Hafnargata 4 - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu útrásar

Málsnúmer 202601094

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 43. fundur - 11.02.2026

Erindi dagsett 22.janúar 2026 þar sem Ocean EcoFarm ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu fráveituútrásar frá fiskeldisstöð á lóð nr. 4 við Hafnargötu á Hauganesi.
Lengd fyrirhugaðrar útrásar verður um 75 m út fyrir stórstraumsfjöru.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu þar til umsagnir liggja fyrir um fyrirhugaða framkvæmd auk nánari upplýsinga um áform sveitarfélagsins á sama svæði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.