Á 1. fundi fjölskylduráðs Dalvíkurbyggðar þann 14. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Golfklúppnum Hamri. Varðandi ráðningu á vallarstjóra- rekstrarstjóra.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita GHD 3.000.000 kr. Íþróttafulltrúa falið að óska eftir viðauka til Byggðaráðs og að endurskoða rekstrarsamning GHD eftir sumarið."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað íþróttafulltrúa og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 10. apríl sl., þar sem þróttafulltrúi leggur til að GHD fái styrk til þess að ráða vallar- og rekstrarstjóra til frambúðar. Gerður verði viðauki upp á kr.3.000.000 til að mæta auka fjárþörf GHD vegna ráðningarinnar út árið. Í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu næstu ára verði íþróttafulltrúa falið að endurskoða rekstrarsamning GHD við Dalvíkurbyggð þar sem gert verði ráð fyrir vallarstjóra og rekstrarstjóra í fullu starfi. Ljóst sé að ekki er hægt að sjá um golfvöll í sjálfboðaliðavinnu nú á tímum, auk þess í starfi vallarstjóra golfvalla felst mikil sérþekking. Með því að samtvinna vallar- og rekstarstjóra störf hjá GHD væri hægt að eyða óvissu um umsjón golfvallarins.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig viðaukabeiðni íþróttafulltrúa, dagsett þann 20. apríl sl., þar óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 3.000.000 á lið 06800-9145 vegna þessa viðbótarstyrks.