Umhverfisráð

328. fundur 08. október 2019 kl. 13:15 - 17:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson formaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
  • Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2020; Breyting á götu í Hamarslandi

Málsnúmer 201908034Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sigurði H. Pálssyni og Svanfríði Jónsdóttur, dagsett 28. júlí 2019, þar sem þau óska eftir að Dalvíkurbyggð taki inn á fjárhagsáætlun sína fyrir árið 2020 að gera lagfæringar á götu í frístundabyggðinni í landi Hamars, nánar tiltekið fyrir framan hús þeirra á lóð B5.
Umhverfisráð leggur til að verkefnið verði fjármagnað af 10300 á fjárhagsáætlun 2020.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

2.Umsjónarnefnd fyrir friðland í Svarfaðardal - Nýr fulltrúi

Málsnúmer 201909029Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá umhverfisstofnun dags. 30. ágúst 2019 þar sem óskað er eftir tilnefningu í umsjónarnefnd friðlands Svarfdæla fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
Umhverfisráð leggur til að Steinþór Björnsson deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar verði fulltrúi Dalvíkurbyggðar í umsjónarnefnd friðlandsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Gjaldskrár umhverfis- og tæknisviðs 2020

Málsnúmer 201910016Vakta málsnúmer

Til umræðu hækkanir á gjaldskrám umhverfis- og tæknisviðs 2020
Ráðið leggur til að gjaldskrár umnhverfis- og tæknisviðs hækki sem nemur 2,5 %.
Samþykkt samhjóða með fimm atkvæðum.

4.Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis og tæknisviðs 2020

Málsnúmer 201909135Vakta málsnúmer

Til umræðu starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs 2020
Drög að starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs lögð fram til kynningar og umræðu.

5.Framkvæmdir umhverfis- og tæknisviðs 2020

Málsnúmer 201909134Vakta málsnúmer

Farið var yfir tillögur að framkvæmdum ársins 2020.
Umhverfisráð samþykkir og leggur til framlagðar framkvæmda og fjárfestingatillögur sem fela meðal annars í sér aukið fjármagn til endurnýjunar og viðhalds á gangstéttum og allra leiksvæða í sveitarfélaginu.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Áskorun vegna rusls sem mengar hafið.

Málsnúmer 201909133Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Íslenska sjávarklasanum, dagsett 26. september 2019, áskorun á sveitarfélög að taka fyrir fok úr ruslatunnum heimilissorps með því að bjóða bæjarbúum upp á einfaldar lausnir til að loka sorptunnum.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu til næsta fundar og felur sviðsstjóra að afla nánari upplýsinga um þær lausnir sem í boði eru ásamt kostnaði.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson formaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
  • Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs