Byggðaráð

1178. fundur 24. mars 2026 kl. 13:15 - 15:50 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir því að bæta máli nr. 202503032 á dagskrá, vinnuhópur um húsnæði byggðasafnsins.
Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.

1.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Samningur um byggingu reiðhallar

Málsnúmer 202509144Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs frá Hestamannafélaginu Hring, Lilja Guðnadóttir, formaður, og Þórir Áskelsson, varaformaður, Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:15.

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið mætti á fundinn Gísli Bjarnson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 14:07.Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, boðaði forföll.
Á 384. fundi sveitarstjórnar þann 18.nóvember sl. var fjárfestingasamningur á milli Dalvíkurbyggðar og Hestamannafélgsins Hrings vegna byggingu reiðhallar í Hringsholti tekinn til umfjöllunar og afgreiðslu. Fyrirliggjandi samningur var samþykktur samhljóða. Styrktarfjárhæð er alls 133 m.kr.
Á 185. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Hestamannafélagið Hringur hefur óskað eftir að samningur um byggingu nýrrar reiðhallar félagsins við Dalvíkurbyggð verði tekinn upp og styrktarupphæðir endurskoðaðar. Fyrirliggjandi kostnaðaráætlun við framkvæmdina frá félaginu.
Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum, uppfærðan samning sveitarfélagsins við Hestamannafélagið Hring."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað íþróttafulltrúa, dagsett þann 10. mars sl., þar sem farið er yfir ferlið við gerð samningsins um styrk til Hestamannafélagsins Hrings til byggingu reiðhallar. Við upptöku samningsins er nú lagt til að styrktarfjárhæðin verði alls 170 m.kr.
Til umræðu ofangreint.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá stjórn Hestamannafélagsins Hrings á fund byggðaráðs ásamt íþróttafulltrúa og sviðsstjóra fræðslu-og menningarsviðs."

Til umræðu ofangreint.


Lilja, Þórir og Jón Stefán viku af fundi kl. 14:00.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá hönnun á reiðhöllunni frá Hestamannafélaginu Hringi áður en ákveðið verður hvort verða eigi við ósk um hækkun á fjárfestingastyrk umfram 133 m.kr.
Fyrir liggur frá árinu 2024 styrkur frá sveitarfélaginu vegna hönnunar.
Einnig að fá greinargerð og rökstuðning frá Hestamannafélaginu varðandi nýtingu á nýrri reiðhöll.

2.Vinnuhópur um húsnæði byggðasafnsins

Málsnúmer 202503032Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Til umræðu staða mála hvað varðar áætlanir um byggingu á nýju byggðasafni.
Freyr Antonsson gerði grein fyrir stöðu mála.
Næsti fundur vinnuhóps er næst komandi þriðjudag. Þar mætir arkitekt með tillögur að byggðasafni; viðbygging við Berg. Sveitarstjórn er boðið að koma á fundinn kl. 14:00.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Fanney Hauksdóttir, arkitekt, og fulltrúar í vinnuhópi um húsnæði byggðasafns, Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, Emil J. Einarsson, Lovísa María Sigurgeirsdóttir, formaður menningarráðs, Björk Eldjárn Kristjánsdóttir, kl. 14:00.

Til umræðu fyrirliggjandi tillögur og hugmyndir að nýbyggingu byggðasafns við Menningarhúsið Berg.

Fanney, Helga Íris, Emil, Lovísa María, Björk og Gísli viku af fundi kl. 14:40.
Lagt fram til kynningar.

3.Frá Sjómannadagsráði; Ósk um framlag frá Dalvíkurbyggð vegna klósettgáms.

Málsnúmer 202603086Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sigmari Erni Harðarsyni, dagsett þann 13. mars sl., þar sem óskað er eftir fyrir hönd Sjómannadagsráðs framlagi frá Dalvíkurbyggð vegna leigu eða kaupa á klósettgámi til að hafa á hafnarsvæði og við Íþróttamiðstöðina á Sjómannadaginn 6. júní nk. Leiguverð í einn mánuð er um 239 þkr. og kaupverð er um 3,9 m.kr.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlag að upphæð kr. 230.000, vísað á deild 05810.
Byggðaráð minnir á að árlega auglýsir sveitarfélagið eftir erindum, tillögum og óskum frá íbúum og félagasamstökum vegna vinnu við fjárhagsáætlun. Umsóknarfrestur í ár verður líklega um miðjan ágúst.
sjá einnig reglur sveitarfélagsins varðandi umsóknir almennt um styrki: https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/120320-styrkveitingar-almennar-reglur-dalvikurbyggdar.pdf

4.Frá sveitarstjóra; Beiðni um þjónustusamning vegna starfs byggingafulltrúa

Málsnúmer 202409170Vakta málsnúmer

Á 385. fundi sveitarstjórnar þann 16. desember sl. var samþykkt erindi sveitarstjóra um að framlengja samningi við Akureyrarbæ vegna þjónustusamnings vegna starfs byggingarfulltrúa til og með 31. mars 2026. Útfærslan er með þeim hætti að bygginarfulltrúi er í 55% starfi hjá Dalvíkurbyggð og þjónusta annarra starfsmanna byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar er skv. tímavinnu.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að framlengingu á samningi um verktakagreiðslur vegna embættis bygginarfulltrúa á milli Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbæjar um 6 mánuði eða til og með 30. september 2026. Fram kemur að aðilar eru sammála um að halda samstarfinu áfram en vinna þarf að nýjum heildarsamningi fyrir þjónustu byggingafulltrúa. Stefnt er að því að sá samningur taki gildi þann 1.október 2026 og verði ótímabundinn en uppsegjanlegur með 12 mánaða fyrirvara.

