Málsnúmer 202506144Vakta málsnúmer
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs í gegnum TEAMS Arnar Haraldsson og Haraldur L. Haraldsson frá HLH Ráðgjöf og Benedikt Snær Magnússon, formaður veitu- og hafnaráðs, kl. 14:00.
Á 383. fundi sveitarstjórnar þann 4. nóvember 2025 var eftirfarandi bókað:
"Á 1165. fundi byggðaráðs þann 30. október sl. var eftirfarandi bókað:
Á 382. fundi sveitarstjórnar þann 16. september sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
Forseti sveitarstjórnar sem leggur til að sveitarstjórn samþykki að taka aftur upp viðræður við Hafnasamlag Norðurlands um inngöngu Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar í samlagið og að viðræðuhópinn skipi Byggðarráð, formaður og varaformaður veitu-og hafnaráðs ásamt hafnarstjóra.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tilboð frá HLH ráðgjöf, dagsett þann 24. október sl., í vinnu vegna greiningar á sameiningu Hafnasamlags Norðurlands og Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint tilboð fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að leggja fyrir sveitarstjórn viðaukabeiðni vegna þessa verkefnis."2
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi viðaukabeiðni sveitarstjóra, dagsett þann 31. október sl., þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.991.000 á lið 41210-4391 vegna 50% hlutdeildar Dalvíkurbyggðar í aðkeyptri þjónustu vegna viðræðna um inngöngu Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar í Hafnasamlag Norðurlands. Um er að ræða kostnað vegna tilboðs frá HLH ráðgjöf, vinnu frá Siglingasviði Vegagerðarinnar og 10% ófyrirséður kostnaður.
a) Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum tilboð frá HLH ráðgjöf fyrir sitt leyti; Kristinn Bogi Antonsson og Monika Margrét Stefánsdóttir sitja hjá.
b) Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2025, viðauki nr. 55, að upphæð kr. 1.991.000 á lið 41210-4391 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Kristinn Bogi Antonsson og Monika Margrét Stefánsdóttir sitja hjá."
Arnar og Haraldur kynntu drög á greiningu á sameiningu Hafnasamlag Norðurlands og Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Arnar og Haraldur viku af fundi kl. 15:34.
Benedikt Snær vék af fundi kl. 15:40.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela deildarstjóra EF-deildar og íþróttafulltrúa að vinna áfram að málinu og leggja fyrir byggðaráð tillögu að lausn skv. leið 3 ásamt viðaukabeiðni.