Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602082

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 113. fundur - 27.02.2026

Tekin fyrir umsókn frá Kristjönu Arngrímsdóttur. Hún sækir um 700.000 kr. styrk til að endurvekja tónleikaröðina Gestaboð Kristjönu í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík í október. Að þessu sinni óska ég eftir styrk til að halda gestaboð fyrir sérstakan gest; hinn frábæra portúgalska gítarleikara José Manuel Neto, sem kemur frá Lissabon til að spila á tónleikum ásamt mér og hljómsveit.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 500.000 í verkefnið Gestaboð Kristjönu.