Byggðaráð

1182. fundur 07. maí 2026 kl. 13:15 - 16:10 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Öldungaráð; fundir og samskipti 2026

Málsnúmer 202601075Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Valdimar Bragason, Kolbrún Pálsdóttir og Helga Matthína Björnsdóttir, fulltrúar Félags eldri borgara í Öldungaráði og Hildigunnur Jóhannesdóttir fulltrúi HSN, og Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, kl. 13:15.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi síðasta fundargerð Öldungaráðs frá 12. mars sl.

Til umræðu:
a) Farið yfir síðustu fundargerð.
b) Önnur mál.


Eyrún Ingibjörg hélt fundargerð Öldungaráðs sem verður sent fulltrúum Öldungaráðs til yfirferðar og samþykktar eftir fundinn.

Eyrún vék af fundi kl. 14:01
Valdimar, Kolbrún, Helga Mattína og Hildigunnur viku af fundi kl. 14:04.
Lagt fram til kynningar.
Félag eldri borgara þakkar kærlega fyrir samstarfið í Öldungaráði og sérstakar þakkir fær sviðsstjóri félagsmálasviðs.
Á fundinum var undirritaður styrktarsamningur á milli Félags eldri borgara og Dalvíkurbyggðar sem samþykktur var í sveitarstjórn 4. nóvember sl.

2.Frá 1. fundi fjölskylduráðs þann 14.4.2026; Golfklúbburinn Hamar - vallarstjóri - rekstrarstjóri

Málsnúmer 202602143Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Bjarni Jóhann Valdimarsson, formaður stjórnar Golfkúbbsins Hamars, Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 14:06:

Á 1181. fundi byggðaráðs þann 30. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1. fundi fjölskylduráðs Dalvíkurbyggðar þann 14. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir erindi frá Golfklúppnum Hamri. Varðandi ráðningu á vallarstjóra- rekstrarstjóra.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita GHD 3.000.000 kr. Íþróttafulltrúa falið að óska eftir viðauka til Byggðaráðs og að endurskoða rekstrarsamning GHD eftir sumarið.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað íþróttafulltrúa og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 10. apríl sl., þar sem þróttafulltrúi leggur til að GHD fái styrk til þess að ráða vallar- og rekstrarstjóra til frambúðar. Gerður verði viðauki upp á kr.3.000.000 til að mæta auka fjárþörf GHD vegna ráðningarinnar út árið. Í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu næstu ára verði íþróttafulltrúa falið að endurskoða rekstrarsamning GHD við Dalvíkurbyggð þar sem gert verði ráð fyrir vallarstjóra og rekstrarstjóra í fullu starfi. Ljóst sé að ekki er hægt að sjá um golfvöll í sjálfboðaliðavinnu nú á tímum, auk þess í starfi vallarstjóra golfvalla felst mikil sérþekking. Með því að
samtvinna vallar- og rekstarstjóra störf hjá GHD væri hægt að eyða óvissu um umsjón golfvallarins. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig viðaukabeiðni íþróttafulltrúa, dagsett þann 20. apríl sl., þar óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 3.000.000 á lið 06800-9145 vegna þessa viðbótarstyrks.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta málinu um viku."

Til umræðu ofangreint.

Bjarni Jóhann vék af fundi kl. 14:32.
Jón Stefán og Gísli viku af fundi kl. 14:40.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni að upphæð kr. 3.000.000 vegna styrks til Golfklúbbsins Hamars vegna ráðningar vallar- og rekstrarstjóra, viðauki 23 við fjárhagsáætlun 2026, vísað á lið 06800-9145 í fjárhagsáætlun 2026.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029

Málsnúmer 202602141Vakta málsnúmer

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdardeildar, kl. 14:43.

Á 388. fundi sveitarstjórnar þann 17. mars sl. var eftirfarandi bókað:
Á 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13. mars sl. var eftirfarandi bókað:
Fyrir fundinum lá minnisblað Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem farið var yfir stöðu á útboði
snjómoksturs og hálkuvarna 2026-2029. Búið er að semja við ráðgjafa vegna vinnu við útboðið og stefnt á auglýsingu í apríl.
Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir framlagða tillögu deildarstjóra um að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes
hins vegar. Þetta fyrirkomulag hefur verið á þjónustunni undanfarin ár og gefist vel.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Niðurstaða : Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og dreifbýlisráðs og samþykkir að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes hins vegar. Snjómokstur og hálkuvarnir í framdölum Svarfaðar- og Skíðadals verði áfram utan útboðs og sama verklag verði áfram viðhaft - þ.e. að sveitarfélagið gangi inn í samning Vegagerðarinnar."

Deildarstjóri kynnti drög að útboðsgögnum varðandi ofangreint útboð.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi að útboðsgögn.

4.Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Rekstur tjaldsvæðisins á Dalvík - Verðfyrirspurn 2026

Málsnúmer 202603083Vakta málsnúmer

Á 1181. fundi byggðaráðs þann 30. apríl sl. var m.a. eftirfarandi bókað:

"Dalvíkurbyggð óskaði eftir verðtilboði í rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík, sbr. auglýsing er birtist þann 19. mars sl. https://www.dalvikurbyggd.is/is/frettir-og-tilkynningar/verdtilbod-oskast-i-rekstur-a-tjaldstaedinu-a-dalvik

Tvö tilboð bárust en hvorug uppfylla þær kröfur sem gerðar voru um skil á fylgigögnum. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra, dagsett þann 30. apríl 2026, þar sem gert er grein fyrir málinu. Fram kemur að taka þarf afstöðu til þess hvort ganga eigi til samninga við annan hvorn tilboðsgjafanna eða auglýsa reksturinn aftur.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að gengið verði til samninga við Knattspyrnudeild UMFS Dalvík um rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík."

Deildarstjóri gerði grein fyrir vinnu á milli funda og á fundinum var farið yfir meðfylgjandi drög að samningi um rekstur á tjaldsvæðinu til 3ja ára. Knattspyrnudeild UMFS hefur fengið drögin til yfirlestrar.

Helga Íris vék af fundi kl. 15:08.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi samningsdrög eins og þau liggja fyrir, fyrir sitt leiti.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Verbúðir - tilboð

Málsnúmer 202501076Vakta málsnúmer

Á 389. fundi sveitarstjórnar þann 21. apríl sl. var byggðaráði og hafnastjóra /sveitarstjóra falið að annast söluferlið á verbúðum í eigu Hafnasjóðs og koma með tillögur til sveitarstjórnar.

Á fundinum var farið yfir þau tilboð sem liggja fyrir.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna því tilboði sem liggur fyrir þar sem það er of lágt.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Hauganes flotbryggja, verknúmer HH005

Málsnúmer 202605046Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá sveitarstjóra, dagsett þann 7.maí 2026, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr.9.403.710 vegna flotbryggju á Hauganesi. Á fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir að flotbryggja á Hauganesi verði lengd um 20 metra og gert ráð fyrir framlagi Dalvíkurbyggðar að upphæð kr. 4.600.000 sem er áætlaður hluti sveitarfélagsins og gert ráð fyrir að Vegagerðin /Hafnabótasjóður komi með framlag á móti. Á þessum tímapunkti er alls óvíst hvort að Hafnabótasjóður komi með framlag á móti með vísan í dóm sem féll í Landsrétti 30. október 2025 vegna farþegagjalds. Þar sem vorið er komið og það getur tekið allt að tvo mánuði þar til flotbryggjan verður uppsett er óskað eftir ofangreindum viðauka með þeirri von að Hafnabótasjóður komi að málumá seinni stigum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 24 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 9.403.710 á lið 42200-11551, verkefni HH005.Byggðarað samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202601036Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni, viðauka nr.25 að upphæð kr. 3.316.320 á lið 02570-9145.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

8.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202512031Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæuðm ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 22 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 6.443.399.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarsjtórnar.

9.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202509123Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

10.Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Málsnúmer 202605002Vakta málsnúmer

a) Auglýsing

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að auglýsingu vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027.

b) Timarammi.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að tímaramma vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 í samræmi við Samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir að tillaga um dagsetningar er varðar launaáætlun í júní/sumar eru með fyrirvara vegna innleiðingar á nýju launakerfi og launaáætlunarkerfi.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að auglýsingu.
Vísað til umfjöllunar og afgeiðslu sveitarstjórnar.

b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að tímaramma með þeim fyrirvara sem gert er grein fyrir hér að ofan.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

11.Frá Veiðifélagi Svarfaðardalsár; aðalfundur

Málsnúmer 202604092Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ársreikningur Veiðifélags Svarfaðardalsár fyrir árið 2025 en fundurinn var haldinn 29. apríl sl.
Kristinn Bogi Antonsson sat fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar samkvæmt umboði frá sveitarstjórn.
Lagt fram til kynningar.

12.Ársreikningur 2025; Flokkun Eyjafjörður ehf.

Málsnúmer 202605005Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgi rafpóstur frá framkvæmdastjóra Moltu, dagsettur þann 30. apríl sl., þar sem kynntur er ósamþykktur ársreikningur Flokkunar fyrir árið 2025. Gert er ráð fyrir að boða fljótlega til stjórnarfundar og svo aðalfund í haust, eftir kosnignar.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025

14.Til umsagnar 595.mál frá nefnda- og greininarsviði Alþingis; Loftslagslög

Málsnúmer 202604253Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur, dagsettur þann 24. apríl sl., þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar595. mál - Loftslagslög.
Frestur til að senda inn umsögn ertil og með 8. maí nk
Lagt fram til kynningar.

15.Fra leikskólastjóra; Ísat kennsla í Krílakoti

Málsnúmer 202602033Vakta málsnúmer

Á 1175. fundi byggðaráðs þann 19. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 313. fundi fræðsluráðs þann 11. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
Á leikskólanum Krílakoti eru það 44,7% nemenda sem þörf er á að veita einhverskonar stuðning í námi. Til þess að skólinn geti komið til móts við þarfir nemenda óskar leikskólastjóri eftir heimild til þess að ráða sérkennara í 75% starfshlutfall, svo hægt sé að þjónusta betur þennan hóp nemenda, upp á framhaldið þegar þau fara í grunnskólann.
Niðurstaða : Valgerður Inga Júlíusdóttir fór yfir skipulag og aukna þörf fyrir sérkennslu á Krílakoti. Fræðsluráð samþykkir samhljóða 5 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að samþykkja 75% stöðugildi sérkennara með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti. Valgerður fór af fundi kl. 8:30
Una kom til fundar kl. 8:39"

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá leikskólastjóra Krílakots, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 6.583.199 vegna ráðningu í ofangreint starf miðað við frá 16. mars nk. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu."

Með fundarboði byggðráðs fylgdi erindi leikskólastjóra, dagsett þann 7. maí 2026, þar sem fram kemur að eftir skoðun á starfsmannahaldi næsta vetur þá sé svigrúm fyrir 75% stöðugildi innan þeirrar stöðugildaheimildar sem skólinn hefur samkvæmt fjárhagsáætlun 2026. Óskað er því eftir heimild til að eyrnamerkja 75% stöðugildi sérkennslustarfi (viðbót) og því ekki er þörf á viðbótar fjárheimild vegna þessa.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi leikskólastjóra og veitir heimild fyrir því að ráðið verði í viðbótar 75% stöðugildi í sérkennslu með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti, frá og með 4. ágúst nk. eins og óskað er eftir í erindi leikskólastjóra.
Viðauki vegna hækkunar á launaáætlun skólans að upphæð kr. 6.583.199, nr. 9 í fjárhagsáætlunarkerfi, fellur þá niður.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 16:10.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs