Ósk um upplýsingar varðandi fjallgirðingasjóð

Málsnúmer 202601117

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og dreifbýlisráð - 40. fundur - 06.02.2026

Óðinn Steinsson verkefnastjóri þvert á svið mætti á fundinn undir fyrstu tveimur málum á dagskrá.
Á fundinn mættu þau Snorri Snorrason, Gitta Unn Ármannsdóttir og Jónas Þór Leifsson úr Fjallskilanefnd Árskógsstrandar til að fylgja eftir erindi sínu varðandi Fjallgirðingasjóð Árskógsstrandar. Nefndin hefur óskað eftir upplýsingum um sjóðinn og stöðu hans fyrir árin 2022-2025.
Umhverfis- og dreifbýlisráð felur starfsmönnum Framkvæmdasviðs að koma á formlegu samkomulagi við landeigendur á Árskógsströnd um Fjallgirðingasjóð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Snorri, Gitta og Jónas viku af fundi kl 08:50.