Umhverfisráð

298. fundur 01. desember 2017 kl. 08:15 - 10:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Marinó Þorsteinsson aðalmaður
  • Ásdís Svanborg Jónasdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Guðrún Anna Óskarsdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Ásdís Svanborg Jónasdóttir.

1.Umsókn um breytingar á Reynihólum 8

Málsnúmer 201711100Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags.26. nóvember 2017 óska eigendur að Reynihólum 8, Dalvík eftir leyfi fyrir svalahurð, sólpalli og potti samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að grendarkynna framkvæmdina til eftirtalinna:
Böggvisbraut 13,15 og 17
Reynihólar 2,4,6 og 10.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

2.Innviðir fyrir rafbíla - styrkur Orkusjóðs

Málsnúmer 201706015Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tillaga ON að staðsetningu hraðhleðslustöðvar á Dalvík.
Umhverfisráði Dalvíkurbyggðar lýst vel á framlagða tillögu og leggur til að Orka Náttúrunnar vinni áfram að verkefninu með N1.

3.Fjárhagsáætlun 2018: endurnýjun og/eða viðhald á stoðvegg á lóðarmörkum við Hafnarbraut 16 og 18

Málsnúmer 201708036Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Herberti Hjálmarssyni, Guðrúnu F. Skarphéðinsdóttur, Hólmfríði A. Gísladóttur og Júlíusi Baldurssyni, dagsett þann 4. ágúst 2017, þar sem óskað er eftir að stoðveggur á lóðamörkum við Hafnarbraut verði endurnýjaður og/eða honum viðhaldið.

Á 295. fundi umhverfisráðs var erindinu frestað þar til álit lögmanns sveitarfélagsins lægi fyrir.
Með vísan til álits lögmanns Dalvíkurbyggðar ber Dalvíkurbyggð
ekki ábyrgð á kostnaði vegna viðhalds veggjanna. Þeir standa innan lóðarmarka og teljast til séreignar eins og hún er skilgreind m.a. í lögum um fjöleignarhús. Óljósar upplýsingar um aðkomu sveitarfélagsins að byggingu veggjanna á sínum tíma breyta ekki þessari niðurstöðu. Ekkert liggur fyrir um að Dalvíkurbyggð hafi áður komið að viðhaldi veggjanna sem þá þýðir væntanlega að eigendur húsanna hafa sinnt viðhaldinu hingað til.
Þáttöku sveitarfélagsins er því hafnað.

Samþykkt með 5 atkvæðum.

4.Deiliskipulag íþróttasvæðis 2017

Málsnúmer 201708069Vakta málsnúmer

Drög að deiliskipulagi íþróttasvæðis á Dalvík ásamt umsögnum vegna skipulagslýsingar lögð fram til kynningar og umræðu.

Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að koma þeim ábendingum sem fram komu á fundinum til skipulagsráðgjafa sem lagðar verða fyrir næsta fund ráðsins. Sviðsstjóra er einnig falið að óska eftir áliti notenda svæðisins eftir að breytingar hafa verið gerðar samkvæmt minnisblaði fundarins.

Samþykkt með fimm atkvæðum

5.Deiliskipulag Fólkvangs

Málsnúmer 201402123Vakta málsnúmer

Til kynningar uppfærð skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags Fólkvangsins í Böggvisstaðarfjalli.
Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaaðilum á opnum íbúafundi í upphafi nýs árs.

Samþykkt með fimm atkvæðum

6.Deiliskipulag Lokastígsreitur_2017

Málsnúmer 201708070Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi við Lokastígsreit ásamt umsögnum vegna skipulagslýsingar.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með fimm atkvæðum

Fundi slitið - kl. 10:00.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Marinó Þorsteinsson aðalmaður
  • Ásdís Svanborg Jónasdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs