Umhverfisráð

277. fundur 13. maí 2016 kl. 08:15 - 09:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Helgi Einarsson Varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Guðrún Anna Óskarsdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Helgi Einarsson.

1.Garðveggur við Aðalbraut 6, Árskógsströnd.

Málsnúmer 201605023Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 1. maí óskar þau Rúnar Þór Ingvarsson og Þórunn Andrésdóttir eigendur að Aðalbraut 6, Árskógssandi, eftir úrbótum á lóðarmörkum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að ræða við bréfritara um frekari hugmyndir að úrbótum.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

2.Fundargerðir 2016

Málsnúmer 201602073Vakta málsnúmer

Til kynningar fundargerð HNE frá 9. mars 2016.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar felur sviðsstjóra að kalla eftir nánari upplýsingum um í hvaða farvegi úrbætur á heitloftsþurrkun sjávarafurða á Dalvík eru í. Að öðru leyti gerir ráðið ekki athugasemdir við framlagða fundargerð.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Ósk um skráningu lögheimilis

Málsnúmer 201403175Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 27. apríl 2016 óska þau Sigurður Hafsteinn Pálsson og Svanfríður Jónsdóttir eftir afstöðu umhverfisráðs til breytinga á deiliskipulagi frístundabyggðarinnar að Hamri.
Erindið lagt fram til kynningar, en þar sem ekki liggur fyrir álit lögmanns sveitarfélagsins er afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

4.Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir), 670. mál.

Málsnúmer 201605076Vakta málsnúmer

Til umsagnar 670. mál frá nefndasviði Alþingis.

Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir), 670. mál.





Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar telur ekki þörf á að sveitarfélagið sendi inn umsögn vegna ofnagreinds frumvarps til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum

5.Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, Atvinnu- og íbúasvæði Árskógssandi, Dalvíkurbyggð.

Málsnúmer 201605082Vakta málsnúmer

Til kynningar skipulagslýsing dags. 11. maí 2016 vegna aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulags fyrir Atvinnu- og íbúasvæði Árskógssandi, Dalvíkurbyggð.

Fyrirhugað er m.a. að stækka iðnaðar- , viðskipta- og þjónustusvæði.



Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að leita umsagnar um hana hjá umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun og að kynna hana almenningi í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Breytingar á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 - Hafnarsvæði Dalvík

Málsnúmer 201602026Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingum á aðalskipulagi hafnarsvæðis á Dalvík ásamt umhverfisskýrslu. Á breytingarblaðinu er einnig gert ráð fyrir vegtengingu á milli Böggvisbrautar og Upsa yfir Brimnesá. Einnig lagðir fram minnispunktar frá opnum íbúafundi sem haldin var 10.05.2016
Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar skal auglýsa tillöguna skv. 31. gr. sömu laga.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum

7.Deiliskipulag Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða

Málsnúmer 201401168Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða ásamt umhverfisskýrslu og minnispunktum frá opnum íbúafundi sem haldin var 10.05.2016.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt með 4 atkvæðum,Helga Íris Ingólfsdóttir situr hjá.



Helga Íris óskar eftir að eftirfarandi verði bókað:



1. Skipulagsuppdráttur er í mkv. 1:10.000. Æskilegt væri að helstu framkvæmdarsvæði væru sýnd á nákvæmari uppdráttum svo allir skilmálar skili sér með skýrum hætti.



2. Mörkun skipulagssvæðisins tel ég að nái of langt til suðurs. Skipuleggja ætti byggð við Sandskeið með þeirri byggð sem þar er sunnan við.



3. Ekki eru færð nægilega sterk rök fyrir landfyllingu norðan við ferjubryggju ( 1.3). Æskilegt væri að strandlínan fengi að halda sér, en að gert yrði ráð fyrir aðgengi almennings.





Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 09:45.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
  • Helgi Einarsson Varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs