Menningarráð

113. fundur 27. febrúar 2026 kl. 08:15 - 09:45 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Lovísa María Sigurgeirsdóttir formaður
  • Jóhann Már Kristinsson varaformaður
  • Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá

1.Fjárhagslegt stöðumat 2025 fyrir málaflokk 05 , Menningarmál.

Málsnúmer 202503033Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir niðurstöðu á fjárhagsáætlun 2025 hjá söfnum og Menningahúsinu Berg.
Lagt fram til kynningar

2.Starfsmannamál á söfnum og Menningarhúsi Berg

Málsnúmer 202005069Vakta málsnúmer

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir stöðuna á starfsmannahaldi hjá söfnum og Menningarhúsinu Berg.
Lagt fram til kynningar

3.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602059Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Kvenfélaginu Tilraun. Þau sækja um 6.500.000 kr. styrk í viðhald á Tunguseli sem er við Tungurétt í Svarfaðardal, hús sem er notað meðal annars fyrir kaffisölu og salernisskúr.
Menningarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum þar sem að upphæð er of há fyrir sjóðinn og vísar málinu inn í Byggðaráð þar sem að Menningarráð telur verkefnið þarft.

4.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602060Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Mímiskórnum - kór eldri borgara. Þau sækja um 550.000 kr. styrk til að halda úti kórastarfi hjá eldri borgurum.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 400.000 til að mæta kostnaði við kórastarf.

5.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602082Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Kristjönu Arngrímsdóttur. Hún sækir um 700.000 kr. styrk til að endurvekja tónleikaröðina Gestaboð Kristjönu í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík í október. Að þessu sinni óska ég eftir styrk til að halda gestaboð fyrir sérstakan gest; hinn frábæra portúgalska gítarleikara José Manuel Neto, sem kemur frá Lissabon til að spila á tónleikum ásamt mér og hljómsveit.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 500.000 í verkefnið Gestaboð Kristjönu.

6.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði. Til upptöku og yfirfærslu efnis

Málsnúmer 202602087Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Karlakór Dalvíkur. Þeir sækja um styrk 400.000 kr. til að setja þær plötur sem þeir hafa gefið út á starfrænt form með faglegri hljóðvinnslu.Markmiðið er að varðveita upptökurnar til framtíðar og gera þær aðgengilegar á helstu efnisveitum (streymisveitum) svo sem Spotify, Apple Music og öðrum sambærilegum miðlum.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 250.000 til að mæta kostnaði við verkefnið.

7.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði. Til reksturs kórsins

Málsnúmer 202602088Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Karlakór Dalvíkur. Þeir sækja um styrk 300.000 kr. til að mæta kostnaði við kórastarfið.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr.400.000 til að mæta kostnaði við kórastarf.

8.Styrkbeiðni vegna sjómannadagsins í Dalvíkurbyggð.

Málsnúmer 202602016Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn um 800.000 kr.styrk til að halda Sjómannadaginn hátíðlegan. Umsókn kemur frá Sigmari Erni Harðarsyni fyrir hönd þeirra sem standa að þessari hátíð.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum að hækka styrk um kr. 100.000 Þar sem að gert var ráð fyrir kr. 400.000 í fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir fjárhagsárið 2026. Heildarstyrkur verður þá kr. 500.000.

9.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði - vegna leiklistarnámskeiðs fyrir börn og unglinga

Málsnúmer 202602103Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn um 400.000 kr.styrk til að efla leiklistarval og greitt smávægileg laun fyrir utanumhald á leiklistarvalinu.Tengja saman leikfélagið og skólann.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 400.000 í verkefnið.

10.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði - vegna reksturs leikfélagsins

Málsnúmer 202602104Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn um 450.000 kr.styrk til að mæta kostnaði við leiksýningu. Verkið er barnaleikrit.
Menningarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum þar sem að gert var ráð fyrir styrk í fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir fjárhagsárið 2026.

11.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602115Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn frá Ösp Eldjárn fyrir hönd Blood harmony um 350.000 kr.styrk til að mæta kostnaði við útgáfutónleika í Menningahúsinu Bergi á Dalvík, þar sem að þau eru að gefa út sína fyrstu plötu á vínyl.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 250.000 til að mæta kostnaði við verkefnið.

12.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602116Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn frá Ragnhildi Láru Weisshappel þar sem hún sækir um 700.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við gerð bókar um Einskisfræði / Nothingology er myndlistar- og ljóðaverkefni.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 400.000 til að mæta kostnaði við verkefnið.

13.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602117Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn frá Árna Daníel Júlíusarsyni, þar sem hann sækir um 400.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við verkefnið Eyðibyggðir miðalda.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum að hafna erindinu þar sem umsókn samræmist ekki reglum sjóðsins. Menningarráði þykir verkefnið áhugvert og vísar því inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggðar.

14.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602119Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn frá Héraðsskjalasafni Svarfdæla sem sækir um 500.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við að setja segulbandsspólur sem koma úr safni Dalvíkings Heimis Kristinssonar á starfrænt form.
Menningarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum þar sem stofnanir sveitafélagsins hafi aðra möguleika til fjármögnunar.

15.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602120Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn frá Sölku kvennakór sem sækir um 500.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við kórastarfið.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 400.000 til að mæta kostnaði við kórastarf.

16.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602121Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir umsókn frá Sigmari Erni Harðarsyni sem hann sækir um 300.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við verkefnið Partýbingó Tony og Svens með öllu tilheyrandi. 2-3 klst. show.
Menningarráð hafnar umsókn með þremur atkvæðum þar sem þetta samræmist ekki reglum sjóðsins.

17.Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602118Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Jóni S Hreinssyni. Hann sækir um 300.000 kr. styrk til að halda Svarfdælskan Mars (dansinn). Stefnt að viðburði 18. apríl 2026.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 200.000 til að mæta kostnaði við verkefnið.

Fundi slitið - kl. 09:45.

Nefndarmenn
  • Lovísa María Sigurgeirsdóttir formaður
  • Jóhann Már Kristinsson varaformaður
  • Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.