Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 14:01.
Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að rekstur tjaldsvæðisins á Dalvík verði auglýstur sem fyrst og til grundvallar verði verðfyrirspurnargögnin frá 2025."
Dalvíkurbyggð óskaði eftir verðtilboði í rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík, sbr. auglýsing er birtist þann 19. mars sl.
https://www.dalvikurbyggd.is/is/frettir-og-tilkynningar/verdtilbod-oskast-i-rekstur-a-tjaldstaedinu-a-dalvikTvö tilboð bárust en hvorug uppfylla þær kröfur sem gerðar voru um skil á fylgigögnum. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra, dagsett þann 30. apríl 2026, þar sem gert er grein fyrir málinu. Fram kemur að taka þarf afstöðu til þess hvort ganga eigi til samninga við annan hvorn tilboðsgjafanna eða auglýsa reksturinn aftur.