Slökkvistöð, nýbygging

Málsnúmer 202602090

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1175. fundur - 19.02.2026

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15 og frá Faglausn í gegnum TEAMS Almar Eggertsson, kl. 13:15.

Á fundi sveitarstjórnar þann 17. febrúar sl. var samþykkt að leggja niður vinnuhóp í tengslum við húsnæðismál Slökkviliðs Dalvíkur og málið unnið áfram í gegnum byggðaráð.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillöguteikning; grunnmynd af Slökkvistöð, dagsett þann 17.02.2026.

Almar vék af fundi kl. 13:51.
Helga Íris vék af fundi kl. 14:08.

Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.

Byggðaráð - 1178. fundur - 24.03.2026

Á 1175. fundi byggðaráðs þann 19. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15 og frá Faglausn í gegnum TEAMS Almar Eggertsson, kl. 13:15.
Á fundi sveitarstjórnar þann 17. febrúar sl. var samþykkt að leggja niður vinnuhóp í tengslum við húsnæðismál Slökkviliðs Dalvíkur og málið unnið áfram í gegnum byggðaráð.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillöguteikning; grunnmynd af Slökkvistöð, dagsett þann 17.02.2026.
Almar vék af fundi kl. 13:51.
Helga Íris vék af fundi kl. 14:08.
Niðurstaða : Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu."

Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
Lagt fram til kynningar.

Byggðaráð - 1181. fundur - 30.04.2026

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Almar Eggertsson, frá Faglausn, kl. 13:17 í gegnum TEAMS.


Á 1178. fundi byggðaráðs þann 24. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1175. fundi byggðaráðs þann 19. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15 og frá Faglausn í gegnum TEAMS Almar Eggertsson, kl. 13:15.
Á fundi sveitarstjórnar þann 17. febrúar sl. var samþykkt að leggja niður vinnuhóp í tengslum við húsnæðismál Slökkviliðs Dalvíkur og málið unnið áfram í gegnum byggðaráð.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillöguteikning; grunnmynd af Slökkvistöð, dagsett þann 17.02.2026.
Almar vék af fundi kl. 13:51.
Helga Íris vék af fundi kl. 14:08.
Niðurstaða : Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála."
Niðurstaða : Lagt fram


Á fundinum var farið yfir nýjustu samskipti sveitarstjóra við Faglausn um verkefnið ásamt teikningum frá Faglausn, sbr. rafpóstur dagsettur þann 30.04.2026, miðað við staðsetningu við Ólafsfjarðarveg.

Almar vék af fundi kl. 14:02.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að útbúa kynningargögn fyrir íbúa til birtingar á vefmiðlum Dalvíkurbyggðar.