Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

15. fundur 06. september 2019 kl. 08:45 - 10:00 í ráðhúsi Fjallabyggðar, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður
  • Steinunn Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Klemenz Bjarki Gunnarsson 1. varamaður
Starfsmenn
  • Magnús Guðmundur Ólafsson starfsmaður
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir sviðstjóri
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
Dagbjört Sigurpálsdóttir boðaði forföll og í hennar stað kemur Klemenz Bjarki Gunnarsson.
Ave Kara Sillaots boðaði forföll og í hennar stað kemur Þorsteinn Sveinsson.

1.Erindisbréf fyrir skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

Málsnúmer 201609066Vakta málsnúmer

Erindisbréf fyrir skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga lagt fram til kynningar og endurskoðunar.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga fór yfir erindisbréf nefndarinnar. Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar og deildastjóra fræðslu, frístunda og menningarmála í Fjallabyggð falið að uppfæra grein 2 í erindisbréfi í samræmi við grein 11 í samstarfssamningi milli sveitarfélaganna um rekstur TÁT. Endurskoðað erindisbréf skal lagt fyrir Byggðaráð Dalvíkurbyggðar og Bæjarráð Fjallabyggðar.

2.Breytingar á reglum um fjármál sveitarfélaga við gildistöku núverandi sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 201904116Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dagsett þann 23. apríl 2019
Tekið fyrir erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dagsett þann 23. apríl 2019, þar sem kynnt er frumkvæðisathugun ráðuneytisins frá því í janúar 2018 á grundvelli XI. kafla sveitarstjórnarlaga á því hvort og þá hvernig staðið hefði verið að breytingum á fjárhagsáætlunum þeirra sveitarfélaga þar sem misræmi á innsendum fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2016 og ársreikningum þeirra fyrir sama ár nam 5% eða meira. Það voru 26 sveitarfélög og var óskað eftir upplýsingum og skýringum frá hverju þeirra. Athugun ráðuneytisins hefur leitt i ljós að á umræddu ári var töluverður misbrestur á því að leitað væri heimildar sveitarstjórnar fyrir auknum útgjöldum og fjárfestingum áður en til þeirra var stofnað. Þessar niðurstöður leiða í ljós að framkvæmd fjárhagsáætlunar ársins 2016 var ekki í fullu samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga hjá a.m.k. þriðjungi sveitarfélaga landsins. Þeim sveitarfélögum sem tekin voru til skoðunar hefur þegar verið tilkynnt um niðurstöður athugarinnar. Ráðuneytið telur á hinn bóginn einnig mikilvægt að kynna öðrum sveitarfélögum þessa niðurstöðu og hvetja þau til að gæta þess að fjármálastjórn sé ávallt í fullu samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og reglugerðar um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015. Að síðustu skal það upplýst að ráðuneytið hyggst haustið 2020 gera að nýju könnun á framkvæmd sveitarfélaga að þessu leyti, nú vegna fjárhagsáætlana og ársreikninga 2019. Til umræðu ofangreint.

3.Stöðumat janúar - júní 2019

Málsnúmer 201907059Vakta málsnúmer

Stöðumat janúar - júní lagt fram til kynningar.
Magnús Guðmundur Ólafsson fór yfir sex mánaða stöðumat fyrir Tónlistarskólann TÁT. Rekstur Tónlistarskólans á Tröllaskaga er í góðu horfi miðað við stöðuna fyrstu sex mánuði ársins.

4.Innra mat skóla

Málsnúmer 201806041Vakta málsnúmer

Innra mat Tónlistarskólans á Tröllaskaga lagt fram til kynningar.
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT fór yfir helstu niðurstöður úr innra mati(sjálfsmat) Tónlistarskólans á Tröllaskaga 2018 - 2019.

5.Starfs-og fjárhagsáætlun

Málsnúmer 201903029Vakta málsnúmer

Drög að starfsáætlun fyrir skólaárið 2019 - 2020 lögð fram til kynningar.
Magnús Guðmundur Ólafsson fór yfir drög að starfsáætlun Tónlistarskólans á Tröllaskaga.

6.Starfsmannakönnun fræðslu- og menningarsviðs

Málsnúmer 201303200Vakta málsnúmer

Niðurstöður úr starfsmannakönnun starfsmanna Tónlistarskólans á Tröllaskaga lagðar fram til kynningar.
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri Tát fór yfir helstu niðurstöður úr starfsmannakönnun.

7.Starfsmannahald næsta skólaár og breytingar/ráðningar

Málsnúmer 201705064Vakta málsnúmer

Starfsmannahald fyrir skólaárið 2019 - 2020.
Magnús Guðmundur Ólafssson skólastjóri fór yfir starfsmannamál næsta skólaárs. Tim Knappett hefur sagt starfi sínu lausu við Tát og þökkum við honum fyrir vel unnin störf. Ingvi Rafn Ingvason hefur verið ráðinn til starfa við skólann.

8.Skóladagatal 2019-2020

Málsnúmer 201902103Vakta málsnúmer

Skóladagatal Tónlistarskólans á Tröllaskaga fyrir skólaárið 2019 - 2020 lagt fram til kynningar.
Skóladagatal Tát er lagt fram til samþykktar eftir smávægilegar breytingar. Skóladagatal er unnið í samræmi við skóladagatöl leik - og grunnskóla.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður
  • Steinunn Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Klemenz Bjarki Gunnarsson 1. varamaður
Starfsmenn
  • Magnús Guðmundur Ólafsson starfsmaður
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir sviðstjóri
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs