Á 313. fundi fræðsluráðs þann 11. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Á leikskólanum Krílakoti eru það 44,7% nemenda sem þörf er á að veita einhverskonar stuðning í námi. Til þess að skólinn geti komið til móts við þarfir nemenda óskar leikskólastjóri eftir heimild til þess að ráða sérkennara í 75% starfshlutfall, svo hægt sé að þjónusta betur þennan hóp nemenda, upp á framhaldið þegar þau fara í grunnskólann.
Niðurstaða : Valgerður Inga Júlíusdóttir fór yfir skipulag og aukna þörf fyrir sérkennslu á Krílakoti. Fræðsluráð samþykkir samhljóða 5 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að samþykkja 75% stöðugildi sérkennara með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti. Valgerður fór af fundi kl. 8:30
Una kom til fundar kl. 8:39"
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá leikskólastjóra Krílakots, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 6.583.199 vegna ráðningu í ofangreint starf miðað við frá 16. mars nk.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða 5 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að samþykkja 75% stöðugildi sérkennara með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti.
Valgerður fór af fundi kl. 8:30
Una kom til fundar kl. 8:39