Málsnúmer 202501059Vakta málsnúmer
Á 1175. fundi byggðaráðs þann 19. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Þann 8. janúar sl. voru útboðsgögn vegna útboðs á nýjum Vatnstanki í Upsa tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Útboðsgögnin voru samþykkt og samþykkt að auglýsa útboðið.
Með fundarboði byggðaráðs var meðfylgjandi opnunarskýrsla vegna ofangreinds útboðs, dagsett þann 13. febrúar sl., þar sem fram kemur að 3 tilboð bárust í verkið. Eftir er að fara yfir útboðin.
Niðurstaða : Lagt fram til kynninga"
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:
Skýrsla Faglausna varðandi yfirferð innsendra tilboða, dagsett þann 23.02.2026.
Fram kemur að þegar litið er til gildra tilboða þá er Tréverk með lægsta boð kr. 125.790.560,- og því lagt til að gengið verði til samninga við það.
Fundargerð vinnuhóps um vatnstank, dagsett þann 23.02.2026, þar sem fram kemur að vinnuhópurinn er sammála tillögu Faglausna, umsjónaraðila með útboðinu, að gengið verði til samninga við Tréverk ehf. um byggingu vatnstanks við Upsa.