Umhverfisráð

291. fundur 16. júní 2017 kl. 08:15 - 11:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá

1.Umferðarmerkingar_2017

Málsnúmer 201705116Vakta málsnúmer

Til umræðu umferðarmerkingar í sveitarfélaginu.
Felix Jósafatsson varðstjóri lögreglunnar og Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri komu inn á fundinn kl. 08:16.
Ráðið leggur til að fenginn verði sérfræðingur í umferðaröryggi ásamt Felix Jósafatsyni varðstjóra á næsta fund ráðsins þar sem farið verður heilstætt yfir umferðarmerkingar í öllu sveitarfélaginu.

Felix vék af fundi kl. 09:04

Samþykkt með fimm atkvæðum

2.Umhirða við Sandskeið og aðliggjandi svæði

Málsnúmer 201606020Vakta málsnúmer

Til umræðu umhirða á lóðum við Sandskeið og nærliggjandi svæði eftir átak sem gert var í samvinnu við HNE í vor.
Undir þessum lið situr Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri.
Ráðið felur umhverfisstjóra að fjarlægja þá muni sem límt var á um miðjan maí í samráði við HNE fyrir lok júní 2017.
Tekið skal fram eigendur þessara muna hafa haft rúman tíma til að bregðast við.
Samþykkt með fimm atkvæðum

3.Beiðni um hraðahindrun í Svarfaðarbraut

Málsnúmer 201706064Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 1. júní 2017 óskar Jökull Bermann eftir að settar verði upp hraðahindranir í Svarfaðarbraut.
Ráðið þakkar Jökli fyrir innsent erindi og felur umhverfisstjóra að setja upp hraðahindrun milli Svarfaðarbrautar 8 og 10. Einnig óskar ráðið eftir að þrengingu verði komið upp milli Bjarkarbrautar 13 og 15 og leggur áherslu á að þær þreningar sem gert var ráð fyrir á Hafnarbraut verði settar upp sem fyrst.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

4.Framkvæmdir U&T 2017

Málsnúmer 201705135Vakta málsnúmer

Til umræðu framkvæmdir sumarsins.
Ráðið leggur til eftirfarandi breytingar á áður samþykktri framkvæmdaráætlun.
Gangstétt frá Aðalgötu að Hafnargötu á Hauganesi verði sett upp.
Gangstétt milli Öldugötu og Ægisgötu á Árskógssandi verði löguð ásamt því að farið verði fram á það við Vegagerðina að hraðahindrun á Árskógssandsvegi verði lagfærð.
Gangstéttir verði endurnýjaðar samkvæmt umræðum á fundinum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

5.Ósk um úrbætur frá íbúasamtökum á Árskógssandi

Málsnúmer 201706081Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 14. júní 2017 óska þau Valdís Erla, Ingi Valur, Anna Guðrún og Agnes Anna fyrir hönd íbúasamtaka á Árskógssandi að koma á framfæri tilmælum samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið þakkar fyrir innsent erindi og felur sviðsstjóra að ræða við verktaka skólaaksturs hvað varðar aðkomu að skýlinu ásamt því að ræða við vegagerðina vegna hraðahindrunar á Árskógssandsvegi.
Gangstétt milli Öldugötu og Ægisgötu verður lögð í sumar.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

6.Ósk um framkvæmdarleyfi vegna uppsettningu á ljósneti á Dalvík.

Málsnúmer 201706060Vakta málsnúmer

Með rafpósti dags. 12. júní 2017 óskar Kári Hólm eftir framkvæmdarleyfi fyrir hönd Mílu vegna lagningar á ljósneti á Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

7.Umsókn um lóð

Málsnúmer 201706062Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 7. júní 2017 óskar Ronnachain Khamsa-Ing og Phaksumohang Khogcharoen eftir lóðinni Böggvisbraut 14, Dalvík.
Umhverfisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að úthluta þeim Ronnachain Khamsa-Ing og Phaksumohang Khogcharoen lóðinni.

8.Umsókn um lóð við Böggvisbraut 20

Málsnúmer 201705106Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 2. júní frá Einari Ísfeld þar sem hann skilar inn lóð að Böggvisbraut 20.
Umhverfisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að verða við erindinu.

9.Umsókn um lóð

Málsnúmer 201705083Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 8. maí 2017 óskar Guðmundur A Sigurðsson eftir lóðinni Böggvisbraut 20, Dalvík.
Umhverfisráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að úthluta Guðmundi lóðinni.
Undir þessu lið lýsti Haukur Arnar Gunnarsson sig vanhæfan og vék af fundi kl. 10:36
Haukur Arnar kom aftur inn á fundin kl 10:40

10.Umsókn um lóð

Málsnúmer 201706065Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 13. júní 2017 óskar Gunnlaugur Svansson eftir lóðinni Sæbraut 5 til leigu.
Ráðið leggur til að málinu verði frestað til næsta fundar og sviðsstjóra falið að greina umsækjanda frá ástæðu þess.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Karl Ingi Atlason lýsti sig vanhæfan undir þessum lið og vék af fundi kl 10:40
Karl Ingi kom aftur inn á fundinn 10:45

11.Tillaga að breytingu á úthlutunarreglum byggingarlóða í Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 201410007Vakta málsnúmer

Til umræðu endurskoðun á úthlutunarreglum byggingarlóða í Dalvíkurbyggð.
Ráðið felur sviðsstjóra að leggja fyrir ráðið tillögur að breytingum fyrir næsta fund.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

12.Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.

Málsnúmer 201608099Vakta málsnúmer

Til kynningar lýsing dags. 12. maí 2017 á fyrirhugaðri breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og vinnslu deiliskipulags vegna laxaseiðaeldisstöðvar við Árskógssand.
Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að leita umsagnar um lýsinguna hjá umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun og að kynna hana almenningi í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

13.Varðar rafhleðslustöð og tengingu á henni

Málsnúmer 201702072Vakta málsnúmer

Til umræðu innsent erindi frá Ísorku móttekið 15. febrúar 2017 vegna uppsetningar og tengingar á rafhleðslustöð sem sveitarfélaginu barst að gjöf frá Orkusölunni ehf.
Á 288. fundi umhverfisráð Dalvíkurbyggðar þann 10. mars síðastliðinn var lagt til að setja hleðslustöðina á bílastæði vestan við Ráðhús Dalvíkurbyggðar. Eftir nánari skoðun er staðsetning talin hentugri við íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar. Sviðsstjóra falið að útfæra staðsetningu innan lóðar íþróttamiðstöðvarinnar í samráði við forstöðumann hennar. Ráðið bendir á að ekki var gert ráð fyrir fjármagni til uppsetningar á stöðinni í fjárhagsáætlun 2017.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

14.Umsókn um leyfi til uppsetningar á auglýsingaskilti við Þjóðveg.

Málsnúmer 201706086Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 15. júní 2017 óskar Agnes Anna Sigurðardóttir eftir leyfi til uppsetningar á auglýsingaskilti fyrir Kalda og Bjórböðin við þjóðveg samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið gerir ekki athugasemd við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi í samráði við Vegagerðina.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs