Goðabraut 3 - umsókn um breytta notkun húsnæðis

Málsnúmer 202601058

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 43. fundur - 11.02.2026

Erindi dagsett 12.janúar 2026 þar sem Dýri Bjarnar Hreiðarsson f.h. Dallas ehf. sækir um leyfi til breytingar á neðri hæð húss á lóð nr. 3 við Goðabraut úr veitingastað í íbúð.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulagsráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt skv. 44.gr. skipulagalaga nr. 123/2010 þegar byggingarnefndarteikningar hafa borist.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Hafnarbraut 2A, 2B og 4 og Sognstúni 2 og 4.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.