Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði. Til upptöku og yfirfærslu efnis

Málsnúmer 202602087

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 113. fundur - 27.02.2026

Tekin fyrir umsókn frá Karlakór Dalvíkur. Þeir sækja um styrk 400.000 kr. til að setja þær plötur sem þeir hafa gefið út á starfrænt form með faglegri hljóðvinnslu.Markmiðið er að varðveita upptökurnar til framtíðar og gera þær aðgengilegar á helstu efnisveitum (streymisveitum) svo sem Spotify, Apple Music og öðrum sambærilegum miðlum.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum styrk að upphæð kr. 250.000 til að mæta kostnaði við verkefnið.