Skipulagsráð

43. fundur 11. febrúar 2026 kl. 14:00 - 15:34 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045

Málsnúmer 202302116Vakta málsnúmer

Lagt fram til umræðu minnisblað frá Yrki arkitektum varðandi vinnu við Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna að endanlegri skipulagstillögu í samvinnu við skipulagshönnuð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

2.Böggvisbraut - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202302121Vakta málsnúmer

Á fundi sveitarstjórnar þann 20.janúar s. var samþykkt að götur innan deiliskipulagssvæðis fyrir íbúðabyggð vestan Böggvisbrautar fengju heitin Karlsrauðatorg, Ægisgata og Garðastígur.
Skipulagsráð leggur til að Böggvisbraut milli Karlsrauðatorgs og Ægisgötu og ný gata til vesturs frá Ægisgötu og Böggvisbraut fái heitið Hringtorg.
Skipulagsráð samþykkir að Böggvisbraut milli Karlsrauðatorgs og Ægisgötu og ný gata til vesturs frá Ægisgötu og Böggvisbraut fái heitið Hringtorg.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Sandskeið 6 - umsókn um breytta notkun iðnaðarbils

Málsnúmer 202602012Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10.desember 2025 þar sem Sveinn Valdimar Ríkharðsson sækir um breytta notkun iðnaðarbils á lóð nr. 6 við Sandskeið.
Fyrirhugað er að breyta notkun húsnæðisins í geymslu.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Að mati skipulagsráðs er um svo óverulegt frávik að ræða að ekki er talin þörf á breytingu á deiliskipulagi með vísan í ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

4.Hafnargata 4 - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu útrásar

Málsnúmer 202601094Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22.janúar 2026 þar sem Ocean EcoFarm ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu fráveituútrásar frá fiskeldisstöð á lóð nr. 4 við Hafnargötu á Hauganesi.
Lengd fyrirhugaðrar útrásar verður um 75 m út fyrir stórstraumsfjöru.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu þar til umsagnir liggja fyrir um fyrirhugaða framkvæmd auk nánari upplýsinga um áform sveitarfélagsins á sama svæði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Karlsbraut 1 - umsókn um hækkun húss

Málsnúmer 202602026Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6.febrúar 2026 þar sem Gunnþór Jónsson sækir um hækkun húss á lóð nr. 1 við Karlsbraut.
Sótt er um aukningu á mænishæð um 60 cm. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulagsráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þegar fyrir liggja byggingarnefndarteikningar og skuggavarpsmyndir.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Karlsrauðatorgi 10, Karlsbraut 2 og 3 og Bárugötu 1.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Goðabraut 3 - umsókn um breytta notkun húsnæðis

Málsnúmer 202601058Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12.janúar 2026 þar sem Dýri Bjarnar Hreiðarsson f.h. Dallas ehf. sækir um leyfi til breytingar á neðri hæð húss á lóð nr. 3 við Goðabraut úr veitingastað í íbúð.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulagsráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt skv. 44.gr. skipulagalaga nr. 123/2010 þegar byggingarnefndarteikningar hafa borist.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Hafnarbraut 2A, 2B og 4 og Sognstúni 2 og 4.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

7.Hauganes - umsókn um leyfi fyrir samkomuhaldi

Málsnúmer 202602007Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2.febrúar 2026 þar sem Sigríður Dagný Þrastardóttir sækir um leyfi til samkomuhalds á svæði vestan við lóð nr. 7 við Ásveg á Hauganesi þann 20.júní nk.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

8.Aðalskipulag Fjallabyggðar 2008-2032 - umsagnarbeiðni um skipulagsbreytingu vegna Fljótaganga

Málsnúmer 202506070Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22.desember 2025 þar sem Fjallabyggð óskar eftir umsögn Dalvíkurbyggðar um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2032 vegna Fljótaganga.


https://skipulagsgatt.is/issues/2025/819
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

9.Breyting á deiliskipulagi útivistarsvæðis í Hólsdal - umsagnarbeiðni

Málsnúmer 202510006Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22.desember 2025 þar sem Fjallabyggð óskar eftir umsögn Dalvíkurbyggðar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi útivistarsvæðis í Hólsdal vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar við Fljótagöng.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

10.Hamarslandið - skráning staðfanga

Málsnúmer 202502087Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dagsett 7.febrúar 2025 þar sem farið er fram á að frístundalóðum í landi Hamars verði gefin formleg staðföng, þ.e. götuheiti og húsnúmer.
Skipulagsráð samþykkir að ómerktar götur innan svæðisins fá heitið Brekkutröð og Hlíðartröð.
samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 15:34.

Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi