Frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga; Fagur fiskur í sjó - Sjávarútvegsfundur 2026

Málsnúmer 202602125

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1176. fundur - 26.02.2026

Tekinn fyrir rafpóstur frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga, dagsettur þann 23. febrúar sl., þar sem Samtök sjávarútvegssveitarfélaga boða til Sjávarútvegsfundar fyrir aðildarsveitarfélög, ráðherra, þingmenn, aðila
innan sjávarútvegs og aðra áhugasama undir yfirskriftinni:Fagur fiskur í „sjó.“ Breytt umhverfi í sjávarútvegi og áhrif á sjávarbyggðir
Fundurinn fer fram miðvikudaginn 4. mars kl. 9:30-11:30 og fer fram á Drift, Strandgötu 1, Akureyri.
Sveitarsjóri mun sækja fundinn sem varamaður í stjórn samtakanna.