Í fjárhags- og launaáætlun Dalvíkurbyggðar 2026 er gert ráð fyrir áframhaldandi starfi byggingarfulltrúa út árið í 55% stöðugildi.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi og ofangreind samningsdrög.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Frá sveitarstjóra; Ráðhús endurbætur á skrifstofum - aðkeypt þjónusta ráðgjafa.

Málsnúmer 202602150Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar um tilboð frá Kollgátu arkitektarstofu varðandi tíma- og verkáætlun vegna fyrirhugaðara endurbóta á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar, alls um 7,2 m.kr með vsk. Gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði tilbúin til auglýsingar 1. september.
Einnig er gert ráð fyrir aðkomu verkfræði- og ráðgjafastofunnar Lotu sem eru sérfræðingar í innivist.
Lagt fram til kynningar.

6.Slökkvistöð, nýbygging E2301

Málsnúmer 202602090Vakta málsnúmer

Á 1175. fundi byggðaráðs þann 19. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15 og frá Faglausn í gegnum TEAMS Almar Eggertsson, kl. 13:15.
Á fundi sveitarstjórnar þann 17. febrúar sl. var samþykkt að leggja niður vinnuhóp í tengslum við húsnæðismál Slökkviliðs Dalvíkur og málið unnið áfram í gegnum byggðaráð.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillöguteikning; grunnmynd af Slökkvistöð, dagsett þann 17.02.2026.
Almar vék af fundi kl. 13:51.
Helga Íris vék af fundi kl. 14:08.
Niðurstaða : Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu."

Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
Lagt fram til kynningar.

7.Viðbygging fyrir verknámsaðstöðu VMA; samningur

Málsnúmer 202312065Vakta málsnúmer

Á 365. fundi sveitarstjórnar þann 23. janúar 2024 var samþykkt að Dalvíkurbyggð taki þátt í verkefninu vegna viðbyggingar sem fyrirhuguð er fyrir verknámsaðstöðu við Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA). Hlutdeild Dalvíkurbyggðar í kostnaði yrði 2,867% skv. fyrirliggjandi samningsdrögum. Sveitarstjórn samþykkti fyrirliggjandi samningsdrög og fól sveitarstjóra að skrifa undir samning mennta- og barnamálaráðuneytisins við sveitarfélögin við Eyjafjörð vegna ofangreind verkefnis.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ofangreindur samningur undirritaður með undirritun fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, sveitarstjóranna í Eyjafirði og fyrrverandi skólameistara VMA, dagsettur þann 17. maí 2024. Staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins/ráðherra vantar.
Lagt fram til kynningar.

8.Frá Innviðaráðuneytinu; Frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 202603079Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi póstur frá Innviðaráðuneytinu, dagsettur þann 11. mars sl., þar sem fram kemur að þann 5. mars sl. mælti innviðaráðherra fyrir frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga á Alþingi. Málið er nú til meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd, sem óskar eftir umsögnum um efni þess.Frestur til að skila umsögn um frumvarpið var til 20. mars s.l. Innviðaráðuneytið hefur tekið saman fylgigögn til að auðvelda yfirferð og vinnslu málsins. Þau má sjá á vef Alþingis, sjá hér:https://www.althingi.is/altext/erindi/157/157-1901.pdf.

Ráðuneytið hvetur sveitarfélög og landshlutasamtök eindregið til að kynna sér frumvarpið og þær breytingar sem í því felast. Mikilvægt er að sjónarmið þeirra komi fram í umsagnarferlinu hjá nefndinnitil að tryggja vandaða endurskoðun laganna.
Lagt fram til kynningar.

9.Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsögn vegna umsóknar -Fjöruböð

Málsnúmer 202603123Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 19. mars sl., þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um rekstrarleyfi veitinga í flokki II frá Fjöruböðunum ehf, vegna Fjörukaffis
Yfirlitsmynd fylgir með, útisvæðið er pallar og setusvæði og pottarnir samkvæmt upplýsingum umsækjanda
Fasteignanúmerið er skráð sem landeignanúmer en framkvæmdir vegna þjónustuhúss eru framundan.

Á 44. fundi fundi skiplagsráðs þann 3. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett þann 12. febrúar 2026 þar sem Fjöruböðin ehf. sækja um stöðuleyfi til eins árs fyrir kaffihús við Fjöruböðin á Hauganesi.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við erindið og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."

Samkvæmt upplýsingum inn á fundinn þá hefur byggingarfulltrúi ekki afgreitt stöðuleyfi og slökkviliðsstjóri getur ekki tekið málið til vinnslu fyrr en byggingin er risin.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta umfjöllun og afgreiðslu.

10.Mánaðarlegar skýrslur 2026; janúar - febrúar

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti eftirfarandi skýrslur:
Staða bókhalds janúar- febrúar í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun 2026.
Staða launa janúar-febrúar í samanburði við heimildir í launa- og fjárhagsáætlun 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Dagskrá á Ársþingi SSNE 2026

Málsnúmer 202602146Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá SSNE, póstur dagsettur þann 25. febrúar sl., þar sem meðfylgjandi er formlegt boð á ársþing SSNE 2026.Ársþingið verður haldið í Menningarhúsinu Bergi 26. mars nk. Allt sveitarstjórnarfólk er hvatt til þess að mæta.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi dagskrá ársþingsins.
Lagt fram til kynningar.

12.Frá SSNE; Fundargerðir SSNE 2026

Málsnúmer 202601071Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar SSNE nr. 81 frá 5. mars sl.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202602001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambandsins nr. 995 frá 10. mars sl.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:50.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs