Fræðsluráð

283. fundur 16. ágúst 2023 kl. 08:15 - 10:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Jolanta Krystyna Brandt formaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Snæþór Arnþórsson aðalmaður
  • Benedikt Snær Magnússon varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
Aðrir sem sitja fundinn: Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla, Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri á Krílakoti, Ágústa Kristín Bjarnadóttir aðstoðarleikskólastjóri á Krílakoti, Hugrún Felixdóttir fulltrúi kennara í Dalvíkurskóla.

1.Innleiðingaráætlun fyrir nýja Menntastefnu Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202108026Vakta málsnúmer

Gunnar Gíslason, forstöðumaður í Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri, fer yfir stöðu mála er varðar innleiðingu á Menntastefnu Dalvíkurbyggðar.
Fræðsluráð þakkar Gunnari Gíslasyni, forstöðumanni Miðstöðvar skólaþróunar, fyrir upplýsingar er varða stöðuna á innleiðingu á Menntastefnu Dalvíkurbyggðar. Margt er búið að gerast og er á réttri leið. Mikilvægt er fyrir fræðsluráð að fá mælanlega stöðu á verkefninu inn á fund fræðsluráðs með reglulegum hætti.

2.Gjaldskrár 2024

Málsnúmer 202307014Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu -og menningarsviðs, fór yfir gjaldskrár fyrir fjárhagsárið 2023. Sviðsstjóri óskar eftir hugmyndum er varðar gjaldskrá fræðslusviðs fyrir fjárhagsárið 2024.
Fræðsluráð leggur til að stofnaður verði endurkoðunarhópur varðandi gjaldskrá 2024. Í honum sitja Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar- og Dalvíkurskóla, Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, Gísli Bjrnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Benedikt Snær Magnússon úr fræðsluráði.

3.Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027

Málsnúmer 202304162Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, kynnti form á starfsáætlun hjá stofnunum fræðslusviðs.
Fræðsluráð þakkar Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, fyrir kynningu á starfsáætlunarformi.

4.Drög að samningi um sérfræðiþjónustu

Málsnúmer 202306019Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir stöðu mála er varða vinnu við samninginn.
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir stöðu mála á vinnu er varða samninginn við Heilsu- og Sálfræðiþjónustu.

5.Starfsmannamál í leik - og grunnskóla

Málsnúmer 201912084Vakta málsnúmer

Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar- og Dalvíkurskóla og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, fór yfir stöðuna á starfsmannamálum í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2023 - 2024.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir upplýsingar er varða starfsmannamál í leik- og grunnskólum.

6.Fjárhagslegt stöðumat 2023 (Málaflokkur 04)

Málsnúmer 202308010Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, fór yfir fjárhagslegt stöðumat á málaflokki 04 fyrir fjárhagsárið 2023.
Fræðsluráð þakkar sviðsstjóra fyrir yfirferð á fjárhagsstöðu fyrir málaflokk 04.
Stjórnendur leikskóla á Krílakoti fóru af fundi kl. 11:00.

7.Breyttir starfshættir í grunnskóla

Málsnúmer 202303015Vakta málsnúmer

Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar- og Dalvíkurskóla, fór yfir hvernig staðan er á þeim breytingum.
Fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir kynningu á framvindu verkefnis "Breyttir starfshættir í grunnskóla.

8.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202308017Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók

Fundi slitið - kl. 10:30.

Nefndarmenn
  • Jolanta Krystyna Brandt formaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Snæþór Arnþórsson aðalmaður
  • Benedikt Snær Magnússon varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs