaður
Sigvaldi Gunnlaugsson (B), varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson (K)
Gunnþór E Sveinbjörnsson (D)
Tryggvi K Guðmundsson (A)
Varamenn:
Haukur Arnar Gunnarsson (K)
Katín Sif Ingvardóttir (K)
Kristinn Bogi Antonsson (B)
Benedikt Snær Magnússon (D)
Elín Björk Unnarsdóttir (A)

Stjórn Dalbæjar:
Aðalmenn:
Magni Þór Óskarsson (K), formaður
Kristinn Bogi Antonsson (B), varaformaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir (K)
Viktoría Katrín Oliversdóttir (D)
Elín Björk Unnarsdóttir (A)
Varamenn:
Sólveig Lilja Einarsdóttir (K)
Íris Björk Magnúsdóttir (K)
Margrét Víkingsdóttir (B)
Auður Olga Arnarsdóttir (D)
Sigríður Kolbrún Guðmundsdóttir (A)

Öldungaráð:
Aðalmenn í byggðaráði:
Helgi Einarsson (K)
Monika Margrét Stefánsdóttir (B)
Benedikt Snær Magnússon (D)

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga, TÁT:
Aðalmenn:
Margrét Víkingsdóttir (B)
Hrefna Katrín Björgvinsdóttir (K)
Varamaður:
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir (B)

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)
Aðalmaður í stjórn:
Monika Margrét Stefánsdóttir (B)
Varamaður í stjórn:
Katrín Sif Ingvarsdóttir (K), varamaður.
Fjórir þingfulltrúar:
Aðalmenn:
Monika Margrét Stefánsdóttir (B)
Katrín Sif Ingvarsdóttir (K)
Benedikt Snær Magnússon (D)
Börkur Þór Ottósson (A)
Varamenn:
Magni Þór Óskarsson (K)
María Björk Stefánsdóttir (B)
Bessi Ragúels Víðisson (D)
Erla Björk Jónsdóttir (A)

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Aðalmenn:
Monika Margrét Stefánsdóttir (B)
Benedikt Snær Magnússon (D)
Varamenn:
María Björk Stefánsdóttir (B)
Bessi Ragúels Víðisson (D)

Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar ses; fulltrúaráð:
Helga Íris Ingólfsdóttir
Kristinn Bogi Antonsson (B)
Elín Björk Unnarsdóttir (A)
Bessi Ragúels Víðisson (D)

Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands:
Aðalmaður:
Valdimar Bragason (B)
Varamaður:
Þorsteinn Björnsson (B)

Almannavarnanefnd í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra:
Fulltrúi Dalvíkurbyggðar:
Sveitarstjóri

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar:
Aðalmaður:
Helgi Einarsson (K)
Varamaður:
Margrét Víkingsdóttir (B)

Hússtjórn Rima:
Aðalmaður:
Sveitarstjóri
Varamaður:
Deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar

Hússtjórn Ráðhúss Dalvíkur
Aðalmaður:
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Varamaður:
Sveitarstjóri

Umsjónarnefnd Friðlands Svarfdæla:
Fyrir hönd sveitarfélagsins:
Deildastjóri eigna- og framkvæmdadeildar

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Aðalmenn:
Sólveig Lilja Einarsdóttir (K)
María Björk Stefánsdóttir (B)
Birta Dís Jónsdóttir (D)
Varamenn:
Rúnar Jóhannesson (K)
Allan Ingi Geirdal Bjarnason (B)
Júlíus Magnússon (D)

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra; tilnefning:
Aðalmaður:
Hrefna Katrín Björgvinsdóttir (K)
Varamaður:
María Björk Stefánsdóttir (B)

Flokkun Eyjafjörður ehf.:
Fulltrúi á aðalfund:
Sveitarstjóri

Molta ehf. Sveitarstjórn kýs fulltrúa á aðalfund samkvæmt samþykktum félagsins.
Fulltrúi á aðalfund:
Sveitarstjóri

Til máls tóku:
Helgi Einarsson, sem leggur til að vísað verði til byggðaráðs að koma með tillögu til sveitarstjórnar um fundaþóknun áheyrnafulltrúa í byggðaráði.

Fleiri tóku ekki til máls.


Ekki komu fram aðrar tillögur.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindar tillögur um skipan í fasta nefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Helga Einarssonar um ákvörðun fundaþóknunar áheyrnafulltrúa.

5.Frá SSNE; Skipan stjórnar og þingfulltrúa SSNE.

Málsnúmer 202605112Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 17. maí sl, er varðar skipan stjórnar og þingfulltrúa SSNE. Minnt er á að samkvæmt 4.1. gr. samþykkta Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) ber sveitarstjórn að skipa fulltrúa í stjórn samtakanna í upphafi nýs kjörtímabils.
Samkvæmt ákvæðinu skipar hvert aðildarsveitarfélag einn fulltrúa í stjórn SSNE og annan til vara,
nema Akureyrarbær sem skipar tvo fulltrúa og tvo til vara. Stjórn skal skipuð til fjögurra ára.
Jafnframt er minnt á skipan þingfulltrúa á þing SSNE samkvæmt 3.2. gr. samþykktanna. Þingfulltrúar
eru skipaðir til fjögurra ára í upphafi kjörtímabils sveitarstjórna.
Lagt fram til kynningar og vísað í 4. lið hér að ofan þar sem sveitarstjórn hefur skipað bæði í stjórn og 4 þingfulltrúa.

6.Ákvörðun um fundi sveitarstjórnar og fundi byggðaráðs

Málsnúmer 202605180Vakta málsnúmer

Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu um auglýsingu á fundum sveitarstjórnar:
a)Sveitarstjórn samþykkir að í upphafi kjörtímabils verði auglýst hvernig fundir sveitarfélagsins verði auglýstir á kjörtímabilinu og með hvaða fyrirvara, eins og kveður á um í 15. gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 með síðari breytingum.

Enginn tók til máls.

Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu um fundi sveitarstjórnar:
b)Sveitarstjórn samþykkir að fundir sveitarstjórnar verði að jafnaði haldnir þriðja þriðjudag hvers mánaðar í Ráðhúsi Dalvíkur, í Upsa á 3. hæð kl. 16:15 og verði auglýstir með tveggja daga fyrirvara á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.

Enginn tók til máls.

Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu um streymi af fundum sveitarstjórnar:
c) Sveitarstjórn samþykkir að fundum sveitarstjórnar verði áfram streymt í gegnum
YouTube rás sveitarfélagsins og upptaka aðgengileg þar í sólarhring.

Til máls tóku:
Benedikt Snær Magnússon,sem leggur til að upptaka verði aðgengileg án tímamarka.

Fleiri tóku ekki til máls.

Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu um fundi byggðaráðs:
d)Sveitarstjórn samþykkir að fundir byggðarráðs verði að jafnaði haldnir hvern fimmtudag kl. 13:15.

Til máls tóku:
Benedikt Snær Magnússon, sem leggur til að bætt verði við að fundir byggðaráðs verði ekki að jafnaði haldnir í sömu viku og fundur sveitarstjórnar er.

Fleiri tóku ekki til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um auglýsingu á fundum.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um fundartíma sveitarstjórnar.
c) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um streymi á fundum sveitarstjórnar með áorðnum breytingum samkvæmt tillögu Benediks Snæs Magnússonar.
d) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um fundartíma byggðaráðs með áorðnum breytingum samkvæmt tillögu Benedikts Snæs Magnússonar.

7.Siðareglur kjörinna fulltrúa.Endurskoðun í upphafi kjörtímabilsins 2026-2030

Málsnúmer 202605181Vakta málsnúmer

Í upphafi kjörtímabils skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða siðareglur sveitarstjórnar. Ef niðurstaðan er að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Sjá nánar 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

Til máls tók:
Helgi Einarsson, sem leggur til að siðareglum kjörinna fulltrúa í Dalvíkurbyggð verði vísað til byggðaráðs til endurskoðunar.

Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Helga Einarssonar.

8.Framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2026-2030

Málsnúmer 202605182Vakta málsnúmer

Sveitarstjórnir skulu marka sér stefnu og gera framkvæmdaáætlun fyrir hvert kjörtímabil á sviði barnaverndar innan sveitarfélagsins. Ef sveitarfélög hafa með sér samvinnu um barnavernd er þeim heimilt að gera sameiginlega áætlun. Sjá nánar 9. gr. barnaverndarlaga.

Til máls tóku:
Forseti sveitarstjórnar, sem leggur til að þessum lið verði vísað til Barnaverndarþjónustu á Norðurlandi eystra.


Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta.

9.Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar - ákvörðun um endurskoðun í upphafi kjörtímabils

Málsnúmer 202605183Vakta málsnúmer

Að loknum sveitarstjórnarkosningum metur sveitarstjórn hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun aðalskipulags. Sjá nánar 35. gr. skipulagslaga.

Til máls tóku:
Forseti, sem gerði grein fyrir að unnið hefur verið að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar fyrir 2025-2045 á síðasta kjörtímabili og í hvaða farvegi sú vinna er stödd.

Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að unnið verði áfram að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045.

10.Verndarsvæði - endurmat í upphafi kjörtímabils 2026-2030

Málsnúmer 202605184Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn skal að loknum sveitarstjórnarkosningum endurmeta þau verndarsvæði sem fyrir eru í sveitarfélaginu með tilliti til þess hvort auka eigi við þau eða breyta mörkum þeirra að öðru leyti. Sjá nánar 4. gr. laga um verndarsvæði í byggð.

Til máls tók:
Forseti, sem leggur til að vísa þessum lið til framkvæmdaráðs til úrvinnslu.

Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta.

11.Ráðning sveitarstjóra, sbr. 49. gr. Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202605185Vakta málsnúmer

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir vék af fundi undir þessum lið kl. 13:37 vegna vanhæfis.

Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur til eftirfarandi tillögu hvað varðar ráðningu sveitarstjóra:

Sveitarstjórn samþykkir að ráða Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur, til heimils að Sunnubraut 8, 620. Dalvík, sem sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2026-2030.

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgja drög að ráðningarsamningi við Eyrúnu Ingibjörgu.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um ráðningu sveitarstjóra og meðfylgjandi ráðningarsamning við Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur.

12.Prókúruumboð sveitarstjóra sbr. 50. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202605186Vakta málsnúmer

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sat ekki þennan lið vegna vanhæfis.

Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn samþykkir að Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, til heimilis að Sunnubraut 8, 620. Dalvík, sveitarstjóri, skuli fara með prófkúru fyrir sveitarfélagið Dalvíkurbyggð.

Samkvæmt 50. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar er staðgengill sveitarstjóra, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, jafnframt prókúruhafi sveitarfélagsins í forföllum og fjarveru sveitarstjóra.

Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta.

13.Ritun fundargerða - leiðbeiningar skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202605205Vakta málsnúmer

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri, kom inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 13:38.

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi auglýsing nr. 1181/2021 um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjóra, sbr. 16. gr. úr Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar:
"Fundargerðir sveitarstjórnar eru skráðar í tölvu. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Um ritun fundargerða sveitarstjórnar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum ráðuneytis sveitarstjórnarmála um ritun fundargerða sveitarstjórna nr. 1181/2021, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

Fundargerðir sveitarstjórnar skulu birtar á vefsíðu Dalvíkurbyggðar, ásamt fylgigögnum samkvæmt reglum og heimildum þar um, að fundi loknum enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi."

Ofangreint gildir einnig um ritun fundagerða byggðaráðs og fastanefnda sveitarfélagsins.
Til máls tóku:
Helgi Einarsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:
"Ég legg til að sveitarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs verði falið að fara yfir með starfsmönnum nefnda sveitarfélagsins sem og nefndarmönnum verklag við ritun fundargerða og birtingu gagna, með það að markmiði að fundargerðir séu skýrar, upplýsandi og stuðli að auknu gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélagsins."

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Helga Einarssonar.

14.Birting gagna á heimasíðu undir fundargerðum

Málsnúmer 202605206Vakta málsnúmer

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdu "Almennar reglur um birtingu gagna með fundargerðum í ráðum og nefndum Dalvíkurbyggðar" um birtingu gagna með fundargerðum sem birtar eru á heimasíðu sveitarfélagsins.

Með fundarboði fylgdi einnig reglugerð um birtingu upplýsinga að frumkvæði stjórnvalda nr. 464/2018 ásamt upplýsingum um umfjöllun Persónuverndarteymis sveitarfélagsins frá fundi fyrr á árinu.

Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fara yfir með starfsmönnum nefnda sveitarfélagsins sem og nefndarmönnum verklag við ritun fundargerða og birtingu gagna, með það að markmiði að fundargerðir séu skýrar, upplýsandi og stuðli að auknu gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélagsins.

15.Fjölskylduráð - 2; frá 12.05.2026

Málsnúmer 2604006FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 16 liðum.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202603167.
Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202603043- vísa á lið.
Liður 11 er sér mál á dagskrá; mál 202603164 -vísa á lið.
Liður 14 er sér mál á dagskrá mál 202605035.
Liður 16 er sér mál á dagskrá; mál 202605079.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

16.Framkvæmdaráð - 3; frá 13.05.2026

Málsnúmer 2605005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 12 liðum.
Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202503039.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202503040.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202511032.
Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202601117.
Liður 8 er sér mál á dagskrá: mál 202605036.
Liður 9 er sér mál á dagskrá; mál 202605038.
Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202505074.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

17.Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 49; frá 12.05.2026

Málsnúmer 2605002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 4 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

18.Ungmennaráð - 50; frá 21.05.2026

Málsnúmer 2605007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 2 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

19.Frá 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13.05.2026; Selárland - breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202503039Vakta málsnúmer

Á 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um uppbyggingu ferðamanna- og afþreyingarsvæðis við Sandvík á Hauganesi lauk þann 30.apríl sl.
Tvær athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Hörgársveit, Vegagerðinni og Landsneti.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna drög að svörum við innkomnum athugasemdum til samræmis við umræður á fundinum og leggja fyrir fund sveitarstjórnar til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Enginn tók til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu framkvæmdaráðs og tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi drög að svörum við innkomnum athugasemdum.

20.Frá 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13.05.2026; Selárland - nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð

Málsnúmer 202503040Vakta málsnúmer

Á 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík á Hauganesi lauk þann 30.apríl sl.
Fjórar athugaemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, Rarik, veitum Dalvíkurbyggðar og Náttúruverndarstofnun.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu deiliskipulagi fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík á Hauganesi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna drög að svörum við innkomnum athugasemdum til samræmis við umræður á fundinum og leggja fyrir fund sveitarstjórnar til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Enginn tók til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu framkvæmdaráðs og samþykkir tillögu að deiliskipulagi fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík á Hauganesi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum meðfylgjandi drög að svörum við innkomnum athugasemdum.

21.Frá 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13.05.2026:Athafnasvæði í landi Ytri Haga - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202511032Vakta málsnúmer

Á 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri Haga lauk þann 11.maí sl.
Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Náttúruverndarstofnun, Rarik, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri Haga skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu framkvæmdaráðs og framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri-Haga skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

22.Frá 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13.05.2026; Ósk um upplýsingar varðandi fjallgirðingasjóð

Málsnúmer 202601117Vakta málsnúmer

Á 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Samþykkt var á fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 6.febrúar 2026 að koma á formlegu samkomulagi við landeigendur á Árskógsströnd um Fjallgirðingarsjóð. Nú liggja fyrir drög starfsmanna framkvæmdasviðs að samkomulagi vegna fjallgirðingasjóðs.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir framlögð drög að samkomulagi vegna Fjallgirðingasjóðs með þeirri breytingu að Árskógsrétt verði hluti af samkomulaginu.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og meðfylgjandi tillögu að samkomulagi um fjallgirðingu á Árskógsströnd með þeirri breytingu að Árskógsrétt verði hluti af samkomulaginu.

23.Frá 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13.05.2026; Grenndarstöðvar sorphirðu - staðsetningar og útfærslur

Málsnúmer 202605036Vakta málsnúmer

Á 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Árið 2025 var samþykkt að koma upp grenndarstöðvum sorphirðu á Hauganesi og á Árskógssandi. Grenndargámar voru settir upp og hafa staðið á gömlu bílaþvottaplönunum á báðum stöðum í vetur. Nú þarf að taka afstöðu til þess hvar á að koma grenndarstöðvunum endanlega fyrir á báðum stöðum því það á að koma upp skjólveggjum og skiltum og bæta ásýnd stöðvanna.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir núverandi staðsetningu grenndarstöðva á Hauganesi og Árskógssandi en leggur jafnframt áherslu á snyrtilegan frágang og ásýnd stöðvanna.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
Gunnþór E. Sveinbjörnsson sat hjá við afgreiðslu málsins."
Til máls tóku:
Benedikt Snær Magnússon, sem leggur til að þessu máli verði aftur vísað til framkvæmdaráðs. Jafnframt leggur hann til að það verði sett upp ein stöð miðsvæðis fyrir báða kjarnana.

Helgi Einarsson.
Börkur Þór Ottósson.
Katrín Sif Ingvarsdóttir.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Benedikts Snæs Magnússonar um að framkvæmdaráð fjalli aftur um málið.

24.Frá 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13.05.2026; E2606 og E2607 - Göngu- og hjólastígar niður á Árskógssand og Hauganes

Málsnúmer 202605038Vakta málsnúmer

Á 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Á fjarhagsáætlun ársins 2026 er að byggja upp hjóla- og göngustíga frá þjóðvegi og niður á Árskógssand og niður á Hauganes. Fyrir fundinum lá tillaga að legu stíganna.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir að stígur niður á Árskógssand muni liggja um Brúarhvammsreit eftir núverandi stíg en að lega stígs niður á Hauganes fari í frekara samráðsferli með íbúum á svæðinu.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs.

25.Frá 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13.05.2026; Samstarfssamningur vegna textíls

Málsnúmer 202505074Vakta málsnúmer

Á 3. fundi framkvæmdaráðs þann 13. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Fyrir fundinum lágu drög að samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbæjar um flutning á umframtextíl frá starfsstöð Rauða krossins á Akureyri til meðhöndlunar hjá móttökuaðila. Með samningnum skuldbindur Dalvíkurbyggð sig til að greiða Akureyrarbæ hlutdeild af kostnaði vegna meðhöndlunar og flutnings textíls.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir framlögð drög að samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbæjar um flutning og meðhöndlun á umframtextíl.
Framkvæmdaráð leggur til að íbúar verði upplýstir um magn og kostnað við förgun á textíl í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Til máls tók:
Helgi Einarsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samningi við Akureyrarbæ um flutning á textíl, með leiðréttingu á dagsetningu þannig að hann taki gildi á árinu 2026. og gildi til 31.12.2026.
Sveitarstjórn tekur undir bókun framkvæmdaráðs hvað varðar upplýsingagjöf til íbúa.

26.Frá 2. fundi fjölskylduráðs þann 12.05.2026; Endurnýjun á samningi

Málsnúmer 202603167Vakta málsnúmer

Á 2. fundi fjölskylduráðs þann 12. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Eyrún Rafnsdóttir,sviðsstjóri félagsmálasviðs og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fara yfir
stöðuna á vinnu við endurskoðun á samningi við Heilsu - og sálfræðiþjónustuna slf.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að endurnýja samning við Heilsu og sálfræðiþjónustu Slf. í eitt ár."
Til máls tók:

Forseti sveitarstjórnar sem leggur til að þessu máli verði vísað aftur til fjölskylduráðs þar sem samningsdrögin eru enn í vinnslu.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.

27.Frá 2. fundi fjölskylduráðs þann 12.05.2026; Landsmót 50 , framkvæmt af UMSE

Málsnúmer 202603043Vakta málsnúmer

Á 2. fundi fjölskylduráðs þann 12. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá UMFÍ 50 dags. 01. mars.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita 100.000 kr. fjármagn sem er til í Heilsueflandi samfélagi.
Golfið verður haldið á golfvelli Dalvíkurbyggð"

Í erindi UMFÍ, dagsett þann 1. mars sl., kemur m.a. fram að sótt er um styrk til UMSE vegna Landsmóts 50 , sem fram fer á vegum Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og Eyjafjarðarsveitar dagana 26. - 28. júní 2026.
Þar sem Dalvíkurbyggð er hluti af svæði UMSE, leitar mótsnefndin til sveitarfélagsins um styrk.
Eyjafjarðar- sveit hefur þegar samþykkt styrk sem nemur kr 500.000.- til mótahaldsins, auk allrar
aðstöðu og mönnunar hennar í 3 daga.
Óskað er eftir framlagi Dalvíkurbyggðar til mótsins kr: 800.000.- eða skv. ákvörðun
sveitarstjórnar.
Tekið er fram að ef rekstrarafgangur verður á mótshaldinu, mun UMSE halda honum
öllum og skipta samkvæmt framlagi sjálfboðaliða, sem koma frá svæði UMSE og hafa starfað
að undirbúningi og framkvæmd mótsins, til ungmennafélaganna innan UMSE.
UMFÍ heldur engum fjármunum eftir en leggur til ýmis konar framlag í formi framkvæmdastjóra
mótsins, kynningu mótsins, starfsfólk á mótinu sjálfu o.fl.
Hliðstæð beiðni/ósk er send til sveitarstjórna Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps.
enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og vísar kr. 100.000 styrk á lið 06010-4390 í fjárhagsáætlun 2026.

28.Frá 2. fundi fjölskylduráðs þann 12.05.2026; Styrkbeiðni frá Ferðafélagi Svarfdæla

Málsnúmer 202603164Vakta málsnúmer

Á 2. fundi fjölskylduráðs þann 12. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Ferðafélagi svarfdæla.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir/hafna með fimm atkvæðum að veita 430.000 kr. styrk úr sjóði Heisueflandi samfélags."

Í erindinu, móttekið í mars 2026, kemur fram kynning á þeim verkefnum sem Ferðafélag Svarfdæla er að vinna að á þessu ári; heimasíða, stikur, Belgingur, fjarskipti. Áætlaður kostnaður um kr. 830.000. Fram kemur að kostnaður við að koma þessum verkefnum af stað er ekki mikill, en Ferðafélag Svarfdæla vonast eftir styrk frá Dalvíkurbyggð í þessa vegferð öllum til hagsbóta. Ferðafélagið vinnur alla vinnu í sjálfboðavinnu eins og endranær, svo sem að viðhalda stikuðum gönguleiðum, brúm, skálum auk metnaðarfullrar dagskrár yfir árið.
Til máls tóku:
Forseti sveitarstjórnar sem leggur til að þessum lið verði vísað til byggðaráðs til umfjöllunar.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta.

29.Frá 2. fundi fjölskylduráðs þann 12.05.2026; Gjaldskrárbreytingar íþróttamiðstöðvar 2026

Málsnúmer 202605035Vakta málsnúmer

Á 2. fundi fjölskylduráðs þann 12. maí 2026 var eftirfarandi bókað:
"Jón Stefán Jónsson,íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar fer yfir þær breytingar á gjaldskrá íþróttamiðstöðvar.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum endurskoðaða gjaldskrá íþróttamiðstöðvar 2026."

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi minnisblað íþróttafulltrúa, dagsett þann 1. júní, þar sem fram kemur að íþróttafulltrúi leggur til að viðskiptavinum Íþróttamiðstöðvar (líkamsræktar og sundlaugar) verði leyft að dreifa greiðslum á 3 mánaða kortum, 6 mánaðakortum og árskortum í sundlaug og/eða líkamsrækt í allt að 12 mánuði en aldrei þó lengur en viðkomandi kort eru í gildi. Í núgildandi gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar er ekki heimild til greiðsludreifingar.
Til máls tóku:
Helgi Einarsson, sem leggur til að þessu máli verði vísað aftur til fjölskylduráðs.
Benedikt Snær Magnússon, sem leggur til að borið verði upp til samþykktar tillaga um greiðsludreifingu þótt gjaldskrá undir málinu sé ekki rétt.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu íþróttafulltrúa um greiðsludreifingu og að því ákvæði verði bætt við gildandi gjaldskrá.

30.Frá 2. fundi fjölskylduráðs þann 12.05.2026; Umsókn um styrk vegna yngriflokka kvenna

Málsnúmer 202605079Vakta málsnúmer

Á 2. fundi fjölskylduráðs þann 12. maí sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir umsókn frá Barna - og Unglingaráði dags. 08. maí þar sem þau óska eftir 300.000 kr. styrk til að efla knattpyrnuiðkun stúlkna í sjöunda flokki UMFS.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að styrkja Barna - og unglingaráð um 300.000 kr. Íþróttafulltrúa falið að kanna svigrúm í fjárhagsáætlun."

Í erindi Barna- og unglingaráðs, ódagsett, kemur fram að Barna og unglingaráð knattspyrnudeildar UFMS óskar eftir styrk frá Dalvíkurbyggð vegna verkefnisins "Stelpur í fótbolta". Markmið verkefnisins er að fjölga stelpum en eins og staðan er núna er gríðarleg vöntun og er vilji til að byrja á yngstu flokkunum til að byggja upp grunn. Mikilvægt er að ná börnum sem yngstum inn í knattspyrnu til að auka líkurnar á því að þau haldist
þar. Fram kemur að ráðið hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að ráða þjálfara í þetta verkefni svo hægt sé að hafa stelpurnar sér á æfingum og gera þannig meira hvetjandi umhverfi fyrir þær.
Til máls tóku:
Bessi Ragúels Víðisson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda styrkveitingu að upphæð kr. 300.000 og vísar honum á lið 06010-4390 í fjárhagsáætlun 2026 (Heilsueflandi samfélag), sbr. tillaga íþróttafulltrúa.

31.Frá skipulagsfulltrúa; Landeldi við Hauganes - mat á umhverfisáhrifum

Málsnúmer 202605164Vakta málsnúmer

Tekin fyrir drög að umsögn skipulagsfulltrúa að umsögn um matsáætlun fyrir áform um landfyllingu og fiskeldi á landi við Hauganes, dagsett þann 3. júní sl. Fram kemur í umsögninni:
"Dalvíkurbyggð hefur móttekið erindi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar dags. 15.apríl
2026 þar sem farið er fram á umsögn sveitarfélagsins um matsáætlun fyrir áform Laxóss ehf. um
uppbyggingu landfyllingar og fiskeldi á landi við Hauganes.
Óskað er eftir afstöðu Dalvíkurbyggðar til þess hvernig framkvæmdaraðili hyggst vinna að
umhverfismati fyrirhugaðrar framkvæmdar og hvaða þáttum, ef einhverjum, sveitarfélagið telur að
gera þurfi frekari skil.
Dalvíkurbyggð er leyfisveitandi framkvæmdaleyfis skv. reglugerð nr. 772/2012 um
framkvæmdaleyfi og byggingarleyfis skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012. Dalvíkurbyggð sér
jafnframt um stjórnsýslu í tengslum við vinnslu deiliskipulags og breytingu á aðalskipulagi sem er
grundvöllur fyrir áformunum.
Það er álit Dalvíkurbyggðar að nægilega sé gerð grein fyrir forsendum vinnu við umhverfismat
framkvæmdarinnar fyrir þá matsþætti sem tilgreindir eru í matsáætlun.
Að mati Dalvíkurbyggðar mætti fjalla um hugsanleg áhrif á samgöngur og umferðarþunga á
Ólafsfjarðarvegi, bæði á framkvæmdatíma og rekstrartíma framkvæmdarinnar."
Til máls tóku:
Börkur Þór Ottósson.



Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu að umsögn Dalvíkurbyggðar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að næsti fundur sveitarstjórnar verði þriðjudaginn 23. júní 2026.

Fundi slitið - kl. 14:31.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Magni Þór Óskarsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
  • Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
  • Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs