Félagsmálaráð

211. fundur 10. október 2017 kl. 08:15 - 10:15 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Silja Pálsdóttir formaður
  • Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
  • Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
  • Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
  • Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði: Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá
Jóhannes Tryggvi Jónsson mætti ekki á fundinn, boðaði ekki forföll og varamaður hans mætti ekki í hans stað.

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201710005Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201710005
Bókað í trúnaðarmálabók

2.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201504082Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201504082
Bókað í trúnaðarmálabók

3.Ferðaþjónusta fatlaðra

Málsnúmer 201304055Vakta málsnúmer

Lögð voru fram drög að nýjum reglum um ferðaþjónustu fatlaðra sem eru unnar í samvinnu við félagsþjónustu Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar og starfsmönnum falið að vinna áfram reglurnar miðað við umræður á fundinum. Tekið fyrir á næsta fundi.

4.Húsnæðisþing 2017

Málsnúmer 201709113Vakta málsnúmer

Lagðar voru fram upplýsingar sem bárust með rafpósti þann 15.september 2017 um Húsnæðisþing. Íbúðalánasjóður heldur fyrsta árlega húsnæðisþingið hér á landi þann 8.nóbember 2017 og hvetur sveitarfélög til þess að taka daginn frá. Húsnæðisþingið er vettvangur þar sem lagður er grunnur að húsnæðistefnu stjórnvalda og farið verður yfir stöðu húsnæðismála byggt á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar

5.Sérstakur húsnæðisstuðningur

Málsnúmer 201701014Vakta málsnúmer

Rætt var um sérstakan húsnæðisstuðning í Dalvíkurbyggð, fjölda umsókna til sveitarfélagsins og endurskoðun á reglum Dalvíkurbyggðar. Ábending barst frá Velferðarráðuneytinu um að sveitarfélög endurskoði reglur sínar.
Félagsmálaráð telur ekki þörf á frekari endurskoðun að svo stöddu en málið verður tekið fyrir að nýju eftir áramót.

6.Leiðbeinandi reglur um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis

Málsnúmer 201710024Vakta málsnúmer

Erindi barst frá Velferðarráðuneytinu dags. 25.09 2017 þar sem lögð voru fram drög að leiðbeinandi reglum um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis.
Á grundvelli 5. gr. samkomulags um endurskoðaða verka- og kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga vegna breytinga á fyrirkomulagi húsnæðisstuðnings við leigjendur, hefur samráðsnefnd um húsnæðismál unnið meðfylgjandi drög að leiðbeinandi reglum um úthlutun félagslegs íbúðarhúsnæðis sveitarfélaga. Sveitarfélögum gefst kostur á að gera athugasemdir við drögin.


Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum er falið að skoða drögin að reglum um úthlutun félagslegra íbúða og gera tillögur í framhaldi af reglum fyrir Dalvíkurbyggð.

7.Kynning á starfsemi Aflsins - Samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi

Málsnúmer 201709171Vakta málsnúmer

Lagt fram rafbréf dagsett 28.september 2017 frá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldis varðandi kynningu á starfi samtakanna fyrir sveitarfélög á Norðurlandi.
Lagt fram til kynningar. Starfsmenn sviðsins verða á kynningu frá Aflinu með félagsþjónustu Fjallabyggðar 19. október nk.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Nefndarmenn
  • Silja Pálsdóttir formaður
  • Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
  • Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
  • Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
  • Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði: Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þroskaþjálfi