Með fundarboði byggðaráðs fylgdi póstur frá Innviðaráðuneytinu, dagsettur þann 11. mars sl., þar sem fram kemur að þann 5. mars sl. mælti innviðaráðherra fyrir frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga á Alþingi. Málið er nú til meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd, sem óskar eftir umsögnum um efni þess.Frestur til að skila umsögn um frumvarpið var til 20. mars s.l. Innviðaráðuneytið hefur tekið saman fylgigögn til að auðvelda yfirferð og vinnslu málsins. Þau má sjá á vef Alþingis, sjá hér:
https://www.althingi.is/altext/erindi/157/157-1901.pdf.Ráðuneytið hvetur sveitarfélög og landshlutasamtök eindregið til að kynna sér frumvarpið og þær breytingar sem í því felast. Mikilvægt er að sjónarmið þeirra komi fram í umsagnarferlinu hjá nefndinnitil að tryggja vandaða endurskoðun laganna.