Íþrótta- og æskulýðsráð

106. fundur 08. janúar 2019 kl. 08:15 - 10:00 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Þórunn Andrésdóttir formaður
  • Jóhann Már Kristinsson varaformaður
  • Gunnar Eiríksson aðalmaður
  • Magni Þór Óskarsson aðalmaður
  • Jónína Guðrún Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
Magni Þór Óskarsson boðaði forföll.

1.Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2018

Málsnúmer 201810107Vakta málsnúmer

Samkvæmt reglum um kjör á íþróttamanni ársins eru það aðal- og varamenn í íþrótta- og æskulýðsráði sem kjósa til móts við kosningu íbúa.

Byrjað var á því að fara yfir og ræða allar tilnefningar og ábendingar, að því loknu fór fram leynileg kosning.

Eftirfarandi tilnefningar bárust:

Andrea Björk Birkisdóttir - Skíðafélag Dalvíkur

Amanda Guðrún Bjarnadóttir - Golfklúbburinn Hamar

Snorri Eldjárn Hauksson - Knattspyrna - Dalvík/Reynir

Svavar Örn Hreiðarsson - Hestamannafélagið Hringur

Viktor Hugi júlíusson - Frjálsíþróttadeild UMFS

Einnig sendi Kraftlyftingarfélag Akureyrar inn ábendingu um Ingva Örn Friðriksson. Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með 4 atkvæðum að tilnefna einnig Ingva Örn til kjörs á íþróttamanni ársins.

2.Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð 2018

Málsnúmer 201810108Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að taka til efnislegrar meðferðar tvær umsóknir til viðbótar.

Elvar Freyr Jónsson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Elvar Frey um kr. 75.000.- og vísar því á lið 06-80.

Brynjólfur Máni Sveinsson
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Brynjólf Mána um kr. 75.000.- og vísar því á lið 06-80.

3.Til umsagnar frumvarp til laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, 417. mál.

Málsnúmer 201812072Vakta málsnúmer

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Lagt fram til kynningar.

4.Þing ungmenna 2019

Málsnúmer 201812091Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir því að Þing ungmenna í Dalvíkurbyggð verði haldið fimmtudaginn 24. janúar 2019 í Víkurröst. Á því þingi verður kosið nýtt ungmennaráð Dalvíkurbyggðar.

5.Samningar við íþróttafélög 2020-2023

Málsnúmer 201901024Vakta málsnúmer

Samningar við íþróttafélögin í Dalvíkurbyggð renna út um næstu áramót. Endurnýja þarf núverandi samninga sem voru fyrir síðustu 4 ár. Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að fela sviðstjóra og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að funda með öllum íþróttafélögunum og kanna hvort það séu óskir um breytingar á núverandi samningum og gera drög að nýjum samningum samkvæmt þeim fundum. Fulltrúar félaga verða svo kallaðir eftir þörfum á fund ráðsins.
Áætlað er að klára þessa vinnu fyrir vorfund ráðsins í maí. Þessi samningsdrög verða svo nýtt við vinnu við fjárhagsáætlun í haust þar sem endanlegir samningar verði samþykktir.

6.Íþróttamaður UMSE 2018

Málsnúmer 201901026Vakta málsnúmer

Kjöri íþróttamanns UMSE 2018 verður lýst í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju þann 9. janúar næstkomandi kl. 18. Auk þess verða veittar viðurkenningar til fjölda einstaklinga, sem hafa orðið Íslands- eða bikarmeistarar, sett Íslandsmet, orðið meistarar á Landsmótum UMFÍ eða eru í landsliðum, unglingalandsliðum, afreks- eða úrvalshópum sérsambandanna.

Ungmennasamband Eyjafjarðar óskar eftir styrk til þess að halda viðburðinn
Íþrótta- og æskulýðsráð hafnar erindinu og bendir UMSE að sækja um styrki við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.

Að auki bíður UMSE fulltrúum Dalvíkurbyggðar að vera viðstaddir kjör íþróttamanns UMSE 2018.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fari á viðburðinn fyrir hönd ráðsins.
Fylgiskjöl:

7.Ónotaður styrkur GHD 2018

Málsnúmer 201901025Vakta málsnúmer

Fyrir fjárhagsáætlun 2018 sendi GHD inn erindi um ósk um aukið fjárframlag annars vegar vegna vélakaupa og hins vegar vegna hönnunar/úttektar á golfvellinum. GHD fékk samþykki fyrir allt að 5.000.000.- til vélakaupa sem það hefur nýtt og svo 10.000.000.- í hönnunar/úttektarkostnað vegna golfvallar sem GHD nýtti ekki á síðasta ári.

GHD fannst það ekki réttlætanlegt að taka ósk GHD um að gera ráð fyrir golfvelli í fólkvanginum og láta kjósa um það ef síðan þarf ekki að gera það með aðra kosti. Með því að gert verði ráð fyrir golfvelli í fólkvanginum yrði samnýting á þeim mannvirkjum sem nú eru til staðar og það væri hægt að hafa heilsársrekstur með starfsmönnum sem nýtast bæði GHD og SD.

GHD fannst því óábyrgt að nota/eyða þeim 10 milljónum sem það hafði fengið samþykki fyrir í vinnu/endurbætur sem væri ekki örugglega til lausnar á framtíðaraðstöðu golfklúbbsins.

Fram kemur að hver sem niðurstaðan verður í staðsetningu golfvallar, er eftir sem áður mikil þörf á fjármagni til viðhalds og endurbóta á þeim mannvirkjum og tækjum sem þegar eru í rekstri klúbbsins. Stjórn GHD er að vinna að framkvæmda- og kostnaðaráætlun fyrir klúbbinn fyrir næstu ár, sem verður skilað inn fljótlega á nýju ári.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Nefndarmenn
  • Þórunn Andrésdóttir formaður
  • Jóhann Már Kristinsson varaformaður
  • Gunnar Eiríksson aðalmaður
  • Magni Þór Óskarsson aðalmaður
  • Jónína Guðrún Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi