Byggðaráð

885. fundur 25. október 2018 kl. 08:15 - 10:50 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Jón Ingi Sveinsson formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
  • Dagbjört Sigurpálsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Guðmundur St. Jónsson boðaði forföll og varamaður hans Dagbjört Sigurpálsdóttir, mætti í hans stað.

1.Fjárhagsáætlun 2018; heildarviðauki III

Málsnúmer 201810086Vakta málsnúmer

Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti helstu niðurstöður heildarviðauka III við fjárhagsáætlun 2018 og þær breytingar sem gerðar hafa verið frá heildarviðauka II.

Sviðstjóri gerði grein fyrir að bætt hefur verið við viðauka nr. 37 vegna áætlaðs tekjujöfnunarframlags frá Jöfnunarsjóði að upphæð kr. 39.013.000

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi heildarviðauka III við fjárhagsáætun 2018 og vísar honum til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.

2.Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022; fjárhagsáætlunarlíkan

Málsnúmer 201806016Vakta málsnúmer

Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti helstu niðurstöður tillögu að fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020 -2022 samkvæmt fjárhagsáætlunarlíkani.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að farið verði sem fyrst í heildstæða skoðun á rekstri og fjárfestingum sveitarfélagsins með vinnuhópum kjörinna fulltrúa og starfsmanna.

3.Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar 2019; tillögur

Málsnúmer 201808068Vakta málsnúmer

Á 884. fundi byggðaráðs þann 18. október 2018 var eftirfarandi bókað:
"Á 882. fundi byggðaráðs þann 4. október s.l. voru til umfjöllunar og skoðunar tillögur fagráða að gjaldskrám 2019. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samantekt yfir allar gjaldskrár sem hlotið hafa umfjöllun. Samantektin sýnir tillögur að breytingum á milli áranna 2018 og 2019.

Til umræðu ofangreint.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ofangreindar gjaldskrár verði leiðréttar í samræmi við útgefnar forsendur með fjárhagsáætlun 2019 og að þær verði þá teknar aftur til umfjöllunar og afgreiðslu byggðaráðs."

Sveitarstjóri kynnti uppfærða samantekt á gjaldskrám í samræmi með leiðréttingum miðað við útgefnar forsendur með fjárhagsáætlun 2019.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fyrirliggjandi gjaldskrár verði uppfærðar eftir því sem við á miðað við uppfærða útreikninga í ofangreindri samantekt yfir gjaldskrár.
Gjaldskrár 2019 komi síðan í heild sinni í endanlegri tillögu fyrir byggðaráð áður en þær fara til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Fasteignaálagning 2019; tillaga

Málsnúmer 201806121Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri kynnti og lagði fram tillögu að álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda fyrir árið 2019.

Lagt er til að álagningarprósenta fasteignaskatts og lóðarleigu verði óbreytt á milli ára og álagning fasteignagjalda verði samkvæmt fyrirliggjandi tillögum að gjaldskrám vatnsveitu og fráveitu. Gjaldskrár vegna sorphirðu er í vinnslu.

Lagt er til að fjöldi gjalddaga verði áfram 10.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Frá Eyþingi; Bréf til sveitarfélaga - ráðning framkvæmdastjóra í afleysingar

Málsnúmer 201810074Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Eyþingi, bréf dagsett þann 16. október 2018, þar sem fram kemur að stjórn Eyþings óskar eftir aukaframlagi frá sveitarfélögum vegna ráðningar framkvæmdastjóra í afleysingar til allt að sex mánaða. Hlutur Dalvíkurbyggðar er áætlaður kr. 575.877 af 9,3 m.kr.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 38 við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð kr. 192.000 við deild 21800 og að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gert verði ráð fyrir ofangreindu í tillögu að fjárhagsáætlun 2019, kr. 384.000 á deild 21800.

6.Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Leiguíbúðir - endurskoðun á úthlutunarreglum

Málsnúmer 201703097Vakta málsnúmer

Á 878. fundi byggðaráðs þann 20. september 2019 var eftirfarandi bókað:
"Á 857. fundi byggðaráðs þann 22. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað: "Tekin fyrir drög að reglum um leiguíbúðir hjá Dalvíkurbyggð og úthlutanir á þeim, bæði hvað varðar útleigu á almennum forsendum sem og á félagslegum forsendum. Til umræðu ofangreint. Frestað til næsta fundar." Með fundarbði byggðaráðs fylgdu ofangreind drög að reglum. Til umræðu ofangreint. Íris vék af fundi kl. 13:45
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela þjónustu- og innheimtufulltrúa og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fullvinna ofangreind drög og leggja fyrir byggðaráð til umfjöllunar og afgreiðslu. "

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærð tillaga að reglum Dalvíkurbyggðar um úthlutun íbúða.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar reglur eins og þær liggja fyrir.

7.Íbúafundur um laxeldismál

Málsnúmer 201810082Vakta málsnúmer

Til umræðu íbúafundur um laxeldismál sem haldinn var af Dalvíkurbyggð mánudaginn 22. október s.k. í félagsheimilinu Árskógi.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu fyrirliggjandi umsókna og erinda þar til fyrirhugaður kynningarfundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar um laxeldismál hefur farið fram.

8.Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags íslands; Ágóðahlutagreiðsla 2018

Málsnúmer 201810083Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 18. október 2018, þar sem upplýst er að hlutdeild Dalvíkurbyggðar í Sameignarsjóði EBÍ er 1,684% og greiðsla ársins er kr. 842.000 af 50 m.kr.Meginmarkið fjárfestingastefnu EBÍ er að greiða aðildarsveitarfélögunum árlega út ágóðahlut.
Lagt fram til kynningar.

9.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um dag nýrra kjósenda, 27. mál.

Málsnúmer 201810070Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 15. október 2018, þar sem fram kemur að Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um dag nýrra kjósenda, 27. mál. Óskað er eftir að umsögn berist eigið síðar en 5. nóvember n.k.





Lagt fram til kynningar.

10.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023 , 172. mál.

Málsnúmer 201810064Vakta málsnúmer

Á 884. fundi byggðaráðs þann 18. október s.l. var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 12. október 2018, þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023 , 172.mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. október n.k.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að gera drög að umsögn og leggja fyrir byggðaráð á næsta fundi. "

Sveitarstjóri kynnti tillögu sína að umsögn.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda umsögn eins og hún liggur fyrir.

11.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2019 -2033 , 173. mál.

Málsnúmer 201810065Vakta málsnúmer

Á 884. fundi byggðaráðs þann 18. október 2018 var eftirfarandi bókað:
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 12. október 2018, þar sem fram kemur að Umhverfis- og samgöngunefnd "Alþingis sendi til umsagnar tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2019 -2033 , 173. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. október n.k. Ofangreint var tekið fyrir á fundi veitu- og hafnaráðs 17. október 2018 og eftirfarandi meðal annars bókað: "Við yfirlestur á ofangreindri tillögu til þingályktunar er ljóst að ekki er gert ráð fyrir neinum stórum verkefnum í Dalvíkurbyggð á því tímabili sem áætlunin tekur til. Veitu- og hafnaráð lýsir yfir vonbrigðum sínum að ekki er gert ráð fyrir að eftir árið 2023 sé brugðist við uppsafnaðri viðhaldsþörf hafnamannvirkja innan Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar og hvetur sveitarstjórn að fylgja eftir hagsmunum sveitarfélagsins."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að gera drög að umsögn og leggja fyrir byggðaráð á næsta fundi."

Sveitarstjóri kynnti tillögu að umsögn varðandi ofangreint.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að umsögn.

12.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; fundargerð stjórnar nr. 864

Málsnúmer 201803113Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 864.
Lagt fram til kynningar.

13.Frá Eyþingi; Skipun í fulltrúaráð Eyþings - breyting

Málsnúmer 201810034Vakta málsnúmer

Á 884. fundi byggðaráðs þann 18.10.2018 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Eyþingi, dagsett þann 4. október 2018, er varðar skipun í fulltrúaráð Eyþings. Dalvíkurbyggð á rétt á 2 fulltrúum.

Óskað er eftir upplýsingum um skipun fulltrúa í síðasta lagi 22. október n.k.

Lagt er til að fulltrúar Dalvíkurbyggðar verði:

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Kristján Hjartarson

Sveitarstjóri situr einnig fundi fulltrúaráðsins sem stjórnarmaður í Eyþingi.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu."

Breytingartillaga: Þar sem fyrir liggur að sveitarstjóri er annar af 2 fulltrúum Dalvíkurbyggðar er lagt til að hinn fulltrúi Dalvíkurbyggðar í ráðinu verði Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.

Til umræðu ofangreint.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu.

Fundi slitið - kl. 10:50.

Nefndarmenn
  • Jón Ingi Sveinsson formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
  • Dagbjört Sigurpálsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